Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jófríður vill afsökunarbeiðni frá Kveik: „Þetta er ekkert annað en barnagirnd.“

Jófríður vill afsökunarbeiðni frá Kveik: „Þetta er ekkert annað en barnagirnd.“
Jófríður Ísdís Skafta­dóttir

Eftir að frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur var sýndur á RÚV á þriðju­dags­kvöld skrif­aði Jófríður Ísdís Skafta­dóttir eft­ir­far­andi færslu á Twitter:

„Ég var 16 ára og hann 36 ára, hann not­færði sér það. Hann vissi hvað ég var gömul. Hann reyndi að followa mig á insta um dag­inn mörgum árum seinna, ældi næstum upp í mig. Fer svo að grenja í við­tali og lætur eins og kjáni og fórn­ar­lamb. Dreptu mig ekki #kveikur.“

Segir hann aldrei hafa beðist afsökunar

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Jófríður Þóri aldrei nokkurn tíma hafa reynt að biðj­ast afsök­unar eða athuga hvernig hún hefði það. Einu sam­skiptin hafi verið þegar hann reyndi að setja sig í sam­band við hana á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram fyrir nokkrum mán­uðum síðan. Gerði hann það með því að „followa“ hana á for­rit­inu. Þá voru sjö ár liðin frá atvik­inu.

Jófríður segir við Frétta­blaðið að það sé mik­il­vægt að Þórir vinni mark­visst í sjálfum sér og að hann ætti tví­mæla­laust að leita sér fag­legrar aðstoðar.

„Það eru til úrræði fyrir það. Ræða við ein­hverja sér­fræð­inga í kyn­ferð­is­brota­málum. Það er svo­leiðis vinna sem ég vil sjá hann fara í.“

„Þetta er ekk­ert annað en barna­girnd. Við erum börn þegar við erum 16 ára, 17 ára og 15 ára. Þetta er ekki eðli­leg hegðun,“ segir Jófríður.

Hún segir að fjöldi stúlkna sem hafi lent í honum verði ekki taldar á fingrum ann­arrar handar.

Þáttur Kveiks vonbrigði

Eins og flestir þekkja núorðið var í þætti Kveiks rætt við Þóri um það þegar honum var sagt upp störfum hjá Þjóð­leik­hús­inu árið 2017. Uppsögn hans kom í kjöl­far þess að upp komst að hann hefði sent ólög­ráða stúlkum myndir af kyn­færum sínum.

Upp­sögnin var þó aldrei sögð vera vegna þessa, heldur var hún sögð rekstr­ar­legs eðlis.

Þórir lýsti því í þætt­inum hvernig hann hefði meira eða minna verið atvinnu­laus allar götur síðan. Hann fái ekki verk­efni sem leik­ari en haldi ekki öðrum vinnum heldur. Segir hann ástæð­una vera að mann­orð hans sé í rúst og eng­inn vilji bendla sig við hann ennþá, fjórum árum síðar. Sé hann gúgglaður komi hann út eins og skrímsli.

Þórir hélt því fram í þætt­inum að hann hefði ekki vitað að stúlk­urnar sem hann sendi nekt­ar­mynd­ina til hafi verið undir lög­aldri. Þær hafi raunar sagst vera átján ára og gabbað hann til að senda af sér kyn­ferð­is­lega mynd. Þegar það tókst hafi þær sagst hafa „náð honum“. Þórir gekkst í við­tal­inu við því að hafa verið með ungum konum, en ekki stúlkum undir lög­aldri.

Í Kveiks­þætt­inum var því velt upp hvort og hvenær ein­stak­lingar ættu aft­ur­kvæmt í sam­fé­lagið eftir að hafa orðið upp­vísir að hegðun á borð við kyn­ferð­is­brot.

Í Frétta­blað­inu seg­ist Jófríður hafa orðið fyrir afar miklum von­brigðum með Kveiks­þátt­inn. Hún segir að þarna hefði átt að vinna meiri rann­sókn­ar­vinnu og að það hefði ekki þurft að leita langt til þess að finna þolendur.

Hún segir sömu­leiðis að Kveikur hefði mátt ræða við sér­fræð­inga í kyn­ferð­is­brota­málum.

„Ein­stak­linga sem vinna með þolendum og ger­endum.“

„Ég myndi vilja skrif­lega yfir­lýs­ingu frá Kveik og RÚV þar sem beðist er afsök­unar og svarað er fyrir þetta drottn­ing­ar­við­tal,“ segir Jófríður einnig.

Í sam­tali við Stundina segir Jófríður eft­ir­far­andi:

„Ég var mjög ringluð á þessum aldri og brotin. Ég hitti hann eftir að við höfðum náð saman á Tinder. Í prófílnum mínum þar stóð að ég væri 18 ára en þegar ég og Þórir hitt­umst sagði ég honum strax að ég væri 16 ára. Honum fannst ekk­ert athuga­vert við það og við sváfum saman.

Það var ekki þvingað sam­ræði, en ég var svo ung og brotin að strax dag­inn eftir lok­aði ég á öll sam­skipti við hann og reyndi að gleyma því sem hafði gerst. Mér leið mjög illa en kunni ekki að orða það sem ég veit í dag að var valda­mis­munun. Hann var ekki bara helm­ingi eldri en ég, og ég ung­lingur, heldur var hann líka frægur leik­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við