Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Jónsi í Sigur Rós með íslenska ilmgerð í gamla Grjótaþorpinu ásamt fjölskyldu

Jónsi í Sigur Rós með íslenska ilmgerð í gamla Grjótaþorpinu ásamt fjölskyldu
Frá vinstri: Lilja, Sigurrós og Inga LJós­mynd­ari: Hjördís Jóns­dóttir
Jónsi í Sigur Rós

„Það hefur komið okkur á óvart hve áhug­inn er mik­ill. Við stukkum út í djúpu laug­ina án þess að vita neitt, bara fljót­andi á ein­hverri skemmti­legri hug­mynd og svo erum við bara búin að vera sveitt síðan!“

Fischersund er íslensk ilm­gerð í gamla Grjóta­þorp­inu sem selur ilm­vötn, ilm­kerti, reyk­elsi og hreinar snyrti­vörur. Allt er hand­gert úr besta mögu­lega hrá­efni og allar vör­urnar inni­halda til dæmis íslenskar ilm­kjarna­ol­íur sem eru algjör­lega ein­stakar. 

búa til rými í þessum hraða heimi

Mannlíf fór á stúf­ana og kynnti sér íslensku ilm­gerð­ina Fischersund sem er fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki. 

Við spjöll­uðum við Ingi­björgu og Sigurrós Elínu Birg­is­dætur, systur Jónsa í Sigur Rós. Þær sögðu okkur að hug­myndin væri að búa til rými í þessum hraða heimi, sem gott væri að koma í og myndi skilja eitt­hvað jákvætt eftir sig. 

Ísland býr að mjög frá­brugðnum ilm­heim
„Ilm­heimur Íslands er algjör­lega ein­stakur og okkur fannst spenn­andi að vinna mark­visst með þá hug­mynda­fræði. Ilm­heimur okkar hér á Íslandi er mjög frá­brugð­inn þeirra sem búa á suð­rænum slóðum þar sem fram­andi ávextir og blóm ráða ríkjum.

Við systk­inin höfum fjöl­þætta reynslu sem spannar tón­list, mynd­list, hönnun og ilm­gerð. Við hugs­uðum með okkur hvað það væri gaman að sam­eina krafta okkar til þess að byggja upp eitt­hvað fal­legt, þar sem allar skynj­anir væru virkj­aðar. Alltaf þegar við komum saman bar þetta fljótt á góma og okkur lang­aði líka að vinna með hvert öðru og verja meiri tíma saman. Svo þegar Jónsi flutti stúd­íóið sitt til Los Angeles losn­aði hús­næðið hans, við slógum til og hentum upp búð þrátt fyrir að hafa enga reynslu í þeim efnum.“

Þau hafa ekk­ert aug­lýst, en stækkað jafnt og þétt í gegnum árin. Fólk hefur haft á orði við vini sína að það verði að kíkja í skrýtnu ilm­búð­ina í Fischersundinu og það er besta aug­lýs­ingin sem búðin getur fengið. Syst­urnar segja að það sé magnað hve áhugi fyrir ilmi á Íslandi sé að aukast og fólk vilji gæði og vand­aða vöru án eit­ur­efna sem veitir því vellíðan.

Íslenskir karl­menn orðnir þreyttir á litlu úrvali
Sigurrós seg­ist hafa tekið eftir vakn­ingu, sér­stak­lega hjá íslenskum karl­mönnum sem séu orðnir þreyttir á „ster­ílu“ úrvali af rakspíra og vilji finna sinn eigin ilm sem þeim líður vel með.

Þau vinna mikið með minn­ingar tengdum ilmi þegar þau hefja hönnun á nýjum ilmi; hvaða staðir eða stundir skildu eftir sig minn­is­stæðan ilm og hvernig líðan hann skildi eftir.

tengir þennan ilm algjör­lega við barn­æsk­una

„Jónsi hann­aði til dæmis ilm sem er inn­blás­inn af æsku­árum hans í Mosó. Ilmurinn er eins og þegar þú ert búinn að halda utan um rabar­bara og dýfir svo fingr­unum í hvort tveggja sykur og smur­olíu eftir að hafa sett keðj­una aftur á reið­hjólið. Fólk er ekki mikið að dýfa rabar­bara í sykur á full­orð­ins­árum þannig að það tengir þennan ilm algjör­lega við barn­æsk­una.“

Þau segja okkur að það sé langt ferli að hanna ilm­vatn því að það sé svo við­kvæmt ferli. „Þú ert hálf­gerður vís­inda­maður því hálfur dropi af ákveð­inni olíu getur gjör­sam­lega breytt ilm­inum; núllað út eina lykt og ýft upp aðra. Það getur tekið um hálft ár til ár að full­vinna ilm.“

Íslend­ingar tengja mjög sterkt við ilm­heim­inn sem Fischersund vinnur með, sem er jarð­bundnu nátt­úruilmur af ýmsum toga. „Við finnum líka auk­inn áhuga erlendis. Mjög mikið vegna áhuga fólks á Íslandi og einnig vegna þess að fólk er að leita að ann­ars konar ilm­vörum.“ 

Fjall að klífa
Þau segja okkur að við­skipta­hliðin hafi verið mikið fjall að klífa, þar sem ekk­ert þeirra er menntað á því sviði. „Öll sköpun kemur eðli­lega, en þessi praktísku mál ekki svo glatt. En við höfum fengið góða hjálp sem við erum mjög þakk­lát fyrir.

Nú eru jólin á næsta leyti og við erum spennt að segja frá því að við erum á fullu í jóla­und­ir­bún­ingnum og meðal ann­ars kemur okkar árlega jóla­kerti í verslun okkar og Ramma­gerð­ar­innar innan skamms, sem inni­heldur íslenskar ilmol­íur og aðrar jóla­legar olíur eins og „frankincense“ og myrru.“

Ilmur er alltum­lykj­andi og það er þegar maður veitir honum eft­ir­tekt að töfr­arnir eiga sér stað.

Góður ilmur veitir gleði og fyllir hjartað af hlýju og góðum minn­ingum.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una