Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórunn Antonía opnar sig um ofbeldið: „Gott að vita að það kost­ar eina millj­ón að nauðga mér“

Þórunn Antonía opnar sig um ofbeldið: „Gott að vita að það kost­ar eina millj­ón að nauðga mér“
Þórunn Antonía er frá­bær tón­list­ar­kona.

Tón­list­ar­kon­an frá­bæra, Þór­unn Ant­on­ía Magnús­dótt­ir, seg­ir síð­ustu 3 ár hafa ein­kennst af kvíða á meðan hún beið eft­ir niður­stöðum í máli gegn nudd­ar­an­um Jó­hann­esi Tryggva Svein­björns­syni. Þór­unn Antonía er ein fjög­urra kvenna sem Jó­hann­es var sak­felld­ur fyr­ir að brjóta gegn.

Eins og kom fram í Mannlífi þá var dóm­ur yfir Jó­hann­esi var þyngd­ur í Lands­rétti í gær; hann dæmd­ur í sex ára fang­elsi. Þór­unn Antonía opn­aði sig um málið í færslu á Face­book. Hún segir þar að 35 kon­ur hafi kært Jóhannes og hún viti til þess að hann hafi brotið á marg­falt fleirum sem ekki enn hafi þorað að kæra.

„Ég ætl­aði ekki að kæra hann, á þess­um tíma var svo margt erfitt í gangi í mínu lífi að ég treysti mér ekki í það enda eitt það erf­ið­asta sem ég hef gengið í gegn­um að kæra mann fyr­ir nauðgun, við­mótið á lög­reglu­stöð­inni. Niðrandi at­huga­semd­ir i dóm­sal. Kvíðin að ger­andi hefni sín og svo fram­veg­is. Að ég verði druslu­skömmuð fyr­ir alþjóð. Enn ein at­hygl­is­sjúka gell­an sem var svo heimsk að koma sér í þess­ar aðstæður al­veg sjálf. Aldrei í ferl­inu spurði ég hvað ég fengi í bæt­ur, því ég kæri ekki kyn­ferðis­brot fyr­ir pen­inga. En gott að vita að það kost­ar ein­ung­is 1 millj­ón að nauðga mér.“

Það er ekki nóg með að Þórunn Antonía hafi verið að berj­ast vegna máls Jóhann­esar, því Þórunn Antonía er einnig að glíma við af­leið­ing­ar heim­il­isof­beld­is.

Hún seg­ir brotið ekki bara hafa áhrif á hana held­ur börn­in henn­ar tvö, Freyju Sól og Arn­ald Þór.

Of­beldið sem Þórunn Antonía hef­ur orðið fyr­ir hefur eðli­lega haft mik­il áhrif á hana, sér­stak­lega þegar hún gekk með börn sín.

„Kyn­ferð­isof­beldi olli því að með­gang­an og fæð­ing­in gekk hræði­lega. Ég fékk ofsa­kvíða og fæð­ing­arþung­lyndi. Ég var hrædd við karl­kyns­lækna. Ég fest­ist reglu­lega í bak­inu, mjó­b­aki og ég náði ekki út­víkk­un í báðum fæð­ing­um, sem rekja má beint til áhrifa kyn­ferð­isof­beld­is,“ segir hún og bætir við:

„Mar­blett­ur sem dofn­ar eða bein sem vex sam­an aft­ur. Jó­hann­es brást trausti mínu á mín­um veik­asta tíma. Fyrr­ver­andi kær­ast­inn minn hafði gengið það illa í skrokk á mér að ég var með mjög al­var­leg lík­am­leg og and­leg ein­kenni sem ég fól Jó­hann­esi fullt traust í að vinna með. Meiðslin lágu yfir mjaðma­grind, mjó­b­ak og stoð­kerfi. Jó­hann­es nauðg­aði mér. Hann setti hend­ur sín­ar óvel­komn­ar inn í leggöng­in mín. Inn í enda­þarm. Hann hræddi úr mér líf­tór­una. Ég lá fros­in á bekk í Bol­holti 4 að vetri til með mann að nauðga mér eft­ir verstu lífs­reynslu mína. „Ég er ekki reið, ég er ekki brot­in, ég er ekki full af heift. Ég lít ekki á þetta sem sig­ur sem ég skála yfir. Þetta er harm­leik­ur sem ótal kon­ur og fjöl­skyld­ur þeirra eru þolend­ur í. Ég óska þess að þessi maður fái við­eig­andi hjálp og að við sem sam­fé­lag trú­um brota­þolum og ber­um virð­ingu fyr­ir þessu ferli og sýn­um sam­kennd i garð þeirra hug­rökku kvenna sem þora að stíga fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina