Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir Fríðu rektor LHÍ hafa brotið á sér: „Hún var ó­sátt að ég hafði sýnt starfs­fólki stuðning“

Segir Fríðu rektor LHÍ hafa brotið á sér: „Hún var ó­sátt að ég hafði sýnt starfs­fólki stuðning“

Sig­rún Hrólfs­dóttir, fyrrum deildar­for­seti mynd­lista­deildar Lista­há­skóla Ís­lands, birti bréf á Face­book-hópnum Menn­ingar­á­tökin þar sem hún greinir frá því að brotið hafi verið gegn henni í ráðn­ingar­ferli þegar henni var ekki boðin á­fram­hald­andi starf við skól­ann. Sig­rún segir farir sínar ekki sléttar við rektor LHÍ, Fríðu Björk Ingvars­dóttur.

Þessi á­kvörðun hafi ekki með mig eða mín störf að gera

„Und­ir­rituð gegndi stöðu deild­ar­for­seta mynd­list­ar­deildar Lista­há­skóla Íslands með ráðn­ing­ar­samn­ingi til fimm ára eða í eitt tíma­bil (2016-2021). Þremur mán­uðum áður en ráðn­ing­ar­samn­ingur minn rann út var mér til­kynnt af rektor, Fríðu B. Ingv­ars­dóttur, að staðan yrði aug­lýst laus til umsóknar sem var gert vorið 2021. Þetta kom mér og flestum sem málið varða í opna skjöldu enda kveða reglur Lista­há­skól­ans á um heim­ild til að end­ur­ráða deild­ar­for­seta í annað tíma­bil án aug­lýs­ingar.“

Sig­rún seg­ist hafa óskað eftir frek­ari skýr­ingum og starfs­menn deild­ar­innar hafi sömu­leiðis gert það og mót­mælt vinnu­brögð­unum í opnu bréfi.

„Að sögn rekt­ors var þetta á­kveðið út frá þeim form­legu for­sendum að skipu­rits­breyt­ing hafði átt sér stað hjá LHÍ ári áður. Í svari stjórnar­for­manns LHÍ, Magnúsar Ragnars­sonar fram­kvæmda­stjóra Símans, til bæði mín og starfs­manna mynd­listar­deildar kemur einnig fram að þessi á­kvörðun hafi ekki með mig eða mín störf að gera, en ég hvött til þess að sækja um aftur.“

Sig­rún sótti hún aftur um starfið en var ekki boðið á­fram­hald­andi starf þrátt fyrir að hún væri eini um­sækj­and­inn sem var met­inn hæfur.

„Sam­kvæmt niður­stöðu hæfis­nefndar er ég ó­tví­rætt hæf til þess að gegna stöðu pró­fess­ors í mynd­list, auk þess sem ég hef gegnt starf­inu í fimm ár og hafði stuðn­ing akademískra starfs­manna deild­ar­innar.“

Gagn­rýnt stefnu rektors í tveimur málum

Sig­rún ræddi við Fríðu Björk rektor í síma sem tjáði henni að henni hefði ekki verið boðið áfram­hald­andi starf vegna þess að Sig­rún hafði gagn­rýnt stefnu rekt­ors í tveimur málum sem höfðu á­hrif á fag­lega, list­ræna og akademíska starf­semi mynd­listar­deildar.

„Einnig var hún ó­sátt með að ég hafði sýnt starfs­fólki skól­ans stuðn­ing þegar að þau þurftu að taka nokkuð harðan slag við stjórn­endur LHÍ í tengslum við stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Ég hafði þó unnið skv. öllum ferlum skól­ans og átt í góðu sam­starfi við nem­endur og starfs­fólk og alla þá lista- og fræði­menn sem að koma að stunda­kennslu við deild­ina. Þegar ég óskaði eftir skrif­legum rök­stuðn­ingi fyrir þess­ari á­kvörðun, á grund­velli stjórn­sýslu­laga, var því hafnað.“

Staða deildar­for­setar var aftur aug­lýst og sótti Sig­rún um hana á ný. Að sögn Sig­rúnar var niður­staða þess ráðn­ingar­ferlis að minna hæfur aðili var ráð­inn með til­liti til mennt­unar, list­ræns fer­ils og starfs­reynslu, sam­kvæmt hæfis­nefnd skól­ans.

„Með þess­ari á­kvörðun og því ferli sem hófst í kjöl­farið (tveimur ráðn­ingar­ferlum) er farið gegn mati hæfis­nefndar og vilja akademískra starfs­manna við mynd­listar­deild LHÍ. Hér er auk þess vegið að mér bæði per­sónu­lega og fag­lega,“ skrifar Sig­rún.

Máls­með­ferðin rýrir gildi allra akademískra ráðninga

Að sögn Sig­rúnar rýrir máls­með­ferðin gildi allra akademískra ráðn­inga við Lista­há­skóla Ís­lands „þar sem það er nú ljóst að geð­þótti yfir­manns­ins ræður, sem beitir fag­legum ferlum skól­ans til þess að bola burt hæfum starfs­manni.“

Hún segir það jafn­framt kveðið á um í starfs­lýs­ingu að deildar­for­setar skól­ans beri á­byrgð á list­rænni og akademískri stefnu­mótun fag­sviða og út­færslu hennar í námi, kennslu og rann­sóknum.

„En það má nú vera ljóst af þessu máli að þeir sem að gagn­rýna stefnu rekt­ors mega búast við því að fá ekki ráðn­ingu við skól­ann. Það er mjög al­var­legt að starf­menn við Lista­há­skól­ann geti ekki tjáð skoð­anir sínar án þess að ótt­ast um stöðu sína.“

Að sögn Sig­rúnar sendi lög­maður BHM bréf til rekt­ors og stjórnar Lista­há­skól­ans og benti á þetta en í svari lög­manns LHÍ hafi komið fram að ráðn­ingar skól­ans væru einka­réttar­legs eðlis því að rekstrar­form skól­ans sé sjálfs­eignar­stofnun. Á þeim grunni hafi verið hafnað að veita rök­stuðn­ing eða neinar frek­ari skýr­ingar í mál­inu. Sig­rúnu finnst þetta skjóta skökku við í ljósi þess að lista­há­skól­inn sé á fram­færi rík­is­ins og hafi á árinu 2020 þegið rúman 1,4 millj­arða króna úr ríkis­sjóði og flokk­ist sem ríkis­aðili í A-hluta ríkis­reikn­ings.

„Það er ó­eðli­legt að stofnun sem þessi, sem þiggur slíkar fjár­hæðir af opin­beru fé til rekst­urs og ber mikla á­byrgð gagn­vart menn­ingar­líf­inu í land­inu, geti falið sig á bak­við það að vera ekki opin­ber stofnun og þurfa þannig ekki að lúta lögum og reglum sem gilda um hið opin­bera. Og þurfa auk þess ekki heldur að fylgja eigin reglum og lögum nema þegar það hentar,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina