Tinna nokkur, íbúi í Mosfellbæ, er uggandi yfir því sem virðist vera nýr flugnafaraldur í bænum. Flugurnar segir hún helst líkjast moskítóflugum og hefur fjölskyldan verið talsvert bitin að næturlagi undanfarið.
Tinna segir frá upplifun fjölskyldunnar í hópi hverfisbúa á Facebook og spyr þar hvort nágrannar hafi orðið varið við flugurnar fjölmörgu.
„Mig langaði að kanna hvort fleiri hefðu orðið varir við flugur núna í október og nóvember, sem líkjast moskítóflugum og eru mun stærri en venjulegar mýflugur. Við sjáum þær í svörmum fyrir utan heimilið okkar á kvöldin og höfum velt því fyrir okkur hvort þær geti verið að bíta okkur fjölskylduna á nóttunni. Við erum með ketti og héldum að þetta hlytu að vera flóabit þó þau væru ekki beint þannig í útliti og fjölda/dreifingu… Er einhver í sömu sporum?,“ spyr Tinna.
Fjölmargir Mosfellingar tjá sig undir færsluna og virðast margir þeirra hafa verið bitnir undanfarið. Flestir íbúanna skilja ekkert í þessu. Elín er ein þeirra. „Nokkur bit hér á bæ. Var ekki að skilja þetta og kenndi kettinum um að vera með fló,“ segir hún.
Bára kannast líka við vandamálið. „Já! Er alltaf haugur af þeim fyrir utan stofugluggan okkar, ég er svo með random bit a kinninni, segir Bára. Og Þóra er líka að lenda í þessu. „Jepp, þær eru hér í Leirvogstungunni, var einmitt að spá í þetta sama. Erum ekki með húsdýr og engin bitinn svo ég viti til. Þessar flugur eru frekar latar og fljúga hægt. En hef tekið eftir stærri flugum, á við húsflugur en samt ekki húsflugur fyrir utan gluggana hjá okkur og það er óvanalegt miðað við þennan árstíma,“ segir Þóra.
Sturla skilur lítið í þessum flugnafaraldriþ „Ég hef verið að sjá þessar flugur í dag og gær, mjög sértakt við þetta hitastig! Líkjast Mosquito,“ segir Sturla. Og það gerir Sigurlaug ekki heldur. „Já! Var einmitt að horfa á þær bara í gær fyrir utan gluggann. Var einmitt að velta því fyrir mér hvernig flugur þyldu þetta frost!,“ segir Sigurlaug.
Smelltu hér til að lesa brakandi feskt helgarblaðið eða flettu því hér fyrir neðan:































Athugasemdir