Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Banamaður Daníels iðraðist einskis: „Ári áður rændi hann gullmeni sem mamma Daníels gaf honum“

Banamaður Daníels iðraðist einskis: „Ári áður rændi hann gullmeni sem mamma Daníels gaf honum“
Eiríkur hefur misst tvö börn sín.

Eiríkur Sig­ur­björns­son missti Daníel, son sinn um pásk­ana á þessu ári. Ekið var yfir Daníel fyrir utan heim­ili kær­ustu hans. Eiríkur telur að ekki hafi verið um óvilja­verk að ræða. Vitni að atvik­unu dró frá­sögn sína til baka. Eiríkur gerir þennan harm­leik í hlað­varp­inu Mann­lífið með Reyni Trausta­syni. Hann segir að Daníel hafi lifað „riskí“ lífi. Hann hafði verið í neyslu en snúið við blað­inu og verið edrú í sjö mán­uði þegar hann féll skömmu áður en hann dó.

„Freist­ing­arnar voru svo miklar að Daníel féll. Hann átti að fara í með­ferð eða hitta lækni á föstu­deg­inum langa, en hann var í neyslu um nótt­ina. Vinkona hans, kærasta hans, vakn­aði og tók eftir að hann var ekki á staðnum. Hún kíkti út og sá hvar hann lá í blóði sínu. Þetta er alveg hræði­legt,“ segir Eiríkur.

Bana­maður Daníels var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald en leystur út eftir fjóra til fimm daga. Fjöl­skylda hins látna taldi að atvikið, ef það var slys, hlyti að vera hræði­legt áfall fyrir þann sem varð Daníel að bana.

„Okkur datt í hug hvort við ættum að ræða við hann og hugga hann, ef þetta hefði verið slys. En nokkrum dögum síðar var hann far­inn að dilla sér á fullu, selja eit­ur­lyf og gera alls konar kúnstir án þess að sýna nokkra iðrun. Þetta veit lög­reglan,“ segir Eiríkur.

Daníel lést í blóma lífs­ins.

Kærasta Daníels var búin að lifa mjög erf­iða tíma en loks­ins hafði hún fundið þann sem hún elskaði. Eiríkur segir að Daníel hafi verið búinn að gefa henni von, verið góður við hana og stappað stál­inu í hana.

„Stúlka sem tal­aði við hana sagði að móðir sín hefði orðið vitni að þessu og sagði henni í smá­at­riðum það sem móðir hennar hafði sagt henni. Hún sagði að það hefði verið ógeðs­legt að sjá mann­inn í sömu peys­unni þegar vett­vangs­rann­sókn var gerð og þegar hann framdi þetta ódæði. Hún sagði að þetta hefði ekki verið slys. Daníel datt niður og mað­ur­inn keyrði yfir hann og bakk­aði síðan yfir hann. Kærasta Daníels vildi hitta mömmu stúlkunnar, sem var til í það, en svo þegar þær hitt­ust þá sagð­ist konan aldrei hafa séð þetta. Fólk er hrætt. En hvernig vissi hún að mað­ur­inn hafði verið í sömu peys­unni?“

Eiríkur segir að það hafi legið fyrir að illindi voru á milli Eiríks og bana­manns­ins.

„Já, það sem varpar efa á að þetta hafi verið óvilja­verk er að akkúrat ári áður, upp á dag, þá rændi þessi náungi gull­meni sem mamma Daníels hafði gefið honum. Upp á dag. Daníel var aldrei sáttur við það og vildi fá það til baka en honum hafði verið hótað dag­ana á undan og var tölu­vert smeykur. Hann sagði á áfanga­heim­il­inu, sem hann var, að honum hefði verið hótað. Það hafði farið að renna af honum þarna um morg­un­inn og hann þurfti meira. Þá kom þessi sendi­boði sem aug­lýsti á Instagram eða hvað það heitir og Daníel sá það og þá var það akkúrat mað­ur­inn sem hafði rænt af honum ári áður,“ segir Eiríkur.

Hann sagð­ist vilja fyr­ir­gefa bana­manni sonar síns en til þess yrði að koma til iðrun.

„Það eru margir sem leið­ast út á óheilla­braut en innst inni vilja þeir lifa öðru­vísi lífi og ég hugsa og get sagt það hérna að ef þessi við­kom­andi ein­stak­lingur iðr­að­ist, breytti til, gengi á Guðs vegi, ját­aði og beidd­ist fyr­ir­gefn­ingar þá væri ég fyrsti maður til að rétta fram hönd­ina og reyna að hjálpa honum, vegna þess að ég hef reynslu af því að hjálpa þeim sem eru komnir í þennan far­veg. Ég myndi fyr­ir­gefa honum. En eins og staðan er í dag þá gengur hann ekki á Guðs vegi og fyrr eða síðar verður hann öðrum og sjálfum sér til skaða ef hann er ekki stopp­aður af.“

Viðtalið í heild sinni er að finna hér í prent­aðri útgáfu og hlað­varpið er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una