Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Steinar gefur út nýja plötu undir listamannsnafninu GREYSKIES: „Þetta er rétt að byrja“

Steinar gefur út nýja plötu undir listamannsnafninu GREYSKIES: „Þetta er rétt að byrja“
GREYSKIES. Mynd úr einka­safni.

Steinar Bald­urs­son er 25 ára gam­all tón­list­ar­maður, laga­höf­undur og pródúser. Hann gaf út sína fyrstu plötu árið 2013, þá aðeins 18 ára gam­all, undir nafn­inu Steinar.

Í októ­ber síð­ast­liðnum gaf Steinar út plötu undir lista­manns­nafn­inu GREYSKIES. Platan ber nafnið The Mind is Like the Moon og inni­heldur tíu lög. Hún er unnin í sam­starfi við pródús­er­inn Pálma Ragnar Ásgeirs­son.

Steinar spjall­aði við Mannlíf um plöt­una, sköp­un­ar­ferlið og það sem er fram undan.

Langaði að gera tónlist sem hann tengdi betur við

Hvað var platan lengi í vinnslu?

„Þessi plata tók mjög langan tíma. Miklu lengri tíma en allir í verk­efn­inu höfðu áætlað. Við vildum gera þetta rétt og það hafði áhrif á tím­ann sem gerð plöt­unnar tók, en alls konar póli­tík átti líka þátt í því að lengja verk­efnið tölu­vert.

Við byrj­uðum að vinna að plöt­unni í byrjun 2018 og lukum við hana í byrjun 2020. Fyrsta lagið kemur síðan ekki út fyrr en síðla árs 2020. Oft er fólk byrjað að gefa út smá­skífur af plötum áður en platan sjálf er kláruð svo þetta var tölu­vert lengra ferli en ég er vanur.

Ég var líka búinn að semja mörg lögin á plöt­unni árið 2017 svo ég fann fyrir miklum létti þegar platan kom út og ég fékk loks­ins að skila þessu verk­efni af mér. Mikið stolt og mik­ill léttir.“

Efnið á þess­ari plötu er nokkuð ólíkt því sem þú hefur áður gert, hvað réð því að þú fórst í þessa átt? Eru ein­hver ákveðin áhrif sem þú varðst fyrir?

„Það er rétt hjá þér að þetta er í allt aðra átt en það sem ég hef unnið að áður. Ég tók ákvörðun árið 2017 um að mig lang­aði að hefja nýtt tón­list­ar­verk­efni þar sem ég væri með lista­manns­nafn og þar sem ég væri að gera tón­list sem ég tengdi betur við. Tónlist sem ég sjálfur myndi hlusta á en ekki bara tón­list sem ég vissi að myndi ganga vel á Spotify og mögu­lega í útvarpi.

Ég hef alltaf verið mik­ill popptón­list­ar­maður hvað laga­smíðar varðar, en þegar það kemur að útsetn­ingum er ég oft­ast hrif­inn af lögum sem halla aðeins í átt­ina að örlítið dekkri og meira „alt­ernative“ stefnum. Í raun er gott orð yfir þessa tón­list; „alt-pop“. En það er orðið svo erf­iður leikur í dag að fara að setja tón­list eða lista­menn í ákveðna dálka, þetta er allt meira eða minna sam­suða af öllum stefnum í dag.“

Á plöt­unni má heyra nokkur áhrif frá til dæmis árunum 2005 og 2006, til að mynda í lag­inu Big Bird. Er það eitt­hvað sem þú tengir við og er með­vitað? 

„Stefnan sem var mikið að sækja í sig veðrið á þeim tíma þegar ég var að útsetja plöt­una var rokkið. Í raun­inni emo-rokkið frá fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Svo já, það eru klár­lega áhrif af þeirri stefnu á plöt­unni og það er með­vitað. Ég hef tekið ófá giggin í gegnum tíð­ina en maður finnur það sér­stak­lega með lög eins og eru á plöt­unni; orkan og til­finn­ingin á sviði og í sal er svo miklu meiri en það sem ég þekkti áður, sem er geggjað. Ég hélt útgáfu­tón­leika á Húrra fyrir stuttu og það stað­festi fyrir mér að þessi tón­list nýtur sín best á live tón­leikum.“

Syngur um tilfinningaríkari og raunverulegri hluti en áður

Þið Pálmi Ragnar vinnið þetta saman, hver er verka­skipt­ingin á milli ykkar?

„Ég legg mikla áherslu á að semja öll lögin mín sjálfur. Fyrst og fremst horfi ég á sjálfan mig sem laga­höf­und og að pródúsera og flytja lögin er síðan bara bónus sem ég er hepp­inn að fá að gera, því það er oft erfitt fyrir laga­höf­unda að kom­ast eitt­hvað áfram ef þeir finna aldrei flytj­and­ann eða pródúser. Sömu­leiðis er erfitt fyrir söngv­ara að kom­ast eitt­hvert ef þeir hafa ekki laga­höf­unda sér við hlið eða pródúsera.

Á plöt­unni var ferlið þannig að ég sem lögin einn og stundum pródúsera ég þau gróft í ákveðna átt. Þaðan fer ég með lögin til Pálma Ragnars og hann skilur nákvæm­lega hvaða til­finn­ing er í lag­inu og pródúserar lagið þar til það er full­klárað. Að vinna með Pálma eru for­rétt­indi. Við unnum þessa plötu tveir saman í stúd­íó­inu og ég fékk að fylgj­ast með honum og vinnu­ferli hans. Það er magnað að fylgj­ast með honum og sjá hvað hann er fljótur að skynja hvað vantar og hvað virkar fyrir lög. Hann er með mjög ein­staka sýn á pródús­er­ingu og allar ákvarð­anir eru útpældar, það er voða lítið verið að skjóta bara út í loftið og vona það besta. Ég hef lært mjög mikið af öllu þessu ferli.“

Fjallar platan í heild um eitt­hvað ákveðið? 

„Nei, ég pass­aði samt að ég vildi klár­lega hafa rauðan þráð í gegnum plöt­una hvað varðar hljóð­heim­inn. Öll lögin tengj­ast hvert öðru í gegnum þennan hljóð­heim og sömu­leiðis vorum við stundum að vinna með svip­aða útsetn­ingu á gítörum og öðrum hljóð­færum til að halda þessu skyldu. Hins vegar er ég að syngja um miklu til­finn­inga­rík­ari og raun­veru­legri hluti en ég hef áður gert. Hluti sem ég hef verið að kljást við. Þótt platan í heild fjalli ekki um eitt­hvað ákveðið er ekki þar með sagt að hvert og eitt lag eigi ekki sína sögu.“

Áttu þér upp­á­halds­lag á plöt­unni?

„Upp­á­halds­lagið mitt til að spila „live“ er Eyes. Það var ekki fyrr en við tókum það á Húrra að ég fatt­aði hve gaman er að spila það og heyra „live“. Upp­á­halds­lagið af plöt­unni almennt er hins vegar annað hvort The Mind is Like the Moon eða Rhoads. Sagan á bak við hið fyrr­nefnda er mjög kraft­mikil fyrir mig og ég finn alltaf fyrir miklum krafti þegar ég hlusta á það lag. Rhoads er svo mikið „vibe“ að ég verð að hafa það með.“

Hefur mikla trú á verkefninu

Hvernig lítur lífið út þessa dag­ana, fyrir utan plötu­út­gáf­una?

„Fyrir utan plöt­una er ég að klára BS í sál­fræði/við­skipta­fræði næsta vor og er á fullu í því. Ég var einmitt að kaupa mér íbúð í vik­unni og ásamt öllu því stússi er ég byrj­aður að vinna að næstu plötu GREYSKIES. Mikið um að vera, en þannig er best að hafa það.“

Hvernig lítur þá nán­asta fram­tíð út hjá þér í tón­list­inni?

„Eina sem ég get sagt núna varð­andi GREYSKIES er að þetta er rétt að byrja. Þessu verk­efni hefur ekki verið auð­velt að koma af stað og það hefur tekið sinn tíma en þrátt fyrir það þá hefur trú mín á þessu verk­efni bara auk­ist.

Ég er byrj­aður að vinna að næstu plötu og ég veit að hún verður bara stærri. Ég vil fylgja þess­ari plötu eftir með miklu fleiri tón­leikum, sem verða til­kynntir á næst­unni en svo snýst þetta um að ljúka þeim kafla sem þessi plata er og byrja á næsta kafla. Und­ir­bún­ingur fyrir 2022 er byrj­aður og verður spenn­andi að sjá hvaða tæki­færi það ár hefur að geyma.“

Að lokum hvetur Steinar sem flesta til að kíkja á plöt­una og sjá hvort þetta sé eitt­hvað fyrir þá.

„Ef svo er, þá er klár­lega málið að kíkja á tón­leika. Mark­miðið er að halda miklu fleiri tón­leika á næst­unni.“

Það verður spenn­andi að fylgj­ast með GREYSKIES í fram­tíð­inni, bæði tón­leika­haldi og nýrri tón­list­ar­út­gáfu. Platan The Mind is Like the Moon er á Spotify og hana má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina