Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eyþór Arnalds og endurkoman með Todmobile: „Samstarfið varð strax mjög sterkt og mjög farsælt“

Eyþór Arnalds og endurkoman með Todmobile: „Samstarfið varð strax mjög sterkt og mjög farsælt“
Eyþór Arnalds fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Mynd: Hallur Karlsson

Eyþór Arnalds hefur tekið sér svo margt fyrir hend­urnar í lífi sínu að of langt mál væri að telja það upp. En allt hefur hann gert það með glans.

Mannlíf ræddi við tón­list­ar­mann­inn Eyþór Arnalds að þessu sinni, en hann hefur nú á nýjan leik gengið til liðs við eina stærstu hljóm­sveit íslenskrar tón­list­ar­sögu, Tod­mobile, en Eyþór var einn af stofn­endum hljóm­sveit­ar­innar fyrir rúmum þrjá­tíu árum síðan.

Nokkrar manna­breyt­ingar hafa orðið á Tod­mobile í áranna rás eins og gefur að skilja, en nú mun Eyþór standa á sviði með Tod­mobile í fyrsta sinn síðan árið 2007.

Eyþór er strax spurður hvernig það hafi komið til að Tod­mobile varð til? Og ekki síður: Varð sam­starfið strax far­sælt?

„Við Þor­valdur B. vorum í tón­smíða­námi í Tón­list­ar­skól­anum í Reykja­vík þar sem Þorkell Sig­ur­björns­son, Atli Heimir Sveins­son og fleiri kenndu okkur. Við höfðum báðir verið í hljóm­sveitum áður en klassíkin yfir­tók okkar líf. Ég í Tappa Tík­arrassi sem var í Rokk í Reykja­vík og Þor­valdur í Pax Vobis.

Þor­valdur stakk upp á því að við tækjum upp nokkur lög með Andreu Gylfa­dóttur sem var að útskrif­ast úr Söng­skól­anum, en við höfðum verið að vinna saman að tón­smíðum fyrir Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands sem loka­verk­efni. Þor­valdur var að útskrif­ast í klass­ískum gítar og ég í selló­leik.

Úr varð að við sendum demo á útgef­anda sem bauð okkur samn­ing. Sam­starfið varð strax sterkt og má segja að fyrsta platan hafi slegið í gegn hjá gagn­rýnendum og hlust­endum.“

 Funduð þið ykkur fljót­lega ykkar tón og þá átt sem þið vilduð fara í?

„Já, það má segja það. Við blönd­uðum saman klass­ískum tón­smíðum og hljóð­færum við raf­magn og tölvur. Lögin voru fjöl­breytt en stíll­inn alltaf metn­að­ar­fullur.

Stúdíóin voru okkar tón­list­ar­eld­hús þar sem við blönd­uðum saman þessum ólíku elem­entum. Líkt og raf­magn með plús og mínus varð útkoman sterk­ari vegna þess að við leyfðum okkur að tengja saman þessa ólíku þætti.“

 Og þá er komið að þeirri klass­ísku spurn­ingu sem tón­list­ar­menn þurfa oft að glíma við: Er hægt að skil­greina tón­list Tod­mobile?

„Ég læt öðrum um það, en er meira fyrir að fara út fyrir boxið og sprengja upp hefð­bundnar skil­grein­ingar.“

Frá upp­hafi varð Tod­mobile ákaf­lega vin­sæl hljóm­sveit og ég spyr Eyþór um vel­gengn­ina, plöt­urnar og öll vin­sælu lögin.

Þetta hlýtur að hafa verið skemmti­legur og krefj­andi tími?

„Já, þetta var ógleym­an­legur tími. Sprakk út má segja. Náðum til fjöl­breytts hóps og spil­uðum þegar mest var yfir 100 sinnum á einu ári.

Ég var byrj­aður í fram­halds­námi í selló­leik og tón­smíðum í Amster­dam þegar hljóm­sveitin sló í gegn. Það varð til þess að ég frestaði þeim „kar­ríer“ og hellti mér í tón­list­ina með Tod­mobile heima.“

 Eyþór, nú ert þú kom­inn aftur, hvað kom til?

„Við  komum saman árið 2003 með Sin­fón­í­unni í Laug­ar­dals­höll og svo aftur 2006 þegar við tókum upp plötu í Barcelona, en síðan 2007 hef ég ekki komið fram á tón­leikum með Tod­mobile.

Þor­valdur hefur verið mik­il­virkur í tón­list­ar­líf­inu með stór verk­efni og hann hafði sam­band við mig í haust og stakk upp á end­ur­komu í Eldborg. Mér fannst það frá­bær hug­mynd og við náðum að halda tón­leika í Hörpunni einmitt þegar grímu­skyldan var ekki virk. Það var sann­ar­lega grímu­laus gleði.

Nú ætlum við að end­ur­taka leik­inn í HOFi á Akureyri á laug­ar­dag­inn kemur. Það er boðið upp á hrað­próf. Og ein­staka tón­leika.“

 Sérðu fyrir þér í fram­tíð­inni að Tod­mobile taki upp lög og gefi út og haldi marga tón­leika?

„Maður á aldrei að segja aldrei. Það hefur sagan sannað.

Eitt er víst að þetta var ótrú­lega skemmti­leg upp­lifun fyrir okkur og ekki var annað að sjá og heyra en að áhorf­endur væri á sömu bylgju­lend. Við höfum ekk­ert ákveðið annað en HOF á laug­ar­dag.“

 En hvað með sjálfan þig og tón­list­ar­fram­tíð­ina? Hefurðu til dæmis ein­hvern tím­ann hugsað um að gefa út sóló efni?

„Ég hefði áhuga á að taka upp þráð­inn í klassík­inni sem ég skildi eftir í Hollandi fyrir löngu.

Ég samdi fyrir sin­fón­íu­hljóm­sveitir, leik­hús og kvik­myndir þegar ég var á kafi í tón­list­inni.

Í dag spila ég á selló og píanó og myndi vilja koma ein­hverju af því efni frá mér. Svo er alltaf sterkur strengur milli okkar í Tappa Tík­arrassi og höfum líka samið ný lög saman sem koma kannski í ljós á nýju ári.“

 Jæja, að lokum Eyþór, við hverju mega áhorf­endur eiga von á frá ykkur á kom­andi tón­leikum á laug­ar­dag­inn á Akureyri?

„Mikilli spil­a­gleði. Svo mikið er víst.

Þeir lista­menn sem skipa Tod­mobile í dag eru um margt ólíkir, en eiga eitt sam­eig­in­legt. Og það er að gefa af sér. Það verður ekk­ert gefið eftir. Því get ég lofað.“

Tón­leikar Tod­mobile verða á Akureyri í Hofi á laug­ar­dag­inn og hefj­ast klukkan 20.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina