Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hildur Oddsdóttir var með anorexíu 17 ára: „Mér fannst ég vera að fitna ef ég sat bein“

Hildur Oddsdóttir var með anorexíu 17 ára: „Mér fannst ég vera að fitna ef ég sat bein“

Jóla­sveina­hjálp­ar­kokkar voru stofn­aðir 7. des­em­ber 2016 sem per­sónu­legt verk­efni á vegum Hildar Odds­dóttur en undir vernd Pepp Ísland, gras­rótar fólks í fátækt. Hildur Odds­dóttir sem er ein­stæð tveggja barna móðir sem þekkir fátækt aðeins of vel á eigin skinni, hafði þá starfað með sam­tökum gegn fátækt um nokkurn tíma og m.a. farið fyrir hönd Íslands til Brussel á ráð­stefnu um mál­efni tengd fátækt innan Evrópu. Starfið varð henni sú anda­gift sem þurfti til að fara út fyrir þæg­ind­arrammann og eftir að hafa skapað þetta verk­efni tókst henni að styðja við 120 börn strax fyrstu jólin. Verk­efnið óx hratt og vatt upp á sig með hverjum jólum síðan sem varð til þess að stofnað hefur verið form­legt félag með sér kenni­tölu, sjálf­stæðri stjórn og bók­haldi til að hafa allt eins lög­legt og gagn­sætt og hægt er svo að þeir sem styrkja verk­efnið geti treyst okkur og okkar starfi. Stjórnin er skipuð af fólki sem allt þekkri fátækt á eigin skinni og hafi því þekk­ingu á og skiln­ing á mál­efn­inu.

Og nú, árið 2021, eru Jóla­sveina­hjálp­ar­kokk­arnir til­búnir í slag­inn. Margir koma með hlut­ina beint til Hildar svo sem bækur, sæl­gæti og leik­föng en stundum tengir hún þá sem þurfa aðstoð og þá sem gefa. Á meðal þeirra sem leita eftir aðstoð í gegnum síð­una eru til dæmis ein­stæðar mæður, öryrkjar og jafn­vel hjón sem bæði eru úti­vinn­andi en sem eru á lágum launum.

Stjórnin er skipuð af fólki sem allt þekkri fátækt á eigin skinni og hafi því þekk­ingu á og skiln­ing á mál­efn­inu.

Var 42 kíló

Lífsleið Hildar hefur verið þyrnum stráð og þekkir hún fátækt og aðra erf­ið­leika á eigin skinni. Æskuárin voru erfið þar sem byrjað var að leggja hana í ein­elti 12 ára gamla þegar ný stelpa byrj­aði í skól­anum sem fór að bera út sögur um Hildi og þá hófst stríðnin. Hildur er les­blind, var með námsörð­ug­leika og barna­floga­veiki og fór hún í kjöl­farið að finna fyrir þung­lynd­is­ein­kennum, meðal ann­ars út af ein­elt­inu, og sjálfs­traustið varð lítið. 13 ára var hún send í ung­linga­at­hvarf.

Hún var 17 ára þegar hún fékk anor­exíu og var 42 kíló þegar hún var létt­ust. Suma daga borð­aði hún ekki neitt og blæð­ingar hættu um tíma. Hún var send til sál­fræð­ings og eftir það fór ástandið að lag­ast.

„Ég borð­aði til dæmis ristað brauð og cornflakes en þetta var ein­hæft fæði. Ég borð­aði stundum einu sinni á dag og stundum ekk­ert suma dag­ana og ég sat alltaf í kuð­ung því mér fannst ég vera að fitna ef ég sat bein. Hugsunin var alveg í botni hjá mér; það klikkar eitt­hvað hjá manni þegar maður er í svona ástandi. Ég var ekk­ert söm og blæð­ingar hættu um tíma.Það var reynt að taka fram fyrir hend­urnar á mér og það var svo­lítið stríð. Ég var send til sál­fræð­ings og mér fannst hann vera eitt­hvað gúgú í koll­inum. Svo sett­ist ég niður með for­eldrum mínum sem höfðu kynnt sér málið og þá settu þau fót­inn niður: Mér var sagt að ann­að­hvort ynni ég með þeim eða þau myndu leggja mig inn. Besta vin­kona mín setti líka fót­inn niður og hún hjálp­aði mér heil­mikið. Hún sat bara og setti mat á disk og sagði að ég fengi ekk­ert að standa upp frá borð­inu fyrr en ég væri búin að klára það sem væri á disk­inum. Það gerð­ist smátt og smátt en ég var ekki með neina mat­ar­lyst. Ég fór rólega af stað en maginn var við­kvæmur fyrir öllu.“Hildur segir að það hafi tekið sig tæpt ár að geta farið að borða eðli­lega.

Hugsunin var alveg í botni hjá mér; það klikkar eitt­hvað hjá manni þegar maður er í svona ástandi.

Svo kom upp erfitt, per­sónu­legt mál árið 2004, og segir hún að þá hafi heim­ur­inn hrunið og að hún hafi þá fengið tauga­á­fall. „Ég grét í tvo daga.“

Hún fór á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og fór í kjöl­farið í með­ferð á Hvít­bandi, sem er göngu­deild geð­deildar Land­spít­al­ans, og síðan fór hún í Hringsjá sem er náms- og starfsend­ur­hæf­ing.Hildur er greind með þung­lynd en hún er líka um þrá­hyggjuröskun og maníu en það síð­ast­nefnda teng­ist anor­ex­í­unni. Hún finnur þó ekki fyrir man­í­unni í dag. Þá hefur hún nær alla tíð verið með gigt með til­heyr­andi verkjum. Hildur fór svo á örorku­bætur árið 2005.

Synirnir eru tveir, 19 ára og átta ára og hefur Hildur reglu­lega sótt aðstoð til Mæðra­styrks­nefndar, Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands og Hjálp­ar­stofn­unar kirkj­unnar til að fá mat og aðra aðstoð, til dæmis varð­andi fatnað, skóla og ferm­ingu.

„Ég fór fyrst til mæðra­styrks­nefndar árið 2002 þegar ég var í fæð­ing­ar­or­lofi. Fyrstu skrefin voru erfið; það má líkja þessu við að mér hafi fund­ist þung lóð vera föst á ökklunum. Skömmin var svo mikil að kvíð­inn yfir­tók mann. Ég þurfti að setja sjálfs­traustið algjör­lega til hliðar. Það var nátt­úr­lega heil­mik­ill pakki að taka þessi skref.“

Ég fór fyrst til mæðra­styrks­nefndar árið 2002 þegar ég var í fæð­ing­ar­or­lofi.

Pepp eru sam­tök fólks í fátækt og eru öllum opin sem hafa reynslu af fátækt og félags­legri ein­angrun og vilja taka þátt í öfl­ugu starfi til að breyta aðstæðum fólks sem býr við fátækt og við­horfum sam­fé­lags­ins til þess. Pepp starfar með jákvæðni og vald­efl­ingu sem meg­in­mark­mið og gengur út á að fólk sem býr við fátækt sæki vald­efl­ingu í að tala sínu eigin máli á opin­berum vett­vangi og aðstoða aðra í svip­uðum aðstæðum.

Hildur, sem er í sam­tök­unum Pepp, við­ur­kennir að það að standa á bak við fyrr­nefnda söfnun Jóla­sveita­hjálp­ar­kokk­anna auki sjálfs­traust hennar. „Þetta gefur mér að ég get gefið eitt­hvað sjálf til baka. Ég fæ aðstoð en ég get aldrei gefið það sama til baka en þarna get ég gefið til baka með því að hjálpa öðrum sem eru í sömu sporum.“

Þetta gefur mér að ég get gefið eitt­hvað sjálf til baka.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við