Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Valur segir það gæfuspor að hafa ekki komist inn í leiklistarskólann: „Hilmir Snær er Rollsinn“

Valur segir það gæfuspor að hafa ekki komist inn í leiklistarskólann: „Hilmir Snær er Rollsinn“

Leik­ar­inn geð­þekki, Valur Freyr Ein­ars­son, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.

Valur starfar nú við Borg­ar­leik­húsið, þar sem hann bæði leikur og semur, en næst­kom­andi mars verður einmitt verk úr hans smiðju frum­sýnt í Borg­ar­leik­hús­inu.

Sýningin ber nafnið Fyrr­ver­andi og er henni lýst sem mylj­andi fyndnu og hjart­næmu verki sem speglar flókið fjöl­skyldu­líf og sam­bönd nútím­ans á þann hátt að allir geta fundið sam­hljóm við sína eigin grát­bros­legu til­veru.

Þá hefur Valur leikið í tugum íslenskra sjón­varps­þátta og í bíó­myndum á borð við Von­ar­stræti og Undir trénu.

Hljómþýð rödd hans er einnig án efa flestum lands­mönnum löngu kunn, enda hefur Valur ljáð ófáum karakt­erum rödd sína í hinum ýmsu bíó­myndum og þáttum.

Mannlíf komst meðal ann­ars að því að Valur á það til að ofhugsa hlut­ina, hann elskar nor­rænt drama og jóla­mat­ur­inn á hans heim­ili er hægeld­aður dádýrsvöðvi.

Fjöl­skyldu­hagir? Giftur með fjögur börn og einn kött.

Menntun/atvinna? BA í leik­list frá MMU í Manchester. Leikari við Borg­ar­leik­húsið.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Norrænt drama og góðar heim­ilda­myndir um magn­aða lista­menn.

Leikari? Þeir eru margir en af íslenskum leik­urum Hilmir Snær, hann er Rollsinn. Ég er hrif­inn af breska skól­anum svo það eru margir breskir leik­arar til dæmis Ralph Fiennes , Colin Firth, svo þeir dönsku að sjálf­sögðu eins og Nikolaj Lie Kaas og Trine Dyrholm.

Rit­höf­undur? Þeir eru líka margir. Auður Ava, Halldór Laxness, Murakami, Bragi Ólafsson, Fríða Ísberg bara svo ég nefni það sem er á nátt­borð­inu.

Bók eða bíó? Það fer eftir stuði, hvort tveggja myndi ég segja.

Besti matur? Jóla­matur Ilmar minnar, hægeld­aður dádýrsvöðvi.

Kók eða Pepsí? Hvorugt.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Þórsmörk og Skafta­fell.

Hvað er skemmti­legt? Að hitta góða vini og sjá/heyra góða list.

Hvað er leið­in­legt? Kóvíd.

Hvaða flokkur? End­ur­vinnslan.

Hvaða skemmti­staður? Eru þeir enn þá til?

Kostir? Það er nú ann­arra að segja til um þá, en ég heyrði um dag­inn frá hár­greiðslu­fólki leik­húss­ins að ég væri með gott hár og fal­lega hár­línu. Það gladdi mig vand­ræða­lega mikið.

Lestir? Hrað­lestir. Ég er með smá þrá­hyggju, ofhugsa hlut­ina stundum.

Hver er fynd­inn? Saga Garðars, Eggert Þor­leifs­son og Grettir Valsson.

Hver er leið­in­legur? Trump og hans líkar um allan heim.

Trúir þú á drauga? Já, þeir eru víða.

Stærsta augna­blikið? Fæðing barn­anna okkar. Það eru fjögur augna­blik sem ekki er hægt að gera upp á milli.

Mestu von­brigðin? Ég varð fyrir miklum von­brigðum með að kom­ast ekki inn í leik­list­ar­skól­ann á sínum tíma, en það reynd­ist svo gæfu­spor.

Hver er draum­ur­inn? Að halda góðri heilsu og geta haldið áfram að vinna við það sem ég elska og að börnin mín blóm­stri í öllu því sem þau eru að gera.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að ná að klára leik­rit sem ég var að skrifa. Það heitir Fyrr­ver­andi og verður í Borg­ar­leik­hús­inu eftir ára­mót.

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Nei. Ég er rétt að byrja, ég er svo sein­þroska.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Mjög sjaldan þegar ég þarf á þeim að halda. En ég var lím­heili á brand­ara sem barn.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég kom sól­ar­hring of seint á flug­völl­inn með alla fjöl­skyld­una á leið í sum­ar­frí.

Sorg­leg­asta stundin? Að missa mömmu, hún fór allt of snemma. Við áttum eftir að spjalla svo mikið.

Mesta gleðin? Að kynn­ast Ilmi, það er gjöf sem gefur alla daga.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að halda utan um þá sem maður elskar, gefa af sér í leik og starfi og reyna að halda í gleð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una