Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Katrín Edda hefur farið á hnefanum í gegnum lífið: „Þetta var bara dæmi um virkilega sjúka ást“

Katrín Edda hefur farið á hnefanum í gegnum lífið: „Þetta var bara dæmi um virkilega sjúka ást“

Katrín Edda Þor­steins­dóttir véla­verk­fræð­ingur hefur þurft að fara á hnef­anum margoft í gegnum lífið. Hún hefur unnið við fjöl­mörg störf með námi, tekið þátt í fit­nesskeppnum og ferð­ast mikið.

Eftir mikla sjálfs­vinnu vegna and­legs ofbeld­is­sam­bands gaf Katrín sér loks­ins tíma til að hugsa um hvað hún vill gera, þar á meðal að gefa út sína fyrstu bók, dag­bók, sem hún byggir á eigin reynslu.

Katrín segir að þegar hún líti til baka hafi mik­ill óstöð­ug­leiki í upp­vext­inum ekki haft góð áhrif á hana. Hún og móðir hennar áttu ekki gott sam­band á þessum tíma, en eru mjög góðar vin­konur í dag.

„Ég var alltaf mjög metn­að­ar­full með lær­dóm­inn en í alls konar rugli að öðru leyti og sagði mömmu aldrei satt um það hvar ég væri. Ég hékk með krökkum sem voru reglu­lega að taka eit­ur­lyf og próf­aði ýmis­legt sjálf þegar ég var bara 13 ára, sem er eitt­hvað sem ég myndi aldrei nokkurn tíma gera í dag.

Ég var með mjög ýktan per­sónu­leika, ann­að­hvort á yfir­snún­ingi eða þá ótrú­lega leið og óham­ingju­söm. Mér fannst ég alltaf feit, hræði­leg og ljót og pass­aði mig að segja mér það nægi­lega oft þar sem mér fannst fólk með sjálfs­traust og ánægt með sjálft sig bara vera hroka­fullir fávitar.

Mér hefði aldrei dottið í hug að segja að ég væri góð í ein­hverju, mér var sjaldan hrósað heima fyrir og ein­hvern veg­inn alltaf í leit að við­ur­kenn­ingu. Mamma er mikið menntuð og ég horfði upp til hennar að því leyti að ég vildi alltaf mennta mig.

Ég deildi aldrei neinu með for­eldrum mínum á þessum tíma, sem gerði mér heldur alls ekki gott og það vant­aði eitt­hvað upp á til að byggja traust milli okkar. Ég var kannski ekki vand­ræðaung­lingur en samt mjög týnd og skrif mín á þessum tíma sýna það vel.

Með mömmu sem íslensku­fræð­ing og pabba sem rit­höf­und hef ég alltaf haft gaman að því að skrifa en skrif um sjálfs­vígs­hugs­anir, sorg­leg ljóð um kvöl og pínu, að ég vildi hverfa, sofna og aldrei vakna aftur, segja mikið til um þá van­líðan sem ég fann fyrir á þessum tíma.“

Í upphafi sveipaði hann mig með rómantík

Katrín var ein­hleyp í átta mán­uði eftir að hún sleit sam­band­inu við íslenska kærasta sinn og kynnt­ist frönskum vinnu­fé­laga sínum í Stutt­gart, sem varð kærast­inn hennar og við tók þriggja ára erfitt sam­band.

„Á þessum slæma tíma þegar ég var ein­mana og leið illa kynnt­ist ég honum. Í upp­hafi sveip­aði hann mig með róm­an­tík og gjöfum og sagð­ist elska hvað ég væri fal­leg og flott. Hann missti íbúð­ina sína stuttu eftir að við byrj­uðum að vera saman og flutti stuttu síðar inn til mín sem voru mikil mis­tök,“ segir Katrín, sem seg­ist fljót­lega hafa tekið eftir hlutum þá sem ekki þóttu eðli­legir, eins og að hann tal­aði niður til hennar og hennar áhuga­mála, hún mátti ekki snerta hans hluti, þar á meðal ekki keyra bíl­inn hans og hann treysti engum og engu.

„Honum fannst sam­fé­lags­miðlar hræði­legir og gagn­rýndi mig alltaf ef ég vildi taka myndir af mér. Ég mátti ekki tala við vini mína, það sem ég borð­aði var ekki alvöru­matur og þættir sem ég horfði á voru að gera mig heimska. Hann tal­aði oft um hversu óham­ingju­samur hann væri, oft vegna mín eða vegna katt­anna minna, og kom stundum heim úr vinnu, sagði ekki orð og fór upp í rúm og svaf til næsta dags. Svo tal­aði hann mögu­lega ekki við mig svo dögum skipti út af ein­hverju sem ég hafði að hans mati gert rangt.

Ef ég gat lagað eitt­hvað sem hann taldi vanda­mál, þá bjó hann bara til önnur vanda­mál og skrif­aði þau á lista. Hann kom einu sinni með til Íslands og á degi tvö hætti hann að tala við mig og varð þög­ull. Þegar ég spurði hann hvers vegna sagði hann að við myndum ræða saman þegar við kæmum aftur til Þýska­lands.

Þá var hann far­inn að skrifa hjá sér eitt­hvað sem ég sagði, gerði eða annað sem honum mis­lík­aði. Þetta fór þó aldrei út í lík­am­legt ofbeldi. Þetta var bara dæmi um virki­lega sjúka ást og allt sem ég er að þylja upp núna sá ég ekki fyrr en seinna þegar ég fór að líta til baka yfir sam­band okkar,“ segir Katrín, sem var byrjuð að fá kvíða­köst vegna sam­bands­ins.

„Eftir að ég opn­aði mig um þetta var ég oft spurð að því hvers vegna ég hag­aði mér eins og allt væri í lagi á sam­fé­lags­miðlum en málið er að ég var blind á þetta þegar á sam­band­inu stóð. Ég ein­blíndi bara alltaf á það jákvæða, fann til með honum og var svo viss um að ég gæti gert hann ham­ingju­saman.“

„Á þessum tíma sá ég ekki að ég var farin að úti­loka mig frá öðrum, hætt að birta myndir af mér eða færslur, hætt að mæta í rækt­ina, fór að þyngj­ast og leið illa. Hann fór til Frakk­lands í þrjár vikur og á þeim tíma fann ég hvað mér leið vel án hans að mega gera það sem ég vildi og  sá að við yrðum að hætta saman.

Og svar hans við því var bara: „Já, þú getur ekki gert mig ham­ingju­saman.“

Við hættum saman í júlí 2018 og ég var mjög lengi brotin eftir hann og átti erfitt með að treysta aftur,“ segir Katrín, sem kynnt­ist núver­andi kærasta sínum án þess að vera nokkuð að leita að sam­bandi.

Allt upp á borðum og mjög afslappað

„Fyrst þegar við hitt­umst förum við í göngutúr saman í róleg­heit­unum og töl­uðum svo kannski ekki saman í þrjár vikur áður en við hitt­umst aftur. Það var aldrei nein pressa en eftir sex mán­uði ákváðum við að vera saman.

Lífið er mjög ein­falt með Markúsi, allt upp á borðum og mjög afslappað. Eins og heil­brigð sam­bönd eiga að vera.“

Þá fór fyrri kærast­inn að hafa sam­band aftur þrátt fyrir að vera sjálfur kom­inn með nýja kær­ustu og stór­móðg­að­ist svo þegar ég sagð­ist komin í annað sam­band,“ segir Katrín og segir að oft sé talað um að and­stæður drag­ist hvor að annarri, en hún seg­ist ekki ætla þangað aftur. Hún og Markús eigi mjög vel saman og eru á sömu bylgju­lengd með flest sem er gott fyrir sam­bandið.

„Við lítum hvort upp til ann­ars, hann skráði sig í nám í tækni­fræði af því honum fannst ég svo dug­leg að hafa menntað mig. Hann útskrif­að­ist í vor og fór að vinna hjá fyr­ir­tæk­inu Trumpf sem fram­leiðir m.a. laser­tæki og er mjög metn­að­ar­fullur.

Hann hvatti mig til að byrja  í CrossFit en hann er sjálfur að æfa það. Þar kynnt­ist ég fleiri vinum og allt í einu var ég komin í alls konar hópa og hitt­inga, sem ég hafði ekki verið í áður. Ég fór að kom­ast í betra form og huga betur að matar­æð­inu, án þess að hafa haft það sér­stak­lega að mark­miði og líða mun betur. Núna er ég líka byrjuð að hlaupa og finnst það mjög gaman, eitt­hvað sem mér fannst hund­leið­in­legt áður.

Markús er líka rosa­lega dug­legur, góð­hjart­aður, elskar kett­ina mína og það er ein­hvern veg­inn aldrei neitt vesen. Lífið er bara mjög gott og ég fæ að vera eins og ég er og blómstra aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við