Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skotárásin sat lengi í borgarstjóranum: „Þetta tók meira á mig og mína en ég þorði að viðurkenna“

Skotárásin sat lengi í borgarstjóranum: „Þetta tók meira á mig og mína en ég þorði að viðurkenna“
Dagur B. Egg­erts­son.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri segir að skotárásin á heim­ili hans hafi haft gríð­ar­leg áhrif á fjöl­skyld­una. „Ef þú hefðir spurt mig í vor þá hefði ég lík­lega sagst vera að hætta. En ég ákvað að bíða með slíkar ákvarð­anir.“

Borg­ar­stjór­inn er í ítar­legu við­tali í helg­ar­blaði Frétta­blaðs­ins þar sem hann meðal ann­ars talar um skotárás­ina á heim­ili hans fyrr á árinu. „Skotárásin við heim­ili okkar Örnu fékk mikið á okkur. Mín ósjálf­ráðu við­brögð voru þá; ég er hættur, þarna eru mörkin. Ég get ekki boðið fólk­inu mínu upp á þetta. Hér verð ég að draga línu í sand­inn,“ og bætir hann við að þó að hann hafi fyrir löngu síðan hafa van­ist póli­tískri hörku, hafi þetta verið eitt­hvað allt annað.

Aðspurður í við­tal­inu hvort hann hefði bognað svar­aði Dagur því til að þetta hafi í byrjun verið fyrst og fremst áfall. „Þegar á leið fann ég hvað þetta varp­aði miklum skugga yfir svo margt. Já, þetta sat í mér og lagð­ist á mig eins og mara. Þetta tók meira á mig og mína en ég þorði að við­ur­kenna á meðan að málið reis hvað hæst í vor. Og skugg­inn af því fylgdi okkur inn í sum­arið.“

Dagur er spurður að því hvort hræðslan hafi setið lengi í honum eftir atvikið. „Hræðsla er kannski ekki rétta orðið. Ég stóð hins vegar sjálfan mig að því að horfa öðru­vísi út um glugg­ann á heim­il­inu en ég hafði áður gert. Ég upp­lifði ákveðið varn­ar­leysi. Það er óhuggu­legt í alla staði að vera hræddur heima hjá sér.“

Segir hann enn­fremur í við­tal­inu að þessi lífs­reynsla hafi verið gríð­ar­leg við­brigði því hann hafi, líkt og aðrir, trúað á gott og frið­samt sam­fé­lag. Reykja­vík eigi að vera þekkt fyrir það að hér getur fólk umgeng­ist og átt sam­töl á jafn­ingja­grund­velli. „Ég elska að ganga um götur og heilsa upp á fólk eða fara í heita pott­inn til að ræða málin og þannig sam­fé­lagi viljum við einmitt byggja, tala hvert við annað í augn­hæð, en hinn kost­ur­inn hefur bara verið svo frá­leitur, að finna ekki til öryggis á meðal fólks.“

Viðtalið birt­ist í heild sinni í helg­ar­blaði Frétta­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina