Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur gengið í gegnum ýmislegt síðustu árin líkt og flestir í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem þurft hefur að kljást við heimsfaraldur sem engan enda virðist ætla að taka.
Þegar mikið mæðir á ráðherra er gott að eiga góða aðstoðarmenn að og það veit Áslaug. Á Instagram síðu sinni birti hún eftirfarandi texta:
„Það er mikilvægt að vera umkringdur góðu og öflugu fólki. Það er ég svo sannarlega með þessa aðstoðarmenn. Við höfum gengið í gegnum ýmislegt síðustu tvö árin. Þau eru bæði ráðagóð, klár, sniðug og ekki síst skemmtileg. Það er ekki sjálfgefið að hafa með sér svona gott teymi.“































Athugasemdir