Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íslensk skip í gini úlfanna: „Og þá komu ljósrákirnar fljúgandi að skipinu með leifturhraða“

Íslensk skip í gini úlfanna: „Og þá komu ljósrákirnar fljúgandi að skipinu með leifturhraða“

Mann­skæð­asta sjó­slysaár Íslands­sög­unnar var fyrir 80 árum síðan – árið 1941, á tímum seinni heim­styrj­ald­ar­innar. Þá lést 141 Íslend­ingur í slíkum slysum á hafi úti, sem mörg hver tengd­ust hern­að­ar­á­tökum.

Reykjaborg

Í mars árið 1941 réð­ust þýskir kaf­bátar á þrjú íslensk skip; Reykja­borg, Fróða og Pétursey. Í árás­unum voru 28 sjó­menn sagðir hafa verið myrtir.

Í bók­inni Vígdrekar og Vopnagnýr eftir Friðþór Eydal sagn­fræð­ing, eru kaflar úr dag­bókum þýsku kaf­bát­anna U-552, U-74 og U-37. Þetta voru þeir kaf­bátar sem áttu að hafa gert árásir á ofan­talin skip.

Í dag­bók­ar­færslu U-552, sem réð­ist á Reykja­borg undir stjórn Erich Topps, kom eft­ir­far­andi fram:

Kl. 20.52 skaut bát­ur­inn einu tund­ur­skeyti að skip­inu en það sprakk ekki.

Fyrsta skotið reið af á 800 m færi. Annað skotið hæfði mastrið sem féll við og þar með tal­stöðv­ar­loft­netið.

Sjó­slysa­saga Íslands segir svo frá upp­hafi árás­ar­innar: Allt í einu flugu eld­bloss­arnir með­fram skip­inu og dóu út í myrkrið fyrir aftan það. Hvað var þetta? Eins og ósjálfrátt slökkti Sigurður á sígar­ett­unni og í þög­ulli eft­ir­vænt­ingu skimuðu þeir félagar út um brú­ar­glugg­ana.

Þeim datt fyrst í hug flug­véla­árás, en átt­uðu sig strax á því að svo gat ekki verið. Stefna ljós­rák­anna hafði verið þannig. Ásmundur stýri­maður kom nú aftur upp í brúna og spurði hvað um væri að vera. Þeir sögðu honum frá ljósa­gang­inum og hann ákvað þá að fara niður og vekja skip­stjór­ann.

Í sömu svifum yfir­gaf Sigurður kynd­ari einnig brúna og hélt niður í vél­ina. Eyjólfur var einn eftir í efri brúnni. Og þá komu ljós­rák­irnar fljúg­andi að skip­inu með leift­ur­hraða öðru sinni. Nú var ekki lengur um að vill­ast. Það var kaf­bátur sem var að skjóta á skipið, og hann hlaut að vera mjög nærri.

Í þriðju hrin­unni hittu þeir brúna. Kúlurnar fóru allt í kringum Eyjólf sem eins og ósjálfrátt kastaði sér niður og hnipraði sig saman. (Heimild: Morg­un­blaðið)

Reykja­borg var stærsti tog­ari Íslend­inga á þessum tíma, 685 br. tonn. Áhöfnina skip­uðu þaul­vanir menn, allir meðal fær­ustu tog­ara­manna lands­ins. Tólf áhafn­ar­með­limir og einn far­þegi fór­ust í árásinni.

Fróði

11. mars 1941 kom skipið Fróði ÍS 454 til hafnar í Vest­manna­eyjum, mikið laskað eftir árás þýsks kaf­báts. Sá kaf­bátur sem gert hafði atlögu að Fróða var U-74, undir stjórn kaf­báta­for­ingj­ans Eitel-Friedrich Kentrat. Fimm úr áhöfn­inni fór­ust og í raun er talið að eina ástæðan fyrir því að Kentrat kaf­báta­for­ingi hafi ekki klárað að gera út af við skipið sé sú að hann hafi ótt­ast að Bretar væru að nota skipið sem agn, til að leiða U-74 í gildru.

Pétursey

Það var kaf­bát­ur­inn U-37 undir stjórn Asmus Nicolais Clausen sem sökkti skip­inu Pétursey. Lengi vel var ekki vitað um afdrif Pét­urs­eyjar, þó vissu­lega væri talið að skip­inu hefði verið sökkt. Það var þó ekki fyrr en í sept­em­ber sama ár að brak úr skip­inu fannst. Tíu fór­ust.

Hekla

Önnur mann­skæð árás þýsks kaf­báts á íslenskt skip var þegar eim­skip­inu Heklu var sökkt þann 29. júní sama ár, þar sem það var á sigl­ingu frá Reykja­vík til Halifax á Nova Scotia til að sækja mat­vörur.

Íslend­ingar lýstu yfir hlut­leysi í upp­hafi stríðs og þótt Bretar hafi her­tekið landið tók Ísland hvergi þátt í átökum. Það telst sér­lega grimmd­ar­legt að ráð­ast á skip sem siglir undir fána hlut­lausrar þjóðar, en í til­felli Heklu ef til vill enn frekar, þar sem það skip var ein­göngu ætlað til flutn­inga. Þjóð­verjar töldu þó að árásir þeirra ættu fullan rétt á sér, vegna þess stuðn­ings sem Bretar fengu frá Íslend­ingum eftir her­námið, við birgða­öflun og aðdrætti.

Í grein Jóns Hákonar Magn­ús­sonar í Sjó­manna­dags­blað­inu árið 2013, um það þegar Heklu var sökkt, segir meðal ann­ars eft­ir­far­andi:

Með Heklunni fórust 14 íslenskir sjómenn en sex komust við illan leik á fleka sem kanadískt her­skip fann á reki í ölduróti Norður-Atl­ants­hafs­ins nokkrum dögum eftir að skipið sökk. Vegna stríðsins gat her­skipið ekki til­kynnt mann­björgina fyrr en það kom til hafnar. Hern­að­ar­yf­irvöld sendu til­kynn­ingu til Íslands um örlög Heklunnar 16. júlí, eða rúmlega tveimur vikum eftir árásina. Útgerðin og fjölskyldur áhafn­ar­innar voru þá þegar farnar að hafa áhyggjur af skip­inu sem ekk­ert hafði heyrst frá.

Kafbátur­inn sökkti skip­inu með tund­ur­skeyti sem sprengdi það í loft upp með þeim afleið­ingum að það sökk á aðeins tveimur og hálfri mínútu. Annar björgun­arbátur­inn sundrað­ist en hinn komst aldrei á flot en þeir sem lifðu komust á björgun­arflek­ann.

Einar Oddur Kristjánsson skip­stjóri, Kristján Bjarna­son 1. stýrimaður
og Jón Hákon Kristjánsson 2. stýrimaður voru meðal þeirra sem fórust í þess­ari lúalegu árás þýska kafbátsins. Þeir sem komust af telja að yfir­menn­irnir hafi lok­ast inni í brúnni.

Úlfahjarðirnar

Ástæða árása Þjóð­verja á íslensk skip var sú að þeir vildu með öllum ráðum hindra birgða­flutn­inga til lands­ins eftir her­námið. Ráðamenn hér á landi höfðu treyst á að yfir­lýst hlut­leysi lands­ins myndi vernda íslensk skip fyrir árásum Þjóð­verja, enda höfðu Íslend­ingar aldrei sam­þykkt veru Breta (og seinna Banda­ríkja­manna) hér á landi – heldur var her­nám eina leiðin sem Banda­menn sáu færa til að tryggja sér hina hern­að­ar­lega mik­il­vægu stað­setn­ingu.

Því var reynt að koma í veg fyrir árásir á íslensk skip með því að merkja þau vand­lega með íslenska fán­anum. Fáninn var í mörgum til­fellum einnig mál­aður á hliðar skip­anna og lýstur upp að næt­ur­lagi til að vekja enn frek­ari athygli á þjóð­erni skip­anna. Allt kom þó fyrir ekki og Þjóð­verjar létu yfir­lýst hlut­leysið ekki koma í veg fyrir árásir eins og segir að ofan.

Alls sökktu kaf­bátar Þjóð­verja átta íslenskum skipum í seinni heim­styrj­öld­inni. Einnig sökktu þeir þremur erlendum leigu­skipum í þjón­ustu Eimskipa og einn bátur fórst af völdum tund­ur­dufls, svo vitað sé um.

Kaf­báta­hern­aður Þjóð­verja var áhrifa­ríkur og bát­arnir söfn­uð­ust gjarnan saman í hópa til að leggja til atlögu. Hóparnir voru kall­aðir úlfa­hjarðir og saman réð­ust hjarð­irnar á skipa­lestir. Úlfa­hjarðir þessar voru nán­ast óstöðv­andi og rifu í sig heilu skipa­lest­irnar með vel skipu­lögðum árásum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina