Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

María setti upp sýningu á Times Square í New York: „Ég var komin með smá heimþrá“

María setti upp sýningu á Times Square í New York: „Ég var komin með smá heimþrá“
Mynd. Skjáskot/RÚV

Lista­konan María Guðjohn­sen hefur verið á hraðri upp­leið innan lista­heims­ins, en hún var valin ein af 45 lista­mönnum til að vera með lista­verk á sýnd­ar­veru­leika sýn­ingu á Times Square í New York borg síð­ustu ára­mót.

María Guðjohn­sen er svo­kall­aður nýmiðl­un­ar­lista­maður/þrí­vídd­ar­lista­maður, en hún býr núna í New York borg.

Kanna möguleikana á milli raunveruleika og sýndarveruleika

María hefur sett upp sýn­ingar í New York, Reykja­vík og Berlín og gert til­raunir með mis­mun­andi miðla til að kanna mögu­leik­ana á milli raun­veru­leika og sýnd­ar­veru­leika.

María var lengi vel búsett í Berlín í Þýska­landi þar sem hún lærði graf­íska hönnun, en fyrir nokkrum árum færði hún sig alfarið yfir í þrí­vídd­ar­hönnun og hefur verið að starfa við það síð­ustu ár.

Í verkum Maríu eru sýndar útópískar vanga­veltur um hugs­an­legan veru­leika, inn­blásin af fram­tíð­inni, Sci-Fi og tölvu­grafík. Á meðal vöru­merkja sem hún hefur verið að vinna með eru; Adidas, Jagermeister, One Times Square og fleiri.

Verkið sem sýnt var á við­burð­inum á Times Square er þrí­víddar mynd­bands­verk.

Áramótin voru með öðru sniði 2020

Mynd. Skjáskot/New York Post.

Vanalega er mikið um dýrðir á Times Square í New York á gaml­árs­kvöld en hátt í milljón manns safn­ast sam­an á hverju ári á torg­inu og bíða eft­ir því að klukk­an slái 12 á mið­nætti til að taka á móti nýju ári. Vegna kór­ónu­veirunnar var hins vegar eng­inn fögn­uður ára­mótin 2020 á Times Square. Í stað­inn var sett upp sýn­ingin Virtual New Year’s Eve fyrir og var hún sýnd í beinu streymi. Ára­móta­bolti Times Square féll því án áhorf­enda í fyrsta skipti síðan árið 1907.

María segir það vera mik­inn heiður að hafa verið beðin um að taka þátt í þess­ari sýn­ingu, en banda­ríska lista­stúd­íóið Studio As We Are höfðu sam­band við Maríu í gengum Instagram og buðu henni að vera með.

„Þau höfðu verið að fylgj­ast með verk­unum mínum á Instagram og mér fannst það bara alveg geggjað þegar þau höfðu sam­band. Ég var búin að segja við kærast­ann minn að það væri draumur að sýna verkin mín einn dag­inn á Time Square þannig það var bara eins og því kalli hafi verið svarað þegar þau höfðu sam­band við mig,“ segir María.

María sendi lista­stúd­í­onu Studio As We Are nokkur verk og völdu þau svo hvaða verk myndi falla best inn í sýn­ing­una.

Ára­móta­sýn­ingin á Times square 2020 hét Virtual New Year’s Eve eins og fyrr segir, þar sem útbú­inn var sýnd­ar­veru­leika af Times Square svo að allir gætu notið við og fylgst með fögn­uð­inum, án þess að vera á staðnum.

María sagði í við­tali fyrir sýn­ing­una að það væri mikil til­hlökkun í henni; bæði að taka þátt í sýn­ing­unni og fylgj­ast svo með henni í beinni útsend­ingu á gamlárs­kvöld.

Ég vildi að raunheimurinn myndi virka þannig líka

Mynd. Skjáskot

María telur Instagram vera mik­il­vægan vett­vang fyrir lista­menn til að koma sér á fram­færi.

„Því miður er maður frekar háður þessum miðli sem lista­maður, sér­stak­lega í þessum þrí­víddar lista­geira, en ég fæ flest mín verk­efni út frá sam­fé­lags­miðlum. Það er stundum leið­in­legt að þetta sé eini stað­ur­inn til að koma sér á fram­færi, en þetta borgar sig líka oft. Eins og í þessu til­felli,“ segir María.

María lýsir list sinni sem eins­konar; „hið staf­ræna sjálfið sitt.“

„Þú skapar þinn eigin heim og þinn eigin per­sónu­leika án þess að þurfa að skuld­binda þig til nokk­urs. Ég vildi að raun­heim­ur­inn myndi virka þannig líka. Það er einmitt ástæðan fyrir því að þessi sýn­ing er til. Við lifum í staf­rænum heimi þar sem við tengjum raun­veru­leik­ann við staf­rænan heim.“

Í við­tali við þýska blaðið I-D sagð­ist María aldrei hafa dottið það í hug að tölvu­vinna væri eitt­hvað sem hún myndi enda með að vinna við. Hún sagði meðal ann­ars að: „það er mik­il­vægt að sjón­ar­horn kven­manna fái sinn sess í staf­rænni list. Því ég hef tekið eftir því þegar ég hef verið að leita að þrí­vídd­ar­lík­önum, þá finn ég bara konur með risa­stór brjóst og varir, en nú hafa loks­ins opn­ast nýir val­mögu­leikar.“

Sjálflærður þrívíddarhönnuður

María hefur vakið athygli fyrir þrí­vídd­ar­hönnun sína og hæfi­leika, þar sem hún skoðar milli­stigið milli raun­veru­leika og sýnd­ar­veru­leika í verkum sínum. Eins og fyrr segir lærði hún graf­íska hönnun í Berlín, en er ann­ars sjálf­lærður þrí­vídd­ar­hönn­uður.

„Ég kenndi mér eig­in­lega bara sjálf,“ segir María.

Hún hefur verið að vinna við stór verk­efni og gert samn­inga við fyr­ir­tæki á borð við Adidas og Jägermeister.

Adi­das kynnti nýja skó, byggða á eldri fram­leiðslu, í Berlín. Af því til­efni fékk fyr­ir­tækið 11 lista­menn til þess að búa til fram­tíðar­heim eft­ir eig­in höfði með til­vís­un til þess sem liðið er og var verkið sýnt sam­hliða skókynn­ing­unni.

„Adidas hafði sam­band við mig í gegnum Instagram, en ég set rosa mikið af því sem ég er að gera á Instagram. Þegar Adidas hafði sam­band þá hélt ég að það væri ein­hver að rugla í mér. Það var ótrú­lega skemmti­legt verk­efni. Þau voru með her­ferð þar sem þau voru að kynna skó. Þau fengu lista­fólk í Berlín til að setja upp sýn­ingu, sem ég tók þátt í, en ég var eini þrí­vídd­ar­hönn­uð­ur­inn,“ segir María.

Lista­menn­irnir fengu viku til að sinna sköp­un­inni í þar til gerðu og vel út­búnu hús­næði í Berlín. María seg­ir að nokkr­ir í hópn­um hafi áður unnið fyr­ir Adi­das en aðrir verið vald­ir handa­hófs­kennt.

Lista­menn­irn­ir unnu í þrem­ur hóp­um, einn í fata­hönn­un, ann­ar í tón­list og sá þriðji í mynd­list.

„Við höfðum al­ger­lega frjáls­ar hend­ur,“ seg­ir María, eini Íslend­ing­ur­inn í hópn­um og bæt­ir við að allt hafi verið til alls á staðnum og ímynd­un­ar­aflið hafi ráðið för.

„Þetta var mjög skemmti­legt og ég er bjart­sýn á að fá fleiri verk­efni frá Adi­das í nán­ustu fram­tíð.“

Var komin með smá heimþrá

„Mér finnst gaman að finna leiðir til þess að blanda raun­veru­leik­anum og sýnd­ar­veru­leik­anum saman. Úti hef ég verið að vinna með aðeins öðru­vísi pæl­ingar. Á einni hóp­sýn­ingu gerðum við karakt­era fyrir alla sem tóku þátt og bjuggum til rými milli raun­veru­leik­ans og sýnd­ar­veru­leik­ans. Þetta vorum við en samt ekki við.

Ég hef unnið mikið með þetta þema, en núna er ég búin að vera lengi úti og komin með smá heim­þrá. Eftir að ég kom aðeins heim fann ég hversu mikið mig langar að vinna með íslenska nátt­úru og elem­ent,“ segir María.

María seg­ist núna reyna að blanda þrí­vídd­inni inn í nán­ast allt sem hún gerir.

„Ég er orðin leið á öllu sem er í tví­vídd,“ segir María og hlær. „Það er hræði­legt því ég var að læra graf­íska hönnun. En maður byrjar að hugsa allt öðru­vísi eftir að maður byrjar að vinna við þrí­vídd. Maður fer að sjá hluti og hugsa á annan hátt. Ég hugsa alltaf í kringum hluti sem ég er að vinna með, maður þarf að pæla í öllum sjón­ar­horn­unum. Þetta breytir algjör­lega því hvernig maður hugsar.“

María til­heyrir nú hópi af öðrum þrí­vídd­ar­hönn­uðum sem deila saman áhuga á þrí­vídd­ar­hönnun.

„Ég kynn­ist alltaf fleirum og fleirum sem eru í þessu. Það er ótrú­lega sterkt sam­fé­lag í kringum þetta list­form. Og það er sér­stak­lega áber­andi úti hvað það er mikil menn­ing í kringum þrí­vídd­ar­hönnun. Hérna á Íslandi er þetta mun minna, það eru ekki margir í þessu sem list­grein.“

Það verður án efa spenn­andi að fylgj­ast með þess­ari hæfi­leik­a­ríku lista­konu í næstu verk­efnum.

Heim­ildir:

Marieke Fischer. 2019, 3. sept­em­ber. „Digi-Gxl Berlin ero­bert erst den virtu­ellen Raum und dann die physische Welt.“ I-D.

Steinþór Guð­bjarts­son. 2019, 12. ágúst. „Fram­tíð­ar­sýn Maríu með aðstoð Adidas.“ Morg­un­blaðið.

Urður Örlygs­dóttir. 2020, 29. des­em­ber. „Ís­lensk lista­kona með verk á Times Square um ára­mótin.“ Frétta­blaðið.

Zachary Kussin. 2020, 16. des­em­ber. „Times Square ball will drop without spectators for the first time since 1907.“ New York Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við