Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Biggi lögga blandar sér í sjóðheita umræðuna um kynferðisbrot: „Slíkt er aldrei í boði. Aldrei“

Biggi lögga blandar sér í sjóðheita umræðuna um kynferðisbrot: „Slíkt er aldrei í boði. Aldrei“

Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, hefur nú blandað sér inn í sjóð­heita sam­fé­lags­um­ræð­una um kyn­ferð­is­brot hér á landi. Hann telur að tekin hafi verið gíf­ur­lega mik­il­væg skref gegn þöggun sam­fé­lags­ins og segir svo mikið í húfi að ekki megi missa stjórn­ina á umræð­unni.

Biggi ritar skoð­una sína í langri færslu á Facebook. Við skulum hrein­lega gefa honum orðið og hér kemur færsla hans í heild sinni:

„Það skref sem sam­fé­lagið tók að færa kyn­ferð­is­brot inn í umræð­una var gíf­ur­lega mik­il­vægt. Það hefur breytt umræð­unni, opnað hana og við­ur­kennt alvar­leg brot á ein­stak­lingum sem áður voru þögguð. Ég er sann­færður um að þessi veg­ferð hafi og muni breyta því hvernig mögu­legir ger­endur hugsa og hegða sér í fram­tíð­inni og mun þannig forða fjölda fólks frá því að verða fyrir slíku ofbeldi og jafn­vel bjarga mans­lífum. Þetta hefur líka breytt kerf­inu sjálfu.

Það skiptir samt auð­vitað máli að við lærum líka hvernig við ræðum þessa hluti. Að við séum þakk­lát fyrir skrefin sem tekin hafa verið en þorum að vera gagn­rýnin á það sem við getum gert betur. Eitt af því sem við verðum að læra er hvernig börnin sjá þetta. Stærsti og við­kvæm­asti hóp sam­fé­lags­ins. Þau sem fædd­ust inn í heim sam­fé­lags­miðla og opin­berrar umræðu á net­inu. Þau eru að læra af okkur á meðan við erum sjálf að læra að ganga.

Börn geta líka verið ger­endur í ofbeld­is­málum hvort sem það er and­legt, lík­am­legt eða kyn­ferð­is­legt. Í þeim málum skiptir öllu að grípa inn í strax og aðstoða alla aðila, þolendur og ger­endur. Við höfum samt pínu kennt þeim að það sé eðli­legt og sam­þykkt að nafn­greina ein­stak­linga og taka þátt í að dreifa sögum af því sem ein­hverjir kunna að hafa gert. Þegar kemur að börnum er slíkt aldrei í boði. Aldrei. Þá verðum við alltaf að geta komið mál­inu hratt og örugg­lega í þann far­veg að hlut­að­eig­andi aðilar fái alla nauð­syn­lega aðstoð. Slík aðstoð er svo sann­ar­lega til staðar en hún fæst aldrei í gegnum sam­fé­lags­miðla og opin­bera umræðu. Með því að opin­bera við­kvæm mál sem við­koma börnum á slíkan hátt er aðeins verið að gera erfið mál enn erf­ið­ari fyrir alla. Ekki bara mögu­lega ger­endur, heldur líka þolendur, fjöl­skyldur þeirra, þá sem taka þátt í að dreifa upp­lýs­ingum, hóta, senda niðr­andi skila­boð og fleira.

Svona heit mál eru oft fljót að vinda upp á sig í umræð­unni. Auk reiði getur byggst upp mis­skiln­ingur, sann­leik­ur­inn jafn­vel breyst og þeir sem taka þátt finna sig undir pressu til að við­halda stöðu sinni og sann­fær­ingu. Hver ein­asti ein­stak­lingur, hvert ein­asta barn, sem snertir á mál­inu er allt í einu orð­inn þáttak­andi með ófyr­ir­séðum afleið­ingum.

Börnin okkar eru fram­tíðin en við erum að búa til gatna­kerfið í þess­ari fram­tíð. Þau börn sem brjóta á öðrum börnum þurfa umfram allt aðstoð, ekki refs­ingu. Þannig verður sam­fé­lagið okkar að virka. Því bið ég ykkur um að ræða þetta við börnin ykkar. Ef ein­hver brýtur á þeim eða ef þau telja sig vita að slíku máli verða þau að geta leitað til okkar eða ann­ars full­orð­ins ein­stak­lings sem þau geta treyst. Þau verða að geta komið mál­inu í réttan far­veg. Það er ekk­ert óeðli­legt að þau telji að hefnd eða opin­ber dreif­ing sé rétt leið. Þau sjá það í kringum sig. Við verðum að axla þá ábyrgð að koma þeim skila­boðum til þeirra að slíkt er aldrei lausn þegar önnur börn eða ung­lingar eiga í hlut. Slíkt er ein­ungis skað­legt og getur verið bein­línis hættu­legt. Og þið full­orðnu sem takið þátt í að hóta eða nið­ur­lægja börn vegna mála sem þið heyrið af eða teng­ist. Vin­sam­leg­ast hætti því nú þegar. Þið eruð ein­ungis að gera illt verra fyrir alla aðila og eruð að sýna ömur­legt for­dæmi.

Ef barn eða ung­lingur hefur orðið fyrir eða telur sig hafi orðið fyrir ein­hvers­konar ofbeldi eða áreitni þá er t.d. hægt fá aðstoð með því að;

-Hafa sam­band við 112 í gegnum síma, net­spjall eða appið.
-Hringja í neyð­ar­síma Rauða­kross­ins 1717
-Ræða við kenn­ara, skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ing eða starfs­mann félags­mið­stöðvar
-Hafa sam­band við Bergið headspace
-Senda ábend­ingu á barna­heill.is.

Það er einnig hægt að til­kynna ef ein­hver veit að kyn­ferð­is­legu ofbeldi eða vitað sé að ein­hver beiti því.

Það er of mikið í húfi til að við missum stjórn­ina á þessu. Tökum stjórn­ina saman og beinum þessu í réttan far­veg. Við erum alltaf að læra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina