Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hræðilegar lýsingar úr réttarhöldum yfir morðingja Freyju

Hræðilegar lýsingar úr réttarhöldum yfir morðingja Freyju

Rétt­ar­höld hófust í Árósum í dag klukkan 9 að dönskum tíma í dag (8 að íslenskum tíma) yfir Flemming Mogensen sem er ákærður fyrir að hafa myrt Freyju Egils­dóttur á heim­ili hennar í Malling á Jótlandi þann 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Flemming er ákærður fyrir að hafa kyrkt hana, að hafa síðan hlutað lík hennar í sundur og grafið lík­hluta í garð­inum.

Í vitna­stúku kom fyrstur Flemming Mogensen og stað­festi hver hann væri og að hann hefði rætt við verj­anda sinn. Því næst tók sak­sókn­ari til máls og fór hratt yfir ákæruna og rakti mála­vöxtu. Mála­vextir voru þannig að Flemming hefur verið sak­aður um að hafa orðið Freyju að bana með því að kyrkja hana og síðan hafi hann hlutað lík hennar í sundur með sög og grafið lík­hluta í garð­inum. Hann fór einnig yfir þær kröfur sem eru gerðar í mál­inu. Sak­sókn­ari fer fram á ævi­langt fang­elsi en verj­and­inn að Flemming verði vistaður ótíma­bundið í fang­elsi.

Því næst tók verj­andi Flemming til máls og sagði að skjól­stæð­ingur hans við­ur­kenni þau brot sem honum eru gefin að sök.

Því næst tók sak­sókn­ar­inn aftur til máls og rakti það sem fram fór þegar gæslu­varð­halds var kraf­ist yfir Flemming fyrr á árinu. Þar við­ur­kenndi Flemming að hafa kyrkt Freyju á heim­ili hennar í Malling. Ódæð­is­verkið átti sér stað í svefn­her­berg­inu. Hann sagð­ist hafa verið einn að verki og geti ekki skýrt af hverju hann drap Freyju. Því næst gekk hann um húsið í eina klukkku­stund og dró síðan lík Freyju inn á bað­her­bergi því hann hafði áhyggjur af að sonur þeirra, 10 ára, myndi koma heim.

Eftir nokkurn tíma sótti hann sög upp á loft en vildi ekki lýsa nánar hvernig hann bar sig að en hann sag­aði útlimi hennar og höfuð af.

Hann bar lík­hlut­ana upp á loft og setti í rusla­poka og faldi undir spónarplötum. Því næst fór hann og reyndi að þrífa bað­her­bergið. Hann yfir­gaf húsið einu sinni eða tvisvar áður en börnin komu heim. Í annað skiptið fór hann í göngutúr en í hitt skiptið að versla.

Þegar sonur hans kom heim um klukkan 15 fóru þeir feðgar að sækja yngri systur hans í skóla og síðan fóru þau í búð að kaupa í mat­inn.

Hann vissi að Freyja átti að mæta í vinnu á laug­ar­deg­inum og ákvað eftir mikla umhugsun að senda sms úr síma hennar og til­kynna veik­indi hennar. Bæði sendi hann sms til vinnu­fé­laga og á vinnu­stað­inn.

Þær hugs­anir bærð­ust í huga hans um að þeim mun lengri tími sem liði áður en upp­götv­að­ist að Freyja væri dáin, þeim mun lengri tíma hefði hann til að vera með börnum sínum. Á laug­ar­deg­inum og sunnu­deg­inum hélt hann áfram að senda skila­boð úr síma Freyju til að við­halda þeirri blekk­ingu að hún væri lif­andi. Á mánu­deg­inum fór hann með börnin í skóla og sótti síðan undir kvöld eftir að skól­inn hafði haft sam­band. Börnin spurðu hvar Freyja væri en hann sagð­ist ekki vita það. Þegar börnin voru sofnuð fór hann út og gróf afsög­uðu lík­ams­hlut­ana niður í garð­inum en skrokk­ur­inn lá enn uppi á loft­inu.

Á þriðju­dags­morgn­inum hringdi hann í lög­regl­una og til­kynnti hvarf Freyju og vissi þá að nú væri stutt í að upp um hann kæm­ist. Grunur myndi falla á hann vegna for­tíðar hans.

Hann grunaði að hún hefði haldið framhjá

Freyja sleit sam­bandi þeirra sum­arið 2020 og hann flutti úr hús­inu í Malling þann 1. sept­em­ber 2020. Sam­komu­lag þeirra var gott og gátu í sam­ein­ingu ann­ast börnin og héldu jól saman. Hún skýrði honum síðan frá því að hún ætti vin, mann sem hún hefði kynnst þegar hún var við nám. Flemming grun­aði að hún hefði haldið fram­hjá honum með þessum manni en því neit­aði hún. Hann reidd­ist síðan þegar Freyja fjar­lægði nafn hans af póst­kass­anum og sagði að þau myndu ekki umgang­ast í fram­tíð­inni.

Þegar sak­sókn­ari spurði Flemming af hverju hann drap Freyju sagði hann að margir sam­verk­andi þættir hafi átt hlut að máli. Hann sagð­ist hafa verið ósáttur við að þegar kom að pabba­helgi hefði Freyja ætlað að hitta vin sinn, hún hafi ekki sagt honum það en hann hafi grunað það. Hún hafi bara sagst vera upp­tekin.

Hann sagð­ist einnig hafa verið ósáttur við fram­komu Freyju við börnin og sagði að 2018 eða 2019 hafi hún löðr­ungað son þeirra.

Hann sagð­ist hafa farið heim til Freyju þann 29. jan­úar 2020 til að ræða við hana um stöðu mála, hann hafi verið ósáttur við að hann ætti að vera með börnin á meðan hún færi að hitta mann.

Þegar sak­sókn­ari spurði hann af hverju hann drap Freyju sagði Flemming að hann telji að and­legu ástandi hans sé um að kenna en bætti við að hann væri ekki sál­fræði­mennt­aður og gæti ekki tjáð sig um það fag­lega. Hvað nákvæm­lega varð til þess að hann drap Freyju sagð­ist hann ekki vita, ef hann vissi það hefði hann örugg­lega ekki orðið Freyju að bana.

Þegar sak­sókn­ari spurði hann hvort hann hefði talið að hann kæm­ist upp með morðið sagði Flemming að í fyrstu hafi hann kannski talið það en morðið frá 1995 hafi sótt á hann og hann séð fyrir sér að þetta mál færi eins.

Hann játaði

Sak­sókn­ari sagði að í fyrstu tveimur yfir­heyrsl­unum hafi Flemming neitað sök og það hafi ekki verið fyrr en í þriðju yfir­heyrsl­unni næstu nótt sem hann ját­aði og þá ekki fyrr en eftir að lög­reglan kynnti honum að hún hefði fundið lík­hluta í garð­inum. Þá sagði Flemming að hann hefði greini­lega ekki grafið þá nægi­lega djúpt og ját­aði að hafa orðið henni að bana.

Því næst spurði sak­sókn­ari hann hvað hann hefði lært af þeim dómi sem hann fékk 1995 fyrir morðið á Kristina Hansen. Hann sagð­ist telja að hann hefði ekki fengið nægi­lega sál­fræði­að­stoð síð­ustu 25 árin en þegar upp væri staðið hefði hann lík­lega ekki lært neitt af því máli.

Aðspurður sagði Flemming að Freyja hafi þekkt til for­tíðar hans áður en þau fóru að búa saman.

Verj­and­inn hafði engar spurn­ingar fyrir Flemming.

Fundu þrjá staði þar sem líkhlutar höfðu verið grafnir

Því næst fór sak­sókn­ari yfir ýmis máls­gögn, þar á meðal skýrslu lög­regl­unnar um til­kynn­ingu Flemming um hvar Freyju þar sem hann sagði að hann vissi hvar hún væri, hún hefði ekki sótt börnin þeirra eins og hún ætti að gera.

Einnig var skýrt frá fyrstu sam­tölum lög­regl­unnar við Flemming og frá­sögn hans.

Sak­sókn­ar­inn sagði að lög­reglan hafi fljót­lega talið að Flemming gæti verið við­rið­inn hvarf Freyju og að það hafi verið for­tíð hans sem gerði það að verkum.

Í skýrslum kom einnig fram að snjór hafi legið yfir garð­inum við húsið í Malling og lög­reglu­menn og leit­ar­hundar hafi fundið þrjá staði þar sem lík­hlutar höfðu verið grafnir. Um höfuð var að ræða, tvo hand­leggi og tvo fót­leggi.

Krufning leiddi í ljós að áverk­arnir á lík­inu voru veittir eftir að Freyja lést.

Hægt er að lesa frétt­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina