Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Frásögn Margrétar af misþyrmingum á fósturheimili: „Ofbeldið á þessu heimili er efni í heila bók.“

Frásögn Margrétar af misþyrmingum á fósturheimili: „Ofbeldið á þessu heimili er efni í heila bók.“
Margrét Esther Erlu­dóttir. Mynd/skjá­skot RÚV

Í ljósi umræð­unnar um hið alræmda barna­heim­ili á Hjalt­eyri vill Margrét Esther Erlu­dóttir, sem vistuð var á fóst­ur­heim­ilum í æsku, minna á sögu sína. Þessu greindi DV frá í gær­kvöldi.

Saga Mar­grétar var á sínum tíma skrá­sett af Evu Hauks­dóttur í Kvenna­blað­inu. Sömu­leiðis hefur Kveikur fjallað um mál hennar.

Margrét hefur um langa hríð barist fyrir því að fóst­ur­heim­ili sem hún var vistuð á verði tekin til rann­sóknar af Vist­heim­ila­nefnd, sem meðal ann­ars rann­sak­aði starf­semi Breiða­vík­ur­heim­il­is­ins og Kópa­vogs­hælis. Sama nefnd kaus að rann­saka ekki barna­heim­ilið á Hjalt­eyri. Hún segir að eng­inn munur sé á að verða fyrir ofbeldi á einka­heim­ili og á rík­is­reknu vist­heim­ili.

Margrét lýsir skelfi­legum aðstæðum og grimmi­legri með­ferð sem hún mátti þola á slíkum fóst­ur­heim­ilum.

„Ofbeldið og kúg­unin á þessu heim­ili er efni í heila bók. Það voru engar venju­legar refs­ingar sem við­geng­ust þarna; við vorum svelt og okkur var mis­þyrmt, við vorum t.d. lamin með hrossa­písk.  Ég á ein­göngu vondar minn­ingar frá þessum stað. Sem dæmi um með­ferð­ina var visku­stykki vafið um háls­inn á mér og ég látin hanga í því. Einu sinni var ég lamin með nagla­spýtu í bakið og bónd­inn nauðg­aði mér marg­sinnis. Fólk trúir þessu ekki. Ég sagði frá þessu heim­ili á Facebook og fékk það framan í mig að ég væri bara að ljúga þessu upp. En það vill svo til að það eru vitni að þessu og ég var ekk­ert sú eina sem var mis­þyrnt. Einn dreng­ur­inn var einu sinni ber­hátt­aður og lát­inn sitja í vatns­bala úti í kuld­anum fram á nótt. Þessi drengur fyr­ir­fór sér síðar.“

Datt ekki í hug að hægt væri að fá hjálp

„Við börnin, sem vorum vistuð þarna, töl­uðum stundum saman um það hvernig við gætum flúið en sím­tölin okkar voru hleruð og við vissum að okkur yrði refsað harðlega ef við reyndum að strjúka. Börn sem er farið svona illa með brotna niður. Manni datt ekk­ert í hug að það væri hægt að fá hjálp.“

Margrét segir að fólk hafi aug­ljós­lega haft vit­neskju um það ofbeldi og mis­þyrm­ingar sem við­geng­ust á heim­il­inu.

„Nágrann­arnir vissu samt að það var eitt­hvað mikið að á þessu heim­ili. Þegar hús­bónd­inn nauðg­aði mér í annað eða þriðja skiptið kom mað­ur­inn á næsta bæ að og stopp­aði hann. Þau voru öll á fylliríi og þessi nágranni kom að honum þar sem hann var að nauðga mér. Hann hrein­lega dró hann frá mér.“

Átaklega sögu Mar­grétar, skrá­setta af Evu Hauks­dóttur, má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina