Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Albert og Jakinn: „Það gerði hann með því skilyrði að Guðmundur vissi ekki hvaðan peningarnir kæmu“

Albert og Jakinn: „Það gerði hann með því skilyrði að Guðmundur vissi ekki hvaðan peningarnir kæmu“

Guð­mundur J. Guð­munds­son, alþing­is­maður og verka­lýðs­leið­togi, þáði sól­ar­landa­ferð að gjöf frá ráð­herr­anum Alberti Guð­munds­syni. Í ljós kom að gjöfin var í raun frá Haf­skipum og Eimskip. Sjálfur fékk ráð­herr­ann einnig utan­lands­ferð frá Haf­skipum. Málið skók Alþýðu­banda­lagið árið 1986.

Allt lék á reiði­skjálfi innan Alþýðu­banda­lags­ins árið 1986 eftir að upp­lýst var að sá harð­skeytti verka­lýðs­leið­togi og alþing­is­maður Alþýðu­banda­lags­ins, Guð­mundur J. Guð­munds­son, hefði þegið pen­inga­gjöf frá Alberti Guð­munds­syni iðn­að­ar­ráð­herra til að leita sér heilsu­bótar á sól­ar­strönd.

Gjöfina fékk Guð­mundur J. þremur árum fyrr. Málið var sér­stak­lega við­kvæmt vegna þess  að Guð­mundur var einn harð­skeytt­asti málsvari íslenskrar verka­lýðs­stéttar og tals­maður verka­fólks.

Guð­mundur, sem nefndur var Jaki, var þing­maður Alþýðu­banda­lags­ins, sem gerði stöðu hans enn við­kvæm­ari. Alþýðu­banda­lagið hafði staðið í log­andi átökum þegar þetta bætt­ist við.

Flokkur sós­í­alista lék á reiði­skjálfi.

Eftir harð­vítug átök tveggja fylk­inga, svo­kall­aðs lýð­ræð­is­hóps og ráð­andi afla, innan Alþýðu­banda­lags­ins komu þessar upp­lýs­ingar eins og sprengja inn í umræð­una.

Svavar Gestsson, for­maður Alþýðu­banda­lags­ins, hafði gert til­raun til þess að verða rit­stjóri á Þjóð­vilj­anum. Erling Aspelund, blaða­maður DV, lýsti þessu í frétta­skýr­ingu.

„Í síð­ustu viku blossuðu upp átök flokks­for­ystu við svo­kall­aðan and­ófs­hóp þegar Svavars Gestsson, for­maður flokks­ins, gerði til­raun til að taka sér sæti sem rit­stjóri á Þjóð­vilj­anum. Stuttu síðar, um síð­ustu helgi, dundi mál Guð­mundar J. Guð­munds­sonar alþing­is­manns sem reið­ar­slag yfir Alþýðu­banda­lags­menn alla,“ segir í blað­inu.

Átök flokks­for­ystu og and­ófs­hóps höfðu átt sér langan aðdrag­anda. Þar koma við sögu kunn­ug­leg nöfn. DV teikn­aði upp átaka­lín­urnar.

„Til ein­föld­unar má segja að á und­an­förnum miss­erum hafi orðið til hópur fólks innan Alþýðu­banda­lags­ins sem hefur nán­ast allt á hornum sér við for­ystu­sveit flokks­ins og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Hefur verið bent á þau Kristínu Á. Ólafs­dóttur vara­for­mann, dr. Ólaf Ragnar Grímsson, for­mann fram­kvæmda­stjórnar, Össur Skarp­héð­ins­son rit­stjóra og Óskar Guð­munds­son, fyrrum rit­stjórn­ar­full­trúa, sem helstu for­víg­is­menn þessa hóps.

Þetta fólk ku vera ósam­mála Svavari Gests­syni og þeim sem styðja hann um nán­ast allt sem við­kemur stefnu og skipu­lagn­ingu Alþýðu­banda­lags­ins. Þetta fólk vill lýð­ræð­is­legri flokk sem bygg­ist á þátt­töku hins almenna félaga, en ekki lok­aðan flokk sem lætur stjórn­ast af ákvörð­unum örfárra manna. Fyrir vikið hefur hóp­ur­inn fengið á sig stimp­il­inn „lýð­ræð­is­hóp­ur­inn“ eða „lýð­ræðiskyn­slóðin“ en hóp­ur­inn mun einkum sækja styrk sinn í raðir yngri félags­manna,“ segir í DV.

Rakið var að and­ófs­hópur Össurar og Ólafs Ragnars hafði lagt til atlögu gegn flokks­for­yst­unnni oftar en einu sinni. Rit­stjórn­ar­greinar og fréttir í Þjóð­vilj­anum voru and­snúnar  for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og flokks­ins. Gekk þetta svo langt að Guð­mundur J. Guð­munds­son sá sig til­neyddan til svara og lét birta skammar­greinar eftir sig í blað­inu þar sem rit­stjórnin var tekin á beinið.

Varð flokks­for­yst­unni þá nóg um og afráðið var að stokka upp í rit­stjórn Þjóð­vilj­ans. Það var í þessu and­rúms­lofti sem styrkja­mál Guð­mundar J. kom upp.

Auk þess að vera alþing­is­maður og for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins Dags­brúnar var Guð­mundur J. for­maður Verka­manna­sam­bands Íslands.

Hann við­ur­kenndi að hafa þegið eitt hund­rað þús­und krónur frá sjálf­stæð­is­mann­inum Alberti Guð­munds­syni, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, árið 1983. Guð­mundur útskýrði að hafa þegið pen­ing­ana til þess að geta leitað sér heilsu­bótar á Flórída eftir langvar­andi veik­indi.

Seinna kom á dag­inn að pen­ing­arnir áttu rætur sínar að rekja til skipa­fé­lag­anna Eimskips og Hafskipa. Þessi félög voru við­semj­endur Guð­mundar í samn­ingum verka­manna sem gerði málið allt miklu stærra. Rann­sókn­ar­lög­regla rík­is­ins ákvað að verða að ósk Guð­mundar um að taka þetta mál til sér­stakrar rann­sóknar.

Málið varð Guðmundi J. gríð­ar­lega erfitt.

Sjálfur sagð­ist hann ekki hafa vitað annað en pen­ing­arnir væru vin­ar­gjöf frá Alberti sem stað­festi þann vitn­is­burð verka­lýðs­leið­tog­ans.

Í við­tali við Þjóð­vilj­ann sagð­ist Albert hafa beðið Björgólf Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóra Hafskipa, um að leita til vina og kunn­ingja um að hjálpa Guðmundi J. að kom­ast í hvíld.

„Þetta gerði hann með því skil­yrði að Guð­mundur vissi ekki hvaðan pen­ing­arnir kæmu né hverjir stæðu að þessu,“ sagði Albert. Hann árétt­aði að hann hefði ekki sagt Guðmundi hverjir stóðu að því að hjálpa. Albert sagð­ist ekki hafa vitað til þess að Guð­mundur hefði fengið pen­inga frá Haf­skipum, Eimskip eða öðrum skipa­fé­lögum. Í öllu þessu máli kom síðan upp að Hafskip höfðu gefið fjár­mála­ráð­herra veg­lega upp­hæð til að hann kæm­ist í frí til Frakk­lands.

„Þeir buðu mér til útlanda í sam­bandi við sex­tugs­af­mæli mitt,“ sagði Albert á þessum tíma.

Ráð­herr­ann upp­lýsti að hann hafi kosið að fara til Nissa í Frakk­landi því þangað hefði hann þurft að fara í öðrum erindum. Hann sagð­ist ekki hafa spurt hvað ferðin kost­aði og mundi ekki hvort hún hefði verið farin árið 1984 eða 1985. Þjóð­vilj­inn upp­lýsti að íslenska ríkið greiddi ferðir ráð­herr­ans til Frakk­lands í lok maí árið 1984 og einnig árið 1985. Hvorug ferð­anna var því farin í boði Haf­skips­manna, nema þá að hluta.

Albert skýrði svo frá þessu máli á í októ­ber það sama ár. Ferðin til Frakk­lands var svo farin í maí 1984, ári eftir að hann tók við pen­ing­unum. Sama dag og Albert sagði Þjóð­vilj­anum að hann hefði ekki fengið aðrar greiðslur frá Haf­skipum en fyrr­greinda utan­lands­ferð upp­lýsti Helg­ar­póst­ur­inn að Albert hefði þegið ávísun frá sama fyr­ir­tæki að fjár­hæð 117 þús­und krónur. Kann­að­ist Albert strax við þessa ávísun og sagði að þarna hefði verið á ferð­inni eðli­leg afslátt­ar­greiðsla frá Haf­skipum til heild­versl­unar Alberts Guð­munds­sonar vegna frakt­flutn­inga.

Það sem mun hafa vakið athygli rann­sókn­ar­að­ila á þess­ari ávísun var það að Albert tók við henni tæpu ári eftir að hann lét af störfum og hefur aldrei verið sagt hverjir stóðu að þess­ari söfnun.

Blaða­maður Morg­un­blaðs­ins spurði Albert hvort hann hafi greint lög­regl­unni frá því við yfir­heyrslur að Guð­mundur hafi vitað hvaðan pen­ing­arnir komu og þá svarar Albert:

„Ég stað­festi það við yfir­heyrslur að Guð­mundur vissi ekki hverjir lögðu fram fjár­mun­ina, en ég var, að mig minnir, ekki spurður um það, hvort Guð­mundur vissi um að Björgólfur sá um söfn­un­ina.“

Eftir allt fjaðrafokið gleymd­ist þetta mál. Guð­mundur Jaki sat áfram sem þing­maður og verka­lýðs­leið­togi. Albert var áfram einn af ráða­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar til árið 1987 er hann sagði af sér ráð­herra­emb­ætti í fram­haldi þess að upp komst að hann hafði ekki talið fram greiðslur til skatts. Hann stofn­aði Borg­ara­flokk­inn í fram­hald­inu og var kos­inn á þing þar sem hann sat sem óbreyttur þing­maður. Víst er að þetta mál hafði sín áhrif til þess að hann klauf Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við