Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sandra Dís missti annað fóstrið og fylltist ofsageðshræringu: „Mér var aldrei boðin áfallahjálp“

Sandra Dís missti annað fóstrið og fylltist ofsageðshræringu: „Mér var aldrei boðin áfallahjálp“
Sandra Dís Sig­urð­ar­dóttir

Sandra Dís Sig­urð­ar­dóttir og eig­in­maður hennar, Sigmar Örn Aðal­steins­son, sem eru bændur á Suð­ur­landi, eign­uð­ust sitt fyrsta barn saman árið 2007. Sandra Dís átti fyrir stúlku sem fædd­ist árið 2005 sem Sigmar Örn ætt­leiddi svo og var Sandra Dís 18 ára þegar frum­burður hennar kom í heim­inn.„Hún kom eftir eðli­lega með­göngu og allt gekk vel nema fyrir utan grind­ar­gliðnun.“

Sandra Dís varð svo ófrísk tveimur árum síðar.„Með­gangan sem slík byrj­aði strax brös­ug­lega,“ segir Sandra Dís en á 11. viku missti hún fóstur. „Ég greip það á kló­sett­inu heima. Ég hringdi í ofsa­geðs­hrær­ingu upp á spít­ala þar sem mér var sagt að það væri ekk­ert við þessu að gera.“

Hún fór í són­ar­skoðun dag­inn eftir og þá komu í ljós tveir belgir; annar var tómur, þar sem fyrr­nefnt fóstur hafði farið út dag­inn áður, en í hinum var lif­andi fóstur. Hjónunum var sagt að útlitið væri ekki bjart og Sandra Dís spurð hvort hún myndi ekki vilja láta enda með­göng­una og svo gætu þau reynt að eign­ast annað barn.

Hún fór í són­ar­skoðun dag­inn eftir og þá komu í ljós tveir belgir; annar var tómur, þar sem fyrr­nefnt fóstur hafði farið út dag­inn áður, en í hinum var lif­andi fóstur.

„Ég afþakk­aði. Mér var boðið að ljúka þessu af því að það var klárt mál að þetta yrði ves­en­is­með­ganga og ég varð að taka ábyrgð á því hvort sem ég vildi halda áfram eða stoppa með­gög­una. Þegar maður vissi að þetta væri barn með tif­andi hjarta þá átti maður mjög erfitt með til­hugs­un­ina um að ljúka þessu og prufa svo aftur. Mér fannst það ekki vera nátt­úru­legt.“

Sandra Dís segir að það hafi alltaf verið blæð­ing frá belgnum sem hitt fóstrið hafði verið í sem þýðir að það blæddi það sem eftir var með­göng­unnar.

„Ég fór að fá mikla verki á 15. viku vegna þess að lík­am­inn var í raun að reyna að hreinsa sig og þar af leið­andi var stundum erfitt að ganga af því að verkirnir voru svo miklir en ég var svo þrjósk að ég ætl­aði að halda þessu barni. Á þeim tíma­punkti var mér sagt að liggja fyrir.

Mér var sagt á 17. viku að belg­ur­inn, sem fóstrið var í, væri orð­inn svo­lítið veikur vegna blæð­ing­ar­innar sem gerði það af verkum að belg­ur­inn þynnt­ist á þeim stað þar sem belgirnir lágu saman og að ég mætti búast við því að ég gæti misst vatnið hvenær sem væri. Ég fór út frá lækn­inum í „robot mode“ og ein­hvern veg­inn með­tók þetta ekki.“

Vatnið fór svo þegar Sandra Dís var gengin tæp­lega 24 vikur. „Eða akkúrat um mið­nætti, gengin þá slétt 24 vikur.

Ég fór á Land­spít­al­ann og fékk strax ster­a­sprautu og var okkur sagt að við ættum að vera undir það búin að barnið kæmi á næstu klukku­tímum.“

Sandra Dís fékk hríðir en fékk lyf til að stoppa sam­drætt­ina.

„Svo leið annar dagur og þá var ennþá mikið vatn að fara; ég vissi hrein­lega ekki að hægt væri að missa svona mikið vatn. Ég upp­lifði geðs­hrær­ingu á öðrum degi af því að þá fór ég að gera mér grein fyrir hvað væri í gangi og raun­veru­leik­inn var að skella á. Ég var sett í hjóla­stól og mér ekið á vöku­deild­ina, okkur var sýnd aðstaðan þar og okkur tjáð hverju við ættum von á. Þar sá ég pínu­lítil kríli sem voru að berj­ast fyrir lífi sínu. Andlega var ég orðin peppuð í að þetta myndi allt fara vel.

Svo leið þriðji dag­ur­inn og svo fjórði og aldrei kom barnið. Ég vissi þá ekki kynið. Ég var þá búin að fá tvær ster­a­sprautur. Mig minnir að ég hafi fjórum sinnum farið af stað á þessum tíma en mér voru alltaf gefin lyf til að stöðva sam­drætt­ina.“

Sandra Dís lá á sjúkra­húsi næstu níu vik­urnar og átti að hreyfa sig sem minnst.

„Þessar vikur voru svo­lítið magn­aðar. Fyrstu tvær vik­urnar voru lengi að líða en svo var það orðið að vana að liggja í sjúkra­rúmi. Ljós­mæð­urnar trill­uðu reglu­lega inn blóðprufu­kass­anum af því að ég þurfti að fara í blóðprufu á hverjum degi upp á sýk­ing­ar­hættu þannig að þetta var rútíneruð dag­skrá. Það var morg­un­matur í rúmið, hádeg­is­matur í rúmið og kvöld­matur í rúmið og það eina sem ég mátti gera var að fara á kló­settið, en ég þurfti nátt­úr­lega að spara þær ferðir, og svo fékk ég að fara í sturtu einu sinni í viku. Þess á milli var katta­þvottur. Þannig að í raun­inni var allt gert til að halda barn­inu inni eins lengi og hægt var.“

Sandra Dís segir að mynd­ast hafi himna yfir belg­inn. „Það seytl­aði vatn allan tím­ann og það blæddi svo sem en það náð­ist alltaf að mynd­ast pollur fyrir and­litið og boss­ann en fóstur þurfa nátt­úr­lega leg­vatn til að drekka og pissa. Þetta er hringrásin. Þannig að það náði í raun­inni að mynda nægi­legt leg­vatn á móti því sem ég missti en það var aldrei mikið. Við vorum undir það búin að höf­uðið myndi falla saman af því að það var ekk­ert vatn í kringum fóstrið þannig að hreyf­ing þess var voða lítil.“ Öll hreyf­ing fóst­urs­ins var sárs­auka­full fyrir Söndru af því að það var nán­ast ekk­ert vatn. „Það var engin mót­staða.“

Þannig að það náði í raun­inni að mynda nægi­legt leg­vatn á móti því sem ég missti en það var aldrei mikið.

Vikurnar liðu.

„Svo missti ég vatnið aftur með hvelli þegar ég var komin 32 vikur og ég gerði mér grein fyrir hvað væri að ger­ast og þá var útvíkkun byrjuð.“ Sandra Dís náði þó að ganga með í viku í við­bót og fædd­ist son­ur­inn, Arnór, þegar hún var gengin 33 vikur.

Nýfæddur

Mótefnaskortur og sjúkraþjálfun

Arnór var 2,2 kíló og 45 sentí­metrar að lengd þegar hann kom í heim­inn.

„Hann var ótrú­lega dug­legur. Hann átti erfitt með að anda sjálfur til að byrja með en hann fékk þó ekki súr­efni nema í tvo klukkku­tíma og svo var hann í hita­kassa fyrstu fjóra dag­ana og hann fór svo aftur í hita­kassa í ljós í þrjá daga og komst alveg úr kass­anum eftir viku. Hann var dúð­aður í ull­ar­föt til að hjálpa honum að halda á sér hita. Hann stóð sig vel á vöggu­deild­inni og fengum við að fara heim eftir þrjá og hálfa viku. Hann er eina barnið mitt sem var rosa­lega gott á brjósti þannig að brjósta­gjöfin gekk vel.“

Sandra Dís segir að þar sem sonur hennar er fyr­ir­buri hafi hann fengið mótefna­skort. „Hann fram­leiddi ekki nógu mikið af mótefnum þannig að hann var svo­lítið mikið las­inn sem unga­barn. Hann er 14 ára í dag og er enn með mótefna­skort en þó í öðrum flokki heldur en þegar hann fædd­ist en þetta gengur mjög vel hjá honum.“

Sandra Dís segir að sá mótefna­skortur sem sonur hann var með sem unga­barn teng­ist mótefnum sem verndar gegn til dæmis lungna­bólgu og eyrna­bólgu. „Hann var þar af leið­andi mjög við­kvæmur en um leið og hann fór af vöku­deild byrj­aði hann að veikj­ast; hann var þá ekki lengur í þessu vernd­aða umhverfi. Hann fór sex mán­aða á fyr­ir­byggj­andi sýkla­lyfja­með­ferð og var á henni þangað til hann var um þriggja ára. Hann lagð­ist reglu­lega inn á barna­spít­al­ann með alls konar veirur, flensur og lungna­bólgu. Hann var eig­in­lega alltaf með hita. Það var á tíma­bili pælt í hvort hann ætti að fá mótefna­gjöf en um leið og byrjað er á slíku þá er ekki hægt að snúa til baka. Í dag er hann með mótefna­skort sem teng­ist melt­ing­ar­veg­inum sem er við­kvæm­ari en ella.“

Hann fór sex mán­aða á fyr­ir­byggj­andi sýkla­lyfja­með­ferð og var á henni þangað til hann var um þriggja ára.

Sandra Dís segir að þar sem legvatnið hafi verið svo lítið á meðan hún gekk með Arnór hafi vöðvarnir í honum verið svo­lítið linir.

Heim­ferð­ar­dagur.

„Hann þurfti sjúkra­þjálfun og alls konar örvun til þess að virkja alla vöðva lík­am­ans. Hann var svo­lítið seinn að byrja að ganga og það var ekki fyrr en hann var tveggja ára sem var sagt að þá þyrfti að fara að gera eitt­hvað. Við skráðum hann í fót­bolta þegar hann var sex ára og það var ekki fyrr en þá sem hann fór að styrkj­ast almenni­lega því hann hafði brenn­andi áhuga á fót­bolta. Svo var hann svo­lítið lengi að læra að synda og þá skráðum við hann í sund fyrir tveimur árum og er hann alsyndur í dag. Hann þarf svo­lítið að hafa meira fyrir hlut­unum heldur en kannski margir aðrir. Mér finnst að það mætti hlusta meira á for­eldra þegar þeir ræða um ung­viðin sín sem eru fyr­ir­burar. Ég upp­lifði svo­lítið að það ætti alltaf að bíða með og sjá hvernig hlut­irnir þró­uð­ust. Ég er viss um að ef það hefði verið fyrr gripið inn í þetta hjá honum svo sem varð­andi sjúkra­þjálfun og annað þá hefði hann orðið styrk­ari fyrr. Það eru meiri líkur á að það þurfi að aðstoða fyr­ir­bura varð­andi sjúkra­þjálfun og tal­þjálfun en Arnór fór í tal­þjálfun þriggja ára. Ég tel að þetta vatns­leysi í móð­ur­kviði hafi gert það að verkum að hann hafi í raun­inni ekki haft sömu getu til að þroskast í móð­ur­kviði og ella.“

Hann þurfti sjúkra­þjálfun og alls konar örvun til þess að virkja alla vöðva lík­am­ans.
Pabbinn að halda á syni sínum í fyrsta skipti.

Áfallastreituröskun

Sandra Dís segir að það hafi ekki verið fyrr en hún var komin heim af fæð­ing­ar­deild­inni með dreng­inn sinn sem hún hafi upp­lifað áfall.

„Mér var aldrei boðin áfalla­hjálp í öllu þessu ferli. Það var aldrei boðin sál­fræði­með­ferð. Ef ég grét í rúm­inu á sjúkra­hús­inu, á kvenna­deild­inni, áður en hann fædd­ist þá var aðal­lega pælt í því hvort ég væri þung­lynd. Ég var sjaldan hrædd á meðan ég gekk með hann; ég var oft með verki en ég var alltaf með von. Ég tók oft­ast einn dag í einu.“

Mér var aldrei boðin áfalla­hjálp í öllu þessu ferli.

Jú, þegar heim kom var tveggja ára dóttir hjón­anna ánægð með að fá mömmu sína loks­ins heim eftir níu vikur.

„Hún tók samt rosa­leg reiði­köst sem tengd­ust mér. Ég hafði farið af heim­il­inu í níu vikur. Ég kom ekki heim bara með nýfætt barn sem var fyr­ir­buri heldur var heima fyrir lítil stelpa sem var eig­in­lega í losti. Þar sem við erum bændur þá var ekki mögu­leiki á að hún og pabbi hennar heim­sóttu mig reglu­lega heldur komu þau einu sinni í viku. Við vorum í kjöl­farið dug­leg að leita okkur aðstoðar í tengslum við hegðun hennar og vorum fljót að laga traustið aftur. Ef for­eldri gufar svona upp á auga­bragði þá er ekk­ert skrýtið að barn fái áfall.“

Sandra Dís varð ófrísk í þriðja skipti þemur árum eftir að Arnór kom í heim­inn.

„Ég gekk þá með fulla með­göngu en ég var lík­lega með með­göngu­syk­ur­sýki miðað við ein­kenn­inn og stærð barns­ins. Ófrískar konur geta fengið þunna útferð og ég var alltaf sann­færð um að vatnið væri að fara. Ég var mjög tauga­veikluð ef svo má að orði kom­ast. Það var ákveð­inn fögn­uður eftir því sem ég gekk lengur með en hver ein­asta vika var lengi að líða. Ég fór svo af stað þegar ég var gengin 33 vikur mögu­lega vegna þess að ég var búin að vera undir streitu alla með­göng­una. Það var ekk­ert sem benti til þess að það væri eitt­hvað að. Ég var stoppuð af og fékk að fara heim með því skil­yrði að ég ætti að vera í rúm­inu það sem eftir væri með­göng­unnar.“

Og Sandra Dís fór heim og lá að mestu í rúm­inu næstu vik­urnar.

„Svo kom settur dagur og þá bara hágrét ég af því að barnið kom ekki. Þá var ég orðin svo lúin og þreytt. Þetta var bara orðið gott og hann mátti bara koma.“

Svo fædd­ist son­ur­inn Hrafn­kell.

„Og alltaf legg ég í þetta aftur og varð ófrísk aftur og missti það fóstur á 11. viku. Ég varð aftur ófrísk sex mán­uðum seinna af yngri dóttur minni, Rakel Ýr, sem er sex ára. Það var líka tví­bura­þungun en ég missti hitt fóstrið nógu snemma til að það náð­ist að eyð­ast af sjálfu sér þannig að það olli engum vand­ræðum. Það var kvíð­væn­legt fyrstu tvær vik­urnar eftir að við vissum að það væri annar belgur en fóstrið hafði farið í um fimmtu viku. Það var pínu sjokk að upp­götva að það væri annar belgur. Ég fór í reglu­legt tékk og hann eydd­ist svo af sjálfu sér. Ég lýg því ekki að ég var líka dauð­hrædd á þeirri með­göngu. Ég var alltaf sann­færð um að ég myndi missa barnið. Mér bara leið illa en vissi ekki af hverju. Ég var alltaf að ýta í bumb­una til að tékka á hvort barnið myndi ekki örugg­lega hreyfa sig. Fólk tók eftir þessu. Það var á þessum tíma hægt að kaupa mon­itor til að hlusta sjálfur á hjart­sláttur fóst­urs­ins og ég keypti mér svo­leiðis og reyndi eins og ég gat að hlusta bara einu sinni á dag. Þannig að mögu­lega var ég pínu tauga­veikluð.“

Sandra Dís fékk með­göngu­syk­ur­sýki og mátti því ekki ganga mikið lengur en 38 vikur og því sett af stað eftir 38 vikur  og þrjá daga. Dóttirin, Rakel, grein­ist svo með nær­inga­vanda og var með sondu til átta mán­aða ald­urs.

Sandra Dís segir að eftir að Arnór kom í heim­inn hafi hún oft upp­lifað hræðsl­una. Talar um áfallastreituröskun.

„Ég var svo­lítið fyrstu árin eftir að hann fædd­ist að end­ur­upp­lifa til­finn­ing­arnar. Ég hef verið dug­leg að leita mér aðstoðar fag­að­ila og er mjög opin með til­finn­ingar mínar og van­líðan. Með­göngur fyrir mér voru ekki ein­hver dásam­leg upp­lifun; ég upp­lifði þetta ekki sem dásam­legan tíma. Þetta var meira skyldu­verk: Af því að mig lang­aði í barn þá var það skyldu­verk að ganga með barnið. Ég upp­lifði aldrei þessa gleði og ham­ingju af því að vera ófrísk. Ég var það ung þegar ég gekk með eldri stelpuna, var ung­lingamamma, að ég naut kannski ekki fyrstu með­göng­unnar eins og ég hefði getað gert.“

Ég var svo­lítið fyrstu árin eftir að hann fædd­ist að end­ur­upp­lifa til­finn­ing­arnar.

Sandra Dís segir að sér líði vel í dag.

„Mér finnst skipta máli að fólk vinni úr hlut­unum og ég held ég hafi gert það, enda lífið of stutt til að takast á við allt á hnef­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við