Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Hvað kom fyrir?“ í staðinn fyrir: „hvað er að þér?“

„Hvað kom fyrir?“ í staðinn fyrir: „hvað er að þér?“

„Sumir erfa áföll for­feðra sinna“ söng Bubbi Morthens í einu af sínum góðu lögum.

Það hefur lengi tíðkast að sjúk­dómsvæða líðan og til­finn­ingar og horfa á
hegðun aðeins út frá hegð­un­inni sjálfri. Þeim hugs­un­ar­hætti hefur iðu­lega fylgt
spurn­ingin „hvað er að þér?“ ef það er á annað borð spurt og oft farið beint í
að ávíta við­kom­andi fyrir hegð­un­ina.

Annars konar nálgun á þá sem glíma við afleið­ingar áfalla hafa verið að ryðja sér til rúms. Þar er horft frekar á rót vand­ans þar sem gjörðir við­kom­anda eru skoð­aðar í sam­hengi við það sem hann hefur upp­lifað.

Með þess­ari nálgun er frekar spurt: „hvað kom fyrir?“ eða „hvað gerð­ist?“ til þess að reyna að átta sig á algengi áfalla, ein­kennum og afleið­ingum fyrir ein­stak­linga, fjöl­skyldur og sam­fé­lög í stað­inn fyrir: „hvað er að þér?“

Þungi áfallsins hefur áhrif á eftirköst

Áfallastreituröskun hefur verið skil­greint sem sterk streitu­við­brögð í kjöl­far ákveð­inna óvæntra atburða. Þetta eru atburðir eins og nátt­úru­ham­farir (jarð­skjálftar, snjó­flóð, óveður, flóð), slys (bílslys, sjó­slys, flug­slys, iðn­að­ar­slys). Aðeins lít­ill hluti þeirra sem í slíkum áföllum lenda veikj­ast af sál­rænum kvillum.

Langvinn eft­ir­köst eru þó lík­legri, eftir áföll af manna völdum t.d. ofbeldi (árásir, rán, nauðgun, hermd­ar­verk).

Þungi áfalls­ins hefur einnig áhrif á hvort áfall hefur lang­vinn eft­ir­köst þ.e. ef tengslum við aðra eða örygg­is­til­finn­ingu er ógnað t.d. að sjá ætt­ingja far­ast eða upp­lifa nán­asta umhverfi ekki lengur öruggt.

Langvar­andi ofur­á­lag eins og heim­il­is­of­beldi, kyn­ferð­is­legt ofbeldi, ein­elti, (stríðs­á­tök og fanga­búða­vist) getur valdið sams konar við­brögðum. Sálræn vanda­mál í kjöl­far lang­vinns ofur­á­lags geta orðið mun flókn­ari og í slíkum til­vikum getur ein­stak­lingur þurft á lang­tíma sál­fræði­með­ferð að halda.

Að upp­lifa áföll eins og eftir ofbeldi, getur haft áhrif á ónæm­is­kerfið, þroska heil­ans, heila­starf­sem­ina, horm­óna- og tauga­kerfið og þar af leið­andi öll hin kerfin, því þau eru órjúf­an­leg heild. Afleið­ingar sem geta komið fram eru stoð­kerf­is­vanda­mál, lang­vinnir verkir, hjarta- og æða­sjúk­dómar, önd­un­ar­færa­sjúk­dómar og sumar teg­undir krabba­meins. Einnig þung­lyndi, kvíði, áfallastreituröskun, per­sónu­leika­röskun, áfengis- og fíkni­vandi, átröskun, sjálf­skað­andi- og afbrota­hegðun og sjálfs­vígs­hugs­anir.

Afleið­ingar geta komið fram í þeim lík­ams­hluta eða kerfi sem ein­stak­ling­ur­inn er veikastur fyrir. Þannig geta áföllin verið eins og „trig­gerar“ eða kveikjur og sett af stað ferli, sem teng­ist lífs­stíl, umhverfis- og erfða­þáttum ein­stak­lings­ins.

Á síð­ustu árum hafa verið þró­aðar aðferðir til end­ur­hæf­ingar fyrir meðal ann­ars ein­stak­linga í ofþyngd, þar sem rann­sóknir hafa sýnt fram á tengsl á milli erf­iðrar reynslu og áfalla í æsku og offitu.

Einkenni áfallastreituröskunar

Samkvæmt áfalla- og með­ferð­ar­mið­stöð­inni falla ein­kenni áfallastreiturösk­unar í fjóra flokka. Sérstök ein­kenni geta verið mis­mun­andi í alvar­leika.

1. End­ur­teknar trufl­andi hugs­anir og ósjálf­ráðar minn­ingar; óþægi­legir draumar eða end­ur­upp­lif­anir frá áfalla atburð­inum. End­ur­upp­lif­an­irnar geta verið það raun­veru­legar að fólk telur sig aftur vera að upp­lifa áfallið og sér það ljós­lif­andi fyrir sér.

2. Forðun á því sem minnir á áfallið og getur falið í sér að forð­ast fólk, staði, athafnir, hluti og aðstæður sem vekja upp óþægi­legar minn­ingar. Fólk reynir að forð­ast að muna eða hugsa um áfallið og getur sýnt mikið við­nám gagn­vart því að tala um það sem gerð­ist eða hvernig þeim líður um það.

3. Nei­kvæðar hugs­anir og til­finn­ingar sem geta falið í sér breytt við­horf og trú um sjálfan sig eða aðra (t.d. „Ég er slæm(ur),“ „Engum er treystandi“). Við­var­andi ótta, hryll­ing, reiði, sekt­ar­kennd eða skömm; minni áhuga á athöfnum sem áður voru ánægju­legar; eða að það upp­lifir sig vera fjar­lægt eða úr tenglsum við aðra.

4. Ofurár­vekni sem getur falist í því að vera auð­veld­lega pirr­aður/pirruð og reið­ast auð­veld­lega. Ein­stak­lingar  geta sýnt af sér kæru­leys­is­lega eða óábyrga hegðun. Verða auð­veld­lega brugðið og eru oft eins og „hengdir upp á þráð“ og geta átt í erf­ið­leikum með að ein­beita sér eða að sofa.

Margir þeir sem að verða fyrir áföllum upp­lifa ein­kenni eins og lýst er hér að ofan í nokkra daga eftir að áfallið á sér stað sem er eðli­legt. Til að ein­stak­lingur sé greindur með áfallastreitu þurfa ein­kennin þó að vera til staðar í a.m.k. einn mánuð.  Í mörgum til­fellum hafa ein­kennin verið við­var­andi oft mán­uðum og stundum árum saman.

Sumir ein­stak­lingar fá ein­kenni aðeins seinna oft innan þriggja mán­aða frá áfall­inu en ein­kenni geta einnig komið fram mun síðar. Hjá fólki með áfallastreitu valda ein­kennin veru­legri van­líðan og yfir­leitt vanda­mála í dags­dag­legu lífi og leiða oft til ann­ara vanda­mála svo sem þung­lyndis, kvíða, áfengis eða vímu­efna­vanda, minnis­trufl­ana og ann­ara lík­am­legra og and­legra veik­inda

Áfallamiðuð nálgun í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi

Alþjóð­legt 16 daga átak gegn kyn­bundnu ofbeldi má rekja aftur til árs­ins 1991. Dag­setn­ing átaks­ins var valin til að tengja á tákn­rænan hátt kyn­bundið ofbeldi og mann­rétt­indi. Þann 25. nóv­em­ber síð­ast­liðin var alþjóð­legur bar­áttu­dagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. des­em­ber er hinn alþjóð­legi mann­rétt­inda­dagur. Markmið átaks­ins er að knýja á um afnám alls kyn­bund­ins ofbeldis.

Alla virka daga í 16 daga átak­inu verður boðið upp á raf­ræna hádeg­is­fyr­ir­lestra við Háskól­ann á Akureyri, um ofbeldi, áföll og áfalla­mið­iðað nálgun og er öllum opið.

Heim­ildir:

Áfalla- og sál­fræði­m­ið­stöðin

Basha Krasnoff. 2019. Trauma-Informed Practice for Pre-service Teachers, 23. maí. Síða  skoðuð 29.11.2021.Slóð.

Mann­rétt­indas­r­krif­stofa

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina