Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Willum Þór Þórsson: „Fór inn á þennan vettvang með það að leiðarljósi að bæta samfélagið“

Willum Þór Þórsson: „Fór inn á þennan vettvang með það að leiðarljósi að bæta samfélagið“
Willum Þór Þórsson

„Ég trúi því að okkur hafi tek­ist að gera þetta mjög skyn­sam­lega hingað til og það höfum við gert með því að hlusta á okkar besta og færasta fólk í þessum efnum. Það hefur for­veri minn í starfi gert mjög skyn­sam­lega og náð sam­stöðu með rík­is­stjórn­inni um þær til­lögur sem sótt­varn­ar­læknir hefur lagt til. Ég hyggst hitta þau Þórólf, Ölmu og Víði, fólkið sem hefur ráð­lagt okkur heilt skref fyrir skref, sem fyrst og taka stöð­una út frá því,“ segir Willum Þór Þórsson, sem tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra í dag, um Covid-heims­far­ald­ur­inn og stöð­una hér á landi hvað hann varðar.

Ég hyggst hitta þau Þórólf, Ölmu og Víði, fólkið sem hefur ráð­lagt okkur heilt skref fyrir skref, sem fyrst og taka stöð­una út frá því

Hvernig er til­finn­ingin að taka við stöð­unni í miðjum heims­far­aldri? „Sam­staðan hefur reynst okkur vel og höfum við sam­ein­ast um að vera skyn­söm í sótt­vörnum og farið að til­mælum en þannig verðum við að skrefa okkur í gegnum þennan far­aldur, taka umræð­una og vera gagn­rýnin en tapa ekki sam­stöð­unni þegar á reynir. Það þýðir að sam­ein­ast um að láta þær ákvarð­anir ganga upp sem teknar eru. Þær verða síðan ávallt bestar að und­an­geng­inni gagn­rýnni, upp­lýstri umræðu. Það hlýtur alltaf að vera mark­mið að halda sam­fé­lag­inu gagn­andi eins og frekast er unnt, atvinnu­lífi, skólum, menn­ing­ar­lífi og íþrótta- og tóm­stunda­starfi. Ég horfi síðan á heil­brigð­is­málin sem auð­vitað afar mik­il­vægan mála­flokk og ef við horfum á ein­stak­ling­inn sem slíkan þá er heilsan dýr­mætasta eign hvers ein­stak­lings sem við þurfum að vernda. Í þjóð­hags­legu sam­hengi og í stjórn­ar­sátt­mál­anum er styrkur hvers þjóð­fé­lags ekki síst mældur í öfl­ugu heil­brigð­is­kerfi. Þetta er mjög stór mála­flokkur og það í eig­in­lega hvaða sam­hengi sem er.

Í þjóð­hags­legu sam­hengi og í stjórn­ar­sátt­mál­anum er styrkur hvers þjóð­fé­lags ekki síst mældur í öfl­ugu heil­brigð­is­kerfi

Ég vona að við náum sátt um sterkt og öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi. Það er kannski mín sýn akkúrat núna. Ég hef þá trú að við höfum mjög öfl­ugt og hæft starfs­fólk og öfl­ugar stofn­anir á þessu sviði og við þurfum að tryggja þeim bæði fjár­mögnun og aðbúnað. Það er búið að vera gíf­ur­legt álag á starfs­fólki og maður heyrir auð­vitað að þetta tekur á. Það setur auka­á­lag á allt kerfið og við þurfum að hlusta og gera allt sem í okkar valdi stendur til að vera hér áfram með öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi.“

Lýðheilsumál ofarlega í huga

Willum Þór hefur sér­stakan áhuga á lýð­heilsu­m­álum. „Mér finnst við einmitt í stjórn­ar­sátt­mál­anum horfa á heil­brigð­is­málin í víð­ara sam­hengi heldur en oft áður; horft er á geð­heil­brigð­is­málin, for­varn­irnar sem og félags­lega þátt­inn og þann and­lega sam­hliða þessum lík­am­lega og þá erum við kannski að horfa svo­lítið til fram­tíðar í sam­hengi við breytta ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar til að létta álagið af heil­brigð­is­þjón­ust­unni til fram­tíðar litið. Þannig að ég leyfi mér alveg að tala um þjóð­ar­á­tak í lýð­heilsu­tengdum for­vörnum alveg allan ald­urs­skal­ann.“

Mér finnst við einmitt í stjórn­ar­sátt­mál­anum horfa á heil­brigð­is­málin í víð­ara sam­hengi heldur en oft áður

Hvað með einka­væð­ingu? „Það er oft talað eins og við höfum lagt niður þetta bland­aða kerfi sem við höfum búið við lengi og það er alls ekki raunin en við þurfum að nýta alla þekk­ingu sem er til staðar í kerf­inu.“

Gagn­rýn­is­raddir hafa verið uppi um nýjan stjórn­ar­sátt­mála; sagt að hann sé þunnur. Hvað segir heil­brigð­is­ráð­herra um það? „Ég hef ekki haft tíma til að lesa fjöl­miðl­ana í dag þannig að ég hef ekki séð hvernig það er orðað. Mér finnst stjórn­ar­sátt­mál­inn hins vegar vera vel orð­aður og vel skrif­aður og ég hef alveg skiln­ing á því að það sé almennt orða­lag í honum. Í honum er svo við­bót miðað við fyrri stjórn­ar­sátt­mála varð­andi mála­flokka tengda aðgerða­á­ætl­unum sem mér finnst vera mjög gott þannig að ég get ekki tekið undir það að hann sé þunnur að þessu leyti.“

Hefur Willum dreymt lengi um að setj­ast í ráð­herra­stól?

„Nei. Ég fór inn á þennan vett­vang með það að leið­ar­ljósi að bæta sam­fé­lagið og láta gott af mér leiða. Svo hafa verk­efnin elt mig. Ég hef verið hepp­inn og fengið að takast á við mörg og krefj­andi verk­efni og þau hafa haldið áfram að elta mig og nú er ég kom­inn í stól heil­brigð­is­ráð­herra og mig óraði ekki fyrir því. Þetta bar frekar brátt að. Þetta var ekki stað­fest fyrr en á þing­flokks­fundi í gær.“

Ég fór inn á þennan vett­vang með það að leið­ar­ljósi að bæta sam­fé­lagið og láta gott af mér leiða.

Hvernig var til­finn­ingin?

„Ég skal við­ur­kenna að hún var næstum því yfir­þyrm­andi fyrst en svo meira blönduð af spenn­ingi. Ég er með bak­grunn í íþróttum og þá leið mér eins og ég væri að fara í úrslita­leik og ein­hvern veg­inn allt undir. Þá fer hug­ur­inn á flug um það hvernig maður fer að máta sig við kring­um­stæð­urnar og það er spenn­andi og skapar fiðr­ing í mag­ann. Svo ein­hvern veg­inn fer maður af stað og þegar maður fer í svona leik þá fer maður um leið að und­ir­búa öll atriðin sem þarf að hafa á hreinu og svo þegar er flautað þá ein­hvern veg­inn skýrist allt og allt fellur í fókus. Það var svo­lítið líð­anin þegar ég kom í ráðu­neytið í morgun og hitti Svandísi og lykla­skiptin voru og svo þegar ég er búinn að hitta allt þetta frá­bæra starfs­fólk í ráðu­neyt­inu þá líður mér eins og það sé búið að flauta á.“

Ég er með bak­grunn í íþróttum og þá leið mér eins og ég væri að fara í úrslita­leik og ein­hvern veg­inn allt undir.

Hvernig nýt­ist starfs­fer­ill­inn í knappsyrnu í ráð­herra­stólnum? „Hann hefur nýst mér mjög á þessum vett­vangi stjórn­mál­anna en í gegnum íþrótta- og tóm­stunda­starf lærir maður að takast á við til­finn­ingar. Maður lærir að maður þarf að leggja á sig vinnu til að upp­skera eitt­hvað, maður lærir að taka til­lit til ann­arra og maður lærir að vinna í hópi. Maður lærir aga, maður lærir bæði mun­inn á því hvernig sjálfsag­inn og hópag­inn hanga saman, hvað liðs­heild er mik­il­væg og hvernig á að byggja hana upp. Það er svo margt í þessu félags­lega sam­hengi sem maður lærir.“

Willum Þór segir að stærsti sigur sinn í líf­inu séu börnin sín. „Þó það sé ankanna­legt að tala um sigur í því sam­bandi þá gefa þau mér svo mikið gildi; börnin og fjöl­skyldan.“

Hver er mesti ósig­ur­inn? Mestu von­brigðin? „Ég held að ég eigi eftir að upp­lifa ein­hver slík von­brigði. Maður hefur orðið fyrir von­brigðum með hitt og þetta en ekk­ert til að til­taka sér­stak­lega.“

Maður lærir aga, maður lærir bæði mun­inn á því hvernig sjálfsag­inn og hópag­inn hanga saman, hvað liðs­heild er mik­il­væg og hvernig á að byggja hana upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina