Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Róbert rjúpnaskytta var hársbreidd frá dauðanum: „Við máttum ekki hreyfa hann“

Róbert rjúpnaskytta var hársbreidd frá dauðanum: „Við máttum ekki hreyfa hann“
Róbert Hlífar Ing­ólfs­son

Róbert Hlífar Ing­ólfs­son lenti í alvar­legu slysi þegar hann fór með vini sínum á rjúpna­veiðar föstu­dag­inn 26. nóv­em­ber í landi Mun­að­ar­ness í Árnes­hreppi.

Leið þeirra Róberts og Guðna lá frá Mun­að­ar­nesi og í átt að Norð­ur­firði. Einhver vega­lengd var á milli þeirra, en þó ekki ýkja löng. Báðir voru þeir með tal­stöðvar en þær áttu sann­ar­lega eftir að reyn­ast þeim mik­il­vægar.

Um hádeg­is­bil missti Róbert fæt­urna undan sér og rann af stað niður mik­inn bratta í Mun­að­ar­nes­hlíð. Hann rann tugi metra, allt að því 150 tals­ins, niður fjallið og lenti að lokum á steini. Hann slas­að­ist tölu­vert og hefur þurft að gang­ast undir aðgerð, en er nú á bata­vegi og þykir mikil mildi að ekki fór verr.

Fyrst um sinn leit þetta ansi illa út, þegar Róbert fann ekki fyrir fót­unum þar sem hann lá á jörð­inni og beið eftir að vera sóttur af þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar.

Mannlíf ræddi við föður Róberts, Guðlaug Ingólf Bene­diks­son.

Rann stjórnlaust niður hlíðina

„Þetta leit ekki vel út fyrst, þegar eng­inn vissi neitt,“ segir Ingólfur.

„Þeir fara þarna á rjúpu, félag­arnir, og fara upp á fjallið. Í átt að Norð­ur­firð­inum. Þeir eru ekki saman en samt ekki langt á milli þeirra. Þeir eru báðir með tal­stöð, þar sem þeir tala sín á milli. Svo eru þeir komnir þangað sem þeir sjá niður í Norð­ur­fjörð­inn og eitt­hvað að fara að lækka sig. Þeir eru að labba yfir harð­fenn­is­skafl, þar sem bara fljúga undan honum fæturnir. Þeir eru báðir á mann­broddum samt.

Þeir eru með byssur nátt­úru­lega í hönd­unum, en hann[Róbert] er samt ekki með byss­una hlaðna. Hann var búinn að taka skotin úr skömmu áður.“

Ingólfur segir Róbert fyrst hafa runnið nokkra vega­lengd á mag­anum.

„Hann sér þá ein­hverja steina fyrir framan sig og nær ein­hvern veg­inn að beina sér frá þeim. Eða yfir þá, segir hann mér. Þá fer hann koll­hnís á harð­fenn­inu og þá eykst ferðin ennþá meira. Þá rennur hann bara stjórn­laust og lendir svo á stórum steini.

Hann er með bak­poka og lendir senni­lega með bak­pok­ann á undan sér á stein­inum. Það dregur sjálf­sagt úr mesta högg­inu. Svo fer hann yfir stein­inn, segir hann, og rennur þarna ennþá lengra niður og stoppar svo þar sem er autt barð – með höf­uðið á undan sér niður hall­ann.“

Reykja­nes­hyrna og Norð­ur­fjörður.

Var með meðvitund allan tímann

Róbert náði þarna að taka af sér bak­pok­ann, þar sem tal­stöðin hans var. Hann gat því kallað á Guðna, vin sinn. Guðni hringdi þá strax í Neyð­ar­lín­una og Ingólf, föður Róberts.

„Guðni fer svo að leita að honum og fer aðeins í vit­lausa átt fyrst, en finnur hann svo. Hann byrjar á því að breiða yfir hann föt; fer úr sínum fötum og breiðir þau yfir hann. En á meðan Guðni var að leita að honum held ég að Róbert hafi líka hringt sjálfur í Neyð­ar­lín­una.

Hann var með fulla með­vit­und allan tím­ann. Því eins og hann segir, þá fyrst eftir að hann datt og rann af stað þá náði hann að beina sér frá stein­unum sem höf­uðið á honum stefndi beint á.“

Fann ekki fyrir fótunum

Eins og áður sagði lenti Róbert að lokum með bakið á stein­inn og því voru aðal­á­verk­arnir í bak­inu.

„En þegar hann fer fyrst yfir stein­ana þarna ofar, þá lendir hann með höf­uðið á hjarn­inu, sem sker höf­uðið á honum. En það er ekki höf­uð­högg beint á stein­inum.“

Róbert meidd­ist illa í baki. Einn hryggja­liður brotn­aði, hann hlaut skurði á höfði og svo er hann með meiðsli í brjóst­kassa, þar sem rif­bein hafa senni­lega brákast. Hann er nú nýbú­inn í aðgerð þar sem hryggur hans var spengdur.

Ingólfur segir að þetta hafi ekki litið vel út fyrst, á slys­stað.

„Hann fann ekk­ert fyrir fót­unum þegar við komum.“ Hann sé þó, sem betur fer, með fulla til­finn­ingu núna. „Hann nátt­úru­lega bara kóln­aði upp. Hann lá þarna í snjónum og það var ekk­ert hægt að hreyfa hann neitt – við máttum ekki hreyfa hann. Svo hann lá þarna í snjónum og við komum að senni­lega svona hálf­tíma, þremur korterum eftir að Guðni hringdi í mig.“

Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd/skjá­skot RÚV.

Beið í tæpa þrjá klukkutíma eftir þyrlunni

Vitað er með nokk­urri vissu klukkan hvað slysið varð. Sími Róberts hafði nefni­lega hringt í brjóst­vasa hans og hann var við það að teygja sig í sím­ann þegar fæturnir flugu undan honum. Öll tíma­línan er því nokkuð skýr.

„Hann dettur nokkrar mín­útur yfir 12 og svo þegar þyrlan fer frá okkur í loftið með hann, þá er klukkan 14:43 held ég. Manni finnst þetta auð­vitað langur tími. Svo gat þyrlan nátt­úru­lega ekk­ert lent, þetta var of bratt. Það þurfti að hífa hann upp í bör­unum.“

Ingólfur kveðst ekki alveg viss hversu langt Róbert féll, en hann seg­ist þó hafa giskað á að þetta hafi verið um það bil 150 metrar.

„Ég myndi halda það. En svo er það hunda­heppni að hann skyldi ekki fara yfir þennan gras­bala sem hann stopp­aði á, því það var annar skafl fyrir neðan sem hann hefði þá haldið áfram á og fram af hömr­unum.“

Var hræddur við að vera búinn að missa máttinn

Ingólfur segir að Róberti líði ögn betur og að dag­arnir verði betri. Dagurinn eftir aðgerð­ina hafi verið mjög slæmur en að það sé mun betra að sjá hann núna.

„Hann var hræddur, þegar hann fann ekki fyrir fót­unum. Hræddur við að vera búinn að missa mátt­inn. En kuld­inn hefur eitt­hvað deyft hann niður. Svo er það áfall og sjokk.

En þegar hann stopp­aði þá hefur hann greini­lega dofnað svona skarpt upp að hann gat tekið af sér bak­pok­ann og snúið sér þannig að höf­uðið fór upp á við. Hann hefur bara dofnað strax og ekki fundið eins til. Því þegar við komum til hans þá hefði hann aldrei snúið sér eitt eða neitt. Hann var með það mikla verki.“

„En þetta fór bara allt saman mikið betur en það leit út og maður hélt,“ segir Ingólfur.

Að lokum vilja þau hjónin, Ingólfur og Jóhanna, for­eldrar Róberts, skila kæru þakk­læti til allra sem komu að umönnun sonar þeirra. Þau nefna sér­stak­lega við­bragðs­að­ila á slys­stað, þá sem hafa ann­ast hann og frænkur Róberts, þær Ellen og Rakel, sem fóru beint á spít­al­ann í Reykja­vík þegar Róbert var kom­inn þangað og voru honum afar mik­il­vægur stuðn­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina