Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jóna Símonía sagnfræðingur og jólabarn: „Enginn veit hvenær árs Jesú fæddist“

Jóna Símonía sagnfræðingur og jólabarn: „Enginn veit hvenær árs Jesú fæddist“
Jóna Símonía Bjarna­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Jóna Símonía Bjarna­dóttir er við­mæl­andi Gunn­hildar Kjerúlf Birg­is­dóttur í hlað­varp­inu Jóla­ser­í­unni. Jóla­ser­ían er nokk­urs konar und­ir­bún­ings­þáttur fyrir jólin þar sem ýmsar hliðar jól­anna verða skoð­aðar; hefðir, sögur, trú, töfrar, matur og skraut.

Jóna Símonía er sagn­fræð­ingur og sann­kallað jóla­barn. Raunar svo mikið jóla­barn að hún er gjarnan kölluð Jóla-Jóna á Ísafirði, þar sem hún býr – fædd og upp­alin. Hún er afar fróð um jólin, sögu þeirra og íslensku hefð­irnar.

Jólum skeytt saman við Kristni

Aðspurð um íslensku jóla­hefð­ina, allt frá upp­hafi, stendur ekki á svörum frá Jónu.

„Það sem er svo skemmti­legt við jólin er þessi saga þeirra, sem er nátt­úru­lega ævaforn. Þjóð­irnar hérna á norð­ur­slóðum héldu alltaf hátíð á þessum árs­tíma, sem tengd­ist því að sólin hvarf og kom aftur. Upp­haf­lega héldum við Íslend­ingar nátt­úru­lega heiðin jól, sem gengu einmitt út á það að fagna sigri sól­ar­innar á myrkr­inu og end­ur­komu hennar – þessar sól­stöður. Þannig að við gerðum svona eins og aðrar þjóðir, alla­vega í norð­an­verðri Evrópu; að fagna þessu með miklum veislum og vænt­an­lega blótum.

Það sem síðan ger­ist er að við tökum Kristni. Það er líka dálítið áhuga­vert að skoða jólin út frá því. Hvernig það ger­ist og svo hvernig þessi Kristna hátíð í raun verður, sem alls­staðar ber heiti tengt Kristi, nema á norð­ur­lönd­unum, þar sem við tölum um jól. Án þess að vita í raun alveg hvað það þýðir.

Málið er að eng­inn veit hvenær árs Jesú fædd­ist. Trúlega hefur það verið að sumri eða vori. En það er þetta; hvernig þetta var útfært. Þessi hátíð sem jólin voru á sínum tíma, hún var stór og mikil. Hvað ger­irðu til þess að tryggja nýja trú? Þú bannar ekki gömlu, góðu hátíð­arnar. Þú setur þetta saman.

Þannig að það er mjög margt sem bendir til þess að þetta sé svona til þess að tryggja nýja trú í sessi. Þá tek­urðu svona stóra, gamla hátíð og setur í nýjan bún­ing. Lengi vel á Íslandi þá héldu menn jól kannski upp á gamlan máta, öðru­vísi en það að þeir mættu í messu, en héldu að öðru leyti bara stórar veislur með mat og drykk.“

Jóna seg­ist hafa sér­stakan áhuga á einmitt þessu; hvernig okkar jól verða til í nýrri trú, þrátt fyrir að það sé ekk­ert sem segi okkur að atburðir Bibl­í­unnar í kringum fæð­ingu Jesú teng­ist þessum tíma á nokkurn hátt. Þessu sé í raun bara skeytt saman vegna hent­ug­leika.

„Þetta er svona póli­tík. Það er líka áhuga­vert til dæmis að í ensku og þýsku kemur þetta Christmas inn, sem er Krists­messa, en við hins­vegar höldum bara þessu gamla heiti, sem er jól. Menn eru ekki vissir í hvað það vísar, hvaðan orðið kemur, en það var alla­vega talað um jól sem þessa fornu hátíð. Mögulega tengt mán­að­ar­heit­inu, Ýli, eitt­hvað slíkt. Það hefur aldrei komið end­an­leg nið­ur­staða í það.“

Illþýði gegn hinum fátæku

Talið berst að helstu karakt­erum og, í sumum til­fellum, óværum íslensku jól­anna.

„Grýla er til dæmis mjög gömul tröll­kona. Hennar er getið, að mig minnir, í heim­ildum um árið 1000. En teng­ingin við jól kemur í raun ekki fyrr en á sautj­ándu öld­inni, þegar fyrst sést teng­ing á Grýlu og hyski hennar við jólin. Jóla­svein­arnir eru nátt­úru­lega bara hluti af börnum Grýlu, þannig að hennar hyski teng­ist bara því að vera tröll og það eru bara þessir sveinar hennar sem tengj­ast jólum. Það er til­tölu­lega stutt síðan í sjálfu sér að það ger­ist í okkar sögu. Svo þró­ast þeir nátt­úru­lega drastískt.

Það er líka skýr­ing á því. Þegar maður hugsar um Ísland hér áður og fyrr, þá eru það mið­ald­irnar í Krist­inni trú, þar sem þú ferð í messu og sækir þá einmitt mið­næt­ur­mess­urnar. Það er þaðan sem við höfum sög­urnar um álf­ana og tröllin sem komu þegar ein­hver var einn heima að gæta bæjar. Þá voru líka haldnar miklar veislur. Svo kemur í raun svona strang­trún­aður og þá fer að draga úr þessu. Svo skiptum við líka um trú – úr Kaþ­ólskri yfir í Lúth­erska trú. Því fylgir strang­trún­aður og þá breyt­ist það líka úr því að vera þessi mikli veisluglaumur. Það sem ger­ist líka er að ástandið á Íslandi versnar og jólin verða hátíðin þar sem þú gerir virki­lega vel við þig í mat og drykk, og tjaldar öllu til. Í fátæku sam­fé­lagi er ekk­ert skelfi­legra heldur en að fá eitt­hvað svona hyski heim til þín, sem rænir frá þér því sem skiptir svo miklu máli á þessum tíma. Þannig að jóla­svein­arnir verða svona ein­stak­lingar sem koma til að ræna og rupla – taka það sem skiptir þig einna mestu máli.“

Aðspurð segir Jóna að þessi óþjóða­lýður hafi vissu­lega verið not­aður til þess að hræða fátækt fólk hér á árum áður.

„Já, það er ljóst af húsaga­til­skipun frá 18. öld, þar sem er verið að reyna að banna það að hræða fólk með jóla­sveinum, að það er það sem var gert. Það er verið að nota þetta ill­þýði, sem hét ýmsum nöfnum og framdi ýmiss konar verk, til þess að halda fólki að vinnu. Þetta var greini­lega svona liður í því. Bara eins og með jóla­kött­inn. Hvað var meira ógn­andi en það að skrambans kött­ur­inn kæmi og annað hvort æti þig, eða kannski sem verra var, jólamat­inn þinn. Þannig að þú varðst að vera dug­legur að vinna fyrir jólin til að fá flík í jóla­gjöf. Þannig að maður getur sagt að þróun þessa ill­þýðis fylgi á vissan hátt breyttu sam­fé­lagi í ald­anna rás.“

Mynd eftir Tryggva Magn­ús­son úr bók­inni Jólin koma.

Margt býr í myrkrinu

Jóna segir að svipað sé uppi á ten­ingnum þegar kemur að sögum af álfum og huldu­fólki frá þessum tíma. Alltaf hafi boð­skap­ur­inn verið nokkurn veg­inn sá að ef þú hegð­aðir þér rétt upp­skarstu ríki­dæmi, en ef þú gerðir eitt­hvað rangt þá fór illa fyrir þér.

„Á þessum tíma var það líka þannig að heim­il­is­fólk fór prúð­búið til messu. Það fóru kannski hópar um héruð, prúð­búið fólk, til kirkju, og þaðan eru vænt­an­lega að ein­hverju leyti komnar þessar hug­myndir um álfa­hópa.

Með nýrri trú breyt­ast sögur og menn horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn og ég man að þegar ég var krakki velti ég því oft fyrir mér hvers vegna ein­hver einn var eftir að passa bæinn á meðan hinir fóru í messu. Í mínum huga var þetta eitt­hvað sér­kenni­legt. Af því að það voru nátt­úru­lega kirkjur í flestum sveitum. Maður ólst upp við það. Ekki langt að fara kannski í messu. En þessu horfði bara öðru­vísi við í Kaþ­ólskum tíma á mið­öldum. Þá voru börnin kannski ekki tekin með í messu og þá þurfti ein­hver að vera heima að gæta barn­anna. Svo var það líka oft þannig að fólk leit við á bæjum á leið sinni í og úr messu, og þá þurfti ein­hver að vera á bænum til að taka á móti gestum. Svo þurfti nátt­úru­lega að gefa fénu og allt þetta.“

Jóna segir að það sé í raun ekki almenni­lega hægt að skilja það á okkar tíma, hversu nátt­úru­lega allar þessar sögur af vættum, ófétum, álfum og tröllum spruttu hér áður fyrr. Ekki fyrr en maður ef til vill upp­lifir raf­magns­leysi og skilur hvað það er að búa í myrkri, þó ekki sé nema um stund­ar­sakir.

„Ef maður upp­lifir að það fari raf­magnið af öllum bænum, í svartasta skamm­deg­inu, þá ferðu út og það er kolniða­myrkur. Þá skilur maður líka hvernig oft var hægt að ala á ótta og myrk­fælni. Því það var þetta svell­kalda myrkur og svo nátt­úru­lega alls konar hljóð. Það var bara svo auð­velt að ímynda sér að þarna úti í þessu mikla myrkri væru ýmsar vættir.

Þegar maður er að tala um þetta við til dæmis börnin í dag, þá eiga þau pínu erfitt með að skilja þetta og finnst oft ótta­leg vit­leysa að fólk hafi trúað á þetta allt saman. En um leið og maður getur sett þau í þær aðstæður að upp­lifa þetta kol­svarta myrkur, þá kemur þetta. Þau eru bara svo vön allri þess­ari ljós­mengun. Ég skil mjög vel að það hafi verið hægt að nota þetta sem tæki á fólk til þess að halda því að vinnu.“

Íslenskt jólahald nokkuð hefðbundið

Jóna segir það áhuga­vert að skoða hversu hefð­bundið jóla­hald sé í raun á Íslandi. Ýmsir ævagamlir siðir hafi fest sig í sessi og sitji sem fast­ast.

„Ég næ í skottið á þeim tíma þegar jóla­tréð var skreytt á Þorlák. Á Þor­láks­messu skreyttu for­eldrar mínir jóla­tréð og svo var stof­unni lokað. Það var ekk­ert verið að skreyta fyrr en á Þor­láks­messu. Það mátti svona aðeins fara að nefna jólin í des­em­ber en Íslend­ingar voru ekki svona með aðvent­una eins og aðrar þjóðir. Þetta eru leifar af þessu gamla sam­fé­lagi, þar sem þú varst að vinna fram að jólum og jóla­und­ir­bún­ing­ur­inn fólst í að gera hreint.

Það var nú eitt, jóla­hrein­gern­ingar. Svo fórstu í bað og þú fórst í hrein föt. Allt þurfti að vera hreint og fínt og bjart á jólum. Og við tókum þetta bara svo­lítið með okkur inn í nútím­ann. Það er til­tölu­lega stutt síðan að það varð meira frjáls­ræði í þessu og þú gast bara farið að kaupa jóla­tré og jóla­skraut svona löngu fyrir jól.“

Mynd úr einka­safni.

Skata, epli og appelsínur

Þegar Jóna er spurð út í það hvernig jólin hafi verið á æsku­heim­ili hennar byrjar hún á Þor­láks­messu.

„Það var skata á Þorlák. Þá var einmitt farið í bæinn að versla, jóla­tréð skreytt og heim­ilið skreytt. Klárað að pakka inn jóla­gjöfum. Það var alltaf lamba­kjöt í mat­inn á aðfanga­dags­kvöld og svona allt það besta með því sem þá var, og svo epli og app­el­sínur. Þegar ég er að alast upp þá er ekki sjálf­gefið að það sé alltaf hægt að ganga út í búð og kaupa alla þessa ávexti sem við höfum í dag. Þannig að epli og app­el­sínur til­heyrðu sann­ar­lega jól­unum, og svo mandar­ínur þegar þær fóru að koma. Ég held að ég sé alin upp við mjög hefð­bundin, íslensk, íhalds­söm jól.

Svo voru pakk­arnir opn­aðir á aðfanga­dags­kvöld, oft voru afi og amma hjá okkur. Svo kom fólk í heitt súkkulaði um kvöldið eða við fórum eitt­hvað í heim­sókn í heitt súkkulaði. En við fórum ekki í messu. Það varð svona seinni tíma – eftir að mið­næt­ur­messan kom. Alltaf var sest að borðum um leið og klukkan hringdi í útvarp­inu og messan í Dóm­kirkj­unni byrj­aði.“

Þarf að pakka öllu heimilinu til að rýma fyrir skrauti

Jóna segir að heima hjá sér hafi allt verið svona reglu­fast í tengslum við jólin og að þannig sé það ennþá hjá henni í dag.

„Ég held í þetta allt saman, að öðru leyti en því að ég skreyti mun fyrr. Heima hjá mér er það þannig að ég þarf bein­línis að pakka heim­il­inu til þess að koma jóla­skraut­inu fyrir. Þannig að þetta er svo­lítið mikil vinna. Svo ég er oft búin að því og löngu farin að und­ir­búa svona sitt­hvað í sam­bandi við jólin.

Ég baka ennþá gömlu góðu smákök­urnar, lag­köku og eitt­hvað svona – íhalds­söm í þeim biss­ness. Svo er aðfanga­dagur þannig að klukkan sex er steikin til­búin og sest að borðum.

Ég tók svo upp einn nýjan sið, sem er hús­lestur, sem nátt­úru­lega tíðk­að­ist alltaf. Þannig að hjá mér er hús­lestur á aðfanga­dags­kvöld. Svo er það svo­lítið skemmti­legt að yngri systir mín sem ólst upp við það að þurfa að sitja undir þessum hús­lestri, ekk­ert mjög glöð, er búin að taka upp þennan sið. Þetta er gert áður en pakk­arnir eru opn­aðir; þú ert búinn að borða, búinn að ganga frá upp­vask­inu og þá sestu aðeins niður til að lesa. Það getur þess vegna verið þjóð­saga, ein­hver jóla­saga, jóla­guð­spjallið. Bara svona aðeins að slaka á áður en það er byrjað að opna pakk­ana.

Svo er mað­ur­inn minn að norðan, þannig að hann kom með laufa­brauð og laufa­brauðs­bakstur inn í okkar jóla­hald. Hjá honum hafði svo alltaf verið svín, en ég tók það nú ekki í mál. Ég gat tekið laufa­brauðið en ekki hitt,“ segir Jóla-Jóna.

Viðtalið í heild sinni má horfa og hlusta á hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina