Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Vinn við að vera allskonar“

„Vinn við að vera allskonar“

Hin bráð­fyndna og skemmti­lega Júlíana Sara Gunn­ars­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.

Júlíana birt­ist fyrst á skjáum lands­manna í þátt­unum Þær Tvær, árið 2014, sem hún skrif­aði ásamt vin­konu sinni Völu Kristínu.
Nú leikur Júlíana í hinni geysi­vin­sælu gam­an­þátta­röð Venju­legt fólk, þar sem hún fer með eitt af aðal­hlut­verk­unum, ásamt því að vera einn af hand­rits­höf­undum þátt­anna.

Mannlíf komst að því að Júlíana getur verið snögg upp, en lætur það fylgja að hún sé fljót að róa sig aftur, henni leið­ist að heyra vekjara­klukk­una hringja á morgn­ana og fal­leg­asti stað­ur­inn sem hún hefur farið á er Cassis í Frakk­landi.

Fjöl­skyldu­hagir? Kærasta Andra og móðir Gunnars Loga og Þórdísar Láru. Er líka svo heppin að hann á tvö börn, þau Viktor Leví og Thelmu Hrönn.

Menntun/Atvinna? Leikkona að mennt en vinn við það að vera alls­konar, eins og börnin mín segja. En fyrir áhuga­sama að þá vinn ég við það í dag að vera leik­kona, hand­rits­höf­undur og leik­stjóri.

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Ég fer alltaf í kleinu þegar ég er spurð að svona spurn­ingum því ég verð alveg blankó. Ætli ég verði ekki að henda gríni hérna inn, eins og The Office og Modern Family. Svo verð ég nú líka að segja Homeland þó það sé nú alls ekki grín.

Leikari? Nú fór ég aftur í kleinu en ég get þó sagt Julia Roberts. Hún varð upp­á­halds leik­konan mín eftir Notting Hill, enda hef ég séð þá mynd oftar en ég get talið. Jake Gyl­len­haal er þó leik­ari sem mig dreymir um að leika á móti.

Rit­höf­undur? Nú kemst upp um mig en ég les allt of lítið, eig­in­lega ekki neitt nema hand­rit.

Bók eða bíó? Getið eflaust giskað á það eftir síð­asta svar. Bíó.

Kók eða pepsi? Collab.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Cassis í Suður Frakk­landi en það spilar mikið inn í að finn­ast hann rómó, enda farið tvisvar á hann með Andra mínum.

Hvað er skemmti­leg­ast? Mér finnst sem betur fer margt mjög skemmti­legt en þá aðal­lega sam­veru­stundir með fjöl­skyld­unni og þá er ég líka svo heppin að vinna við áhuga­málið mitt.

Hvað er leið­in­legt? Nú ætla ég að leyfa mér að svara eins og ung­lingur en það er að heyra vekjara­klukk­una hringja á morgn­ana.

Hvaða flokkur? Ég er meira til hægri.

Hvaða skemmti­staður? Ég hefði getað svarað þessu fyrir nokkrum árum en nú hef ég ekki hug­mynd um það þar sem ég er ekki mikið að stunda skemmti­stað­ina í dag.

Kostir? Duglegur doer.

Lestir? Óþol­in­móð og stundum er ég frekar fljót upp þó það verði nú að fylgja sög­unni að ég fer nú fljótt niður aftur.

Hver er fynd­inn? Börnin mín.

Leið­in­legur? Ætli það séu ekki bara þeir sem eru fljótir að dæma annað fólk og gleyma að líta í sinn eigin barm.

Stærsta augna­blikið? 07.08.15 og 17.03.17.. fæð­ing­ar­dagar barn­anna minna að sjálf­sögðu.

Mestu von­brigðin? Ég ætla að gefa ykkur leið­in­legt svar en það er ekk­ert hægt að segja annað en covid.

Hver er draum­ur­inn? Góð heilsa og ham­ingja alla tíð.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Ætli það sé ekki eitt­hvað af því sem ég hef gert í vinn­unni á þessu ári en eitt af því er, þegar við gerðum fjórðu seríu af Venju­legu Fólki. Því til gam­ans má geta að þá hafa aldrei verið gerðar eins margar ser­íur af fram­halds­leiknu efni á Íslandi.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Ný mark­mið koma með hverju mark­miði sem maður nær svo já og nei.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Ég var að klára brand­ara­stund með krökk­unum svo já það eru nokkrir sem þau sögðu mjög ferskir í minni en held ég sleppi því að segja þá hér.. Enda prumpu-og kúka­brand­arar í fyr­ir­rúmi.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Allt of mörg. Ég man þó vel eftir einu síðan í fyrra­vetur en þá var ég að opna bíl­inn minn í renni­hálku beint fyrir utan verslun þar sem það voru lík­leg­ast svona fimm­tíu manns í röð. Ég rann undir bíl­inn og lang­aði að þykj­ast vera dáin svo ég þyrfti ekki að skríða undan honum og face–a þetta móment.

Mesta gleðin? Að ná mark­miðum sínum og að eign­ast þessar gleði­sprengjur sem ég á. Ég er búin að tala mikið um börnin mín en þegar ég hugsa um gleði og þakk­læti þá hugsa ég að sjálf­sögðu fyrst til þeirra.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að vera góð mann­eskja og lifa líf­inu lif­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu