Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Baráttukveðja til vinar í öndunarvél: „Minn kæri vinur, hann Bíla-Bergur, liggur nú þungt haldinn“

Baráttukveðja til vinar í öndunarvél: „Minn kæri vinur, hann Bíla-Bergur, liggur nú þungt haldinn“
Bergur Guðnason á góðum degi. Hann lést í gær. Mynd: Guðmundur Sigurðsson.

„Minn kæri vinur, hann Bíla-Bergur liggur nú þungt hald­inn á sjúkra­húsi með með Covid-19 sjúk­dóm­inn. Margir hafa haft sam­band til að for­vitn­ast um stöð­una á kapp­anum, það eina sem ég hef getað sagt fólki er að van­meta ekki Bíla-Berg, það hefur alltaf verið rangur reikn­ingur þegar það er gert,“ skrifar Guð­mundur Jón Sig­urðs­son um sjúk­dóms­legu félaga síns, Guðbergs Guðna­sonar, sem er haldið sof­andi í önd­un­ar­vél á Land­spít­al­anum og háir þar harða bar­áttu við Covid 19. Guð­bergur, sem er á átt­ræð­is­aldri, var lagður inn fyrir fimm dögum og hefur verið haldið sof­andi síðan. Á föstu­dag lágu 23 sjúk­ling­ar Land­spít­ala vegna Covid-19. Meðal­ald­ur hóps­ins er 63 ár. Þrír af þeim sem voru á gjör­gæslu í önd­un­ar­vél.  

Þeir félagar eru báðir upp­haf­lega frá Flateyri. Guð­mundur, sem hefur skráð niður sögur frá lífs­hlaupi Bergs, birti færslu á Facebook- síðu sinni þar sem hann sendir vini sínum bar­áttu­kveðju og lætur í ljósi þá skoðun og von að Bergur muni hafa betur í bar­átt­unni við vágest­inn.

Bergur nýtur sín vel þar sem engu má muna

„Bergur hefur alltaf tekið alla hluti skrefi lengra en flestir og ævin­lega kom­ist upp með það þó ekki hafi mátt miklu muna á köflum. Það er meira rokk í Berg heldur en í nokkrum venju­legum rokk­ara. Sumir hafa verið að hafa áhyggjur af því hvort hann muni hafa þetta af, að vera haldið sof­andi í önd­un­ar­vél svona lengi. Bergur hefur fleiri líf en almennt er úthlutað og gætir furðu hvað mörg hafa komið upp úr pok­anum. Oft hefur hann verið meira handan lífs en hér­megin eftir veik­indi og slys en pok­inn hefur alltaf átt eitt eftir og svo mun verða nú sem fyrr,“ skrifar Guð­mundur Jón.

Kraftaverk Bergs

Hann rifjar upp nokkur til­vik þar sem Bergur var í lífs­háska en hafði betur eftir tví­sýna bar­áttu.

„Bergur nýtur sín vel þar sem engu má muna og krafta­verkin sem hann hefur gert á bílum, vinnu­vélum og nú næst önd­un­ar­vélum eru engu lík og ekk­ert sem jafn­ast á við það.

Hér er að lokum ein saga sem segir af fólki sem afskrif­aði Berg vin minn: Á góðum sum­ar­degi fyrir margt löngu var Bergur á rúnt­inum á Ísafirði á þrótt­miklu mót­or­hjóli. Áhorf­endur greinir á um hraða vél­hjóls­ins og munar þar all­miklu. Bergur var með far­þega á hjól­inu, var að sýna honum kraft­inn (Þar með úti­lokum við 50 km ferð). Hvar hann kemur upp aðal­göt­una á Ísafirði er fólks­bíll að snúa við á göt­unni og skiptir engum togum að hann lendir á bílnum. Lendir á stál­bit­anum á milli hurð­anna vinstra­megin og fór inn í miðjan bíl.

Bergur og far­þeg­inn hend­ast af hjól­inu, far­þeg­inn fannst inn í garði nokkuð frá vett­vangi. Bergur flaug af hjól­inu, yfir bíl­inn og í göt­una. Ferðin hafði verið næg til þess að bíll­inn kom þvers undan högg­inu og fór yfir Berg.

Vitni á vett­vangi sagði mér síðar að þetta hafi verið ljót sjón enda aug­ljóst að þetta væri búið fólk hafi farið að hlúa að far­þegum bíls­ins enda engum dottið í hug að spá meira í Berg. Ein­hverjir drógu hann þó undan flak­inu og þar kemur ein­hver átaka­fyllsta saga sem Bergur hefur sagt mér: „Þetta var svaka­legt ég skynj­aði allt umhverfið, heyrði hvert orð og skyldi. Sá fólkið sem var í sjón­línu en gat ekki hreyft legg né lið. Ekki hreyft augun eða neitt. Það var svaka­legt þegar menn voru að ýta í mig með tánum og full­yrða að þetta væri búið ég væri greini­lega stein­dauður“

En Bergur var ekki meira dauður en það að nokkrum dögum seinna var hann kom­inn í Vega­vinnu inn í Djúpi á Bed­for­dinum sínum“.

Guð­mundur sagði í sam­tali við Mannlíf í gær­kvöld að þótt ástandið væri tví­sýnt vænti hann þess að Bergur myndi sigra. Hann sendir félaga sínum að lokum kveðju þar sem hann áréttar að þá trú sína að Bergir sigri í þessum slag eins og öðrum á lífs­ins leið.

„Þetta kennir okkur að sumt fólk á ekki að afskrifa of fljótt Guð­bergur minn kæri, góða lukku og gangi þér sem fyrr allt í hag­inn“.

Færsla Guð­mundar í heild sinni:

Minn kæri vinur, hann Bíla-Bergur liggur nú þungt hald­inn á sjúkra­húsi með með Covid-19 sjúk­dóm­inn.

Margir hafa haft sam­band til að for­vitn­ast um stöð­una á kapp­anum, það eina sem ég hef getað sagt fólki er að van­meta ekki Bíla-Berg, það hefur alltaf verið rangur reikn­ingur þegar það er gert.

Bergur hefur alltaf tekið alla hluti skrefi lengra en flestir og ævin­lega kom­ist upp með það þó ekki hafi mátt miklu muna á köflum.

Það er meira Rokk í Berg heldur en í nokkrum venju­legum rokk­ara.

Sumir hafa verið að hafa áhyggjur af því hvort hann muni hafa þetta af, að vera haldið sof­andi í önd­un­ar­vél svona lengi. Þá er til þess að hugsa að Bergur hefur enda­lausa dellu fyrir vélum og ég skil ekki í að önd­un­ar­vélar geti verið und­an­skildar og hann mun áreið­an­lega pæla í þeim næstu miss­eri, full viss þess að stilla megi þær aðeins betur. Svo má ekki gleyma að í svefn­inum eru konur allan sól­ar­hring­inn að snú­ast í kringum hann.

Það er engu lík­ara en að kall­inn sé á heima­velli.

Bergur hefur fleiri líf en almennt er úthlutað og gætir furðu hvað mörg hafa komið upp úr pok­anum. Oft hefur hann verið meira handan lífs en hér­megin eftir veik­indi og slys en pok­inn hefur alltaf átt eitt eftir og svo mun verða nú sem fyrr.

Bergur nýtur sín vel þar sem engu má muna og krafta­verkin sem hann hefur gert á bílum, vinnu­vélum og nú næst önd­un­ar­vélum eru engu lík og ekk­ert sem jafn­ast á við það.

Hér er að lokum ein saga sem segir af fólki sem afskrif­aði Berg vin minn:

Á góðum sum­ar­degi fyrir margt löngu var Bergur á rúnt­inum á Ísafirði á þrótt­miklu mót­or­hjóli.

Áhorf­endur greinir á um hraða vél­hjóls­ins og munar þar all­miklu. Bergur var með far­þega á hjól­inu, var að sýna honum kraft­inn (Þar með úti­lokum við 50 km ferð)

Hvar hann kemur upp aðal­göt­una á Ísafirði er fólks­bíll að snúa við á göt­unni og skiptir engum togum að hann lendir á bílnum. Lendir á stál­bit­anum á milli hurð­anna vinstra­megin og fór inn í miðjan bíl.

Bergur og far­þeg­inn hend­ast af hjól­inu, far­þeg­inn fannst inn í garði nokkuð frá vett­vangi. Bergur flaug af hjól­inu, yfir bíl­inn og í göt­una. Ferðin hafði verið næg til þess að bíll­inn kom þvers undan högg­inu og fór yfir Berg.

Vitni á Vett­vangi sagði mér síðar að þetta hafi verið ljót sjón enda aug­ljóst að þetta væri búið fólk hafi farið að hlúa að far­þegum bíls­ins enda engum dottið í hug að spá meira í Berg.

Ein­hverjir drógu hann þó undan flak­inu og þar kemur ein­hver átaka­fyllsta saga sem Bergur hefur sagt mér:

„Þetta var svaka­legt ég skynj­aði allt umhverfið, heyrði hvert orð og skyldi. Sá fólkið sem var í sjón­línu en gat ekki hreyft legg né lið. Ekki hreyft augun eða neitt.

Það var svaka­legt þegar menn voru að ýta í mig með tánum og full­yrða að þetta væri búið ég væri greini­lega stein­dauður“

En Bergur var ekki meira dauður en það að nokkrum dögum seinna var hann kom­inn í Vega­vinnu inn í Djúpi á Bed­for­dinum sínum.

Þetta kennir okkur að sumt fólk á ekki að afskrifa of fljótt

Guð­bergur minn kæri, góða lukku og gangi þér sem fyrr allt í hag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við