Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kristján Eldjárn: „Aldrei dottið í hug að segja að íslenska væri fallegasta tungumál í heimi“

Kristján Eldjárn: „Aldrei dottið í hug að segja að íslenska væri fallegasta tungumál í heimi“

Á þessum degi 6. des­em­ber árið 1916 fædd­ist Kristján Þór­ar­ins­son Eldjárn. Hann var forn­leifa­fræð­ingur og þriðji for­seti Íslands árin 1968 – 1980. Hann lauk fyrri­hluta­prófi í forn­leifa­fræði frá Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla og lærði síðan íslensk fræði við Háskóla Íslands.

Kristján ásamt Jóhanni Svarf­dæl­ingi

Í ævi­sögu Krist­jáns sem skrifuð var af Gylfa Gröndal er sagt að hann hafi sam­ein­aði öðrum betur íslenskan alþýð­leik og lát­lausa reisn heims­manns­ins.

Kristján lauk dokt­ors­prófi árið 1957 og nefn­ist rit­gerð hans Kuml og haugfé í heiðnum sið á Íslandi.

Kristján var þjóð­minja­vörður og þjóð­þekktur og vin­sæll maður vegna þátta sinna í sjón­varpi um fornar minjar og muni í vörslu Þjóð­minja­safns­ins. Hann var hisp­urs­laus og alúð­legur í fram­göngu og ávann sér miklar vin­sældir þjóð­ar­innar. Hann sigr­aði mót­fram­bjóð­anda sinn, Gunnar Thorodd­sen, í kosn­ing­unum 1968 með miklum atkvæða­mun og var sjálf­kjör­inn eftir það.

Þórarinn Eldjárn ræddi feril föður síns

„Hann þessi fyrsti for­seti sem kom úr mennning­ar­líf­inu, ekki stjórn­mála­líf­inu, lenti í erf­ið­ari stjórn­ar­mynd­unum heldur nokkur annar for­seti fyrr og síðar,“ sagði Þórarinn Eldjárn, sem árið 2016 ræddi á Morg­un­vakt­inni á Rás 1, feril föður síns, Krist­jáns Eldjárns, þegar 100 ár voru liðin frá fæð­ingu hans.

Þórarinn sagði tím­ana breytta. „Stundum var erfitt að ná í þessa menn sem áttu að vera mynda stjórnir. Þeir voru í sum­ar­bú­stöðum og ekki voru nú gems­arnir eða menn þenj­andi sig á Facebook og Twitter.“

Arfleifð Krist­jáns Eldjárns er marg­brotin en hann var fjöl­hæfur. Kristján var for­seti, forn­leifa­fræð­ingur, nor­rænu­fræð­ingur, rit­höf­undur, skáld. Og í til­efni af ald­ar­af­mæl­inu árið 2016 var dokt­ors­rit­gerð hans gefin út í þriðja sinn, end­ur­bætt í rit­stjórn Adolfs Frið­riks­sonar, sem stað­hæfir að meg­in­nið­ur­stöður Krist­jáns frá þvi um miðja síð­ustu öld standi óhagg­aðar.

Honum þótti vænt um tungumálið

Þórarinn Eldjárn rifj­aði upp störf föður síns sem forn­leifa­fræð­ings, rit­færni hans og áhuga á tungu­málum.

„Hann skrif­aði mjög fal­lega íslensku. Það var honum ein­hvern veg­inn eðl­is­lægt. Og þó honum þætti svona vænt um tungu­málið og væri upp­tek­inn af því, þá hefði honum aldrei dottið í hug að segja að íslenska væri fal­leg­asta tungu­mál í heimi.“

Kristján var í hópi braut­ryðj­enda í íslenskum vís­indum og stóð fyrir upp­bygg­ingu forn­leifa­fræð­innar sem vís­inda­greinar. Hann kom víða við á ferli sínum sem vís­inda­maður og sinnti ekki ein­göngu forn­leifa­upp­grefti og form­legum emb­ætt­is­störfum sem þjóð­minja­vörður, heldur brá hann sér í önnur gervi sem sér­fræð­ingur á mörgum sviðum, svo sem lista­sögu, þjóð­hátta­fræði og texta­fræði.

Kristján var mik­il­virkur rit­höf­undur og skrif­aði hund­ruð greina um forn­leifar í dag­blöð, ýmis tíma­rit og vís­inda­rit. Í árdaga Rík­is­sjón­varps­ins stýrði hann vin­sælum fræðslu­þáttum um sama efni og gaf út nokkrar bækur með liprum greinum um gripi og minjar, sem byggð­ust á frum­rann­sókn hans sjálfs hverju sinni.

Leiddist að skrifa oftar en einu sinni um sama efni

Þrátt fyrir að öðl­ast mikla yfir­sýn með störfum sínum skrif­aði Kristján aldrei yfir­lits­rit um íslenska forn­leifa­fræði, enda leidd­ist honum að skrifa oftar en einu sinni um sama efni. Það var honum hins vegar ögrun að glíma við lýs­ingar á forn­gripum og finna leiðir til að fjalla um fræðin á þjálan hátt og áferða­fal­legan. Kristján lagði ríka áherslu á útgáfu rann­sókna, og var rit­stjóri Árbókar hins íslenska forn­leifa­fé­lags í marga ára­tugi, jafn­vel löngu eftir að hann hafði verið kos­inn í emb­ætti for­seta lýð­veld­is­ins 1968.

Kristján bauð sig fram í for­seta­kosn­ingum Íslands árið 1968, en hann hafði verið tregur til að fara í fram­boð. Menn á borð við Eystein Jónsson, Lúðvík Jós­eps­son og Stefán Jóhann Stef­áns­son nauð­uðu í Krist­jáni að bjóða sig fram þar til hann lét loks til leið­ast.  Þessir menn vildu fyrir alla muni forð­ast það að Gunnar Thorodd­sen, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og tengda­sonur Ásgeirs Ásgeirs­sonar frá­far­andi for­seta, yrði kjör­inn for­seti. Gunnar mæld­ist í fyrstu með lang­mest fylgi í skoð­ana­könn­unum og þótti sjálf­sagður arf­taki Ásgeirs og Sveins Björns­sonar á for­seta­stól.

Eftir að þeir Kristján lýstu báðir form­lega yfir fram­boðum sínum breytt­ust vind­arnir hins vegar fljótt. Krist­jáni var stillt upp sem alþýð­legum mennta­manni sem nyti nán­ari tengsla við land og þjóð en atvinnu­stjórn­mála­mað­ur­inn Gunnar. Á kjör­dag vann Kristján öruggan sigur gegn Gunnari með um tveimur þriðju atkvæða.

Sem for­seti hafði Kristján jafnan ekki afskipti af stjórn­málum lands­ins og taldi sig ekki hafa rétt til þess að synja lögum stað­fest­ingar nema í algerum neyð­ar­til­fellum. Kristján féllst á umdeilda beiðni Ólafs Jóhann­es­sonar for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof árið 1974 þrátt fyrir að vafa­mál væri hvort for­seta bæri skylda til þess að verða að ósk for­sæt­is­ráð­herr­ans um þing­rof í óþökk alþingis.

Utanþingsstjórn

Þrátt fyrir að reyna að við­halda hlut­leysi for­set­ans í stjórn­málum neydd­ist Kristján til þess að grípa inn í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður árið 1979 eftir langa stjórn­ar­kreppu og röð stutt­lífra rík­is­stjórna. Kristján gerði leið­togum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Alþýðu­flokks­ins ljóst að ef þeim tæk­ist ekki að mynda rík­is­stjórn sem gæti stað­ist van­traust­s­til­lögur á alþingi myndi Kristján beita for­seta­valdi sínu til að stofna utan­þings­stjórn.

Jóhannes Nordal Seðla­banka­stjóri féllst á að vera for­sæt­is­ráð­herra utan­þings­stjórn­ar­innar og Kristján und­ir­bjó til­kynn­ingu um stofnun hennar. Ekkert varð þó úr stofnun þess­arar stjórnar því Sjálf­stæð­is­menn féllust á síð­ustu stundu á að styðja minni­hluta­stjórn Alþýðu­flokks­ins undir for­sæti Bene­dikts Gröndals. Þessi stjórn ent­ist aðeins í tæpa fjóra mán­uði og því kom það aftur til tals árið 1980 að Kristján skyldi stofna utan­þings­stjórn. Stjórn­ar­krepp­unni lauk loks án þess að stofna þyrfti utan­þings­stjórn þegar Gunnari Thorodd­sen, hinum gamla keppi­nauti Krist­jáns um for­seta­stól­inn, tókst að mynda meiri­hluta­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Alþýðu­banda­lags­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Á nýárs­dag árið 1980 til­kynnti Kristján að hann hygð­ist ekki gefa kost á sér í fjórða sinn. Um þá ákvörðun sína sagði hann: „Enginn hefur gott af því að fara að kom­ast á það stig að halda að hann sé ómissandi.“

Heim­ildir:

Adolf Frið­riks­son. 2011, 25. maí. Hver var Kristján Eldjárn og hvert var fram­lag hans til forn­leifa­fræð­innar? Vís­inda­vef­ur­inn. Slóðin.

Óðinn Jónsson. 2016, 6. des­em­ber. Allt kemur aftur. RÚV. Slóðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina