Glúmur Baldvinsson segir í færslu á Facebook-síðu sinni að „saklaus móðir mín fékk hrottalegan póst frá konuninni sem sakar föður minn um rassastroku utanklæða og nú heldur áfram fyrir dómstólum.
Pósturinn var svo illgjarn og beindist ekkert að föður mínum heldur móður,“ ritar Glúmur og bætir hressilega í:
„Svo ég svaraði svona:
(því miður get ég ekki sýnt póst hennar því honum hefur verið eytt sem er miður því hann sýndi vanstillingu konunnar)
Carmen Jóhannsdóttir Þú kallar fólk smáborgara. Hvað ert þú? Og reynir að vanvirða konu sem þú – ekki bara smáborgari heldur hvítt rusl – gætir aldrei látið þig dreyma um að komast með tærnar þar sem hún hefur hælana.

Skrif þín bera vott um mannveru fulla af hatri og beiskju en ekki beygðri konu sem nýskriðin er upp úr andlegu áfalli.“
Glúmur gefur ekkert eftir, stígur heldur bensíngjöfina í botn:
„Þú ræðst á móður mína með slíkri grimmd að ég hef aldrei séð annað eins. Enda snýst þessi barátta ykkar ekki um JBH heldur um að koma höggi á Bryndísi Schram.

Og að lokum tel ég afar ólíklegt að nokkur vitiborinn maður með góða sjón hefði áhuga á að þukla á þér. Og í rauninni má sama segja um pakkið sem að skrifar þér til stuðnings að neðan. Þú og þið eruð skríll. Og nota bene: vildirðu ekki milljón? Choke on it.“































Athugasemdir