Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vilhjálmur Hjálmarsson og hvatvísin: „Flugeldurinn skaust inn í forstofu og á nýju skíðin mín“

Vilhjálmur Hjálmarsson og hvatvísin: „Flugeldurinn skaust inn í forstofu og á nýju skíðin mín“
Vil­hjálmur Hjálm­ars­son

„Það voru alltaf tvær jóla­ser­íur á jóla­trénu. Þetta Þor­láks­messu­kvöld fyrir 50 árum var pabbi búinn að taka þær úr sitt hvorum kass­anum og leggja til á gólfið en átti eftir að setja sam­eig­in­lega kló á þær. Ég tók tvo enda og stakk í næstu inns­tungu, fékk raf­magns­stuð og sagði ekki nokkrum manni frá því.“

Þetta segir Vil­hjálmur Hjálm­ars­son, for­maður ADHD-sam­tak­anna, þegar hann rifjar upp æsku­jólin og áhrif ADHD á hegðun sína. Áhrif hvat­vís­innar.

„Svo var það flug­eld­ur­inn sem ég setti ekki nógu vel upp og hann skaust inn í for­stofu og á nýju skíðin mín. Það var mikil sorg en skíðin skemmd­ust aðeins. Þetta teng­ist klár­lega hvat­vísi; sér­stak­lega raf­magns­sagan. Einu sinni próf­aði ég nýjan reyk­skynjara klukkan kortér yfir sjö að morgni; þá hef ég sjálf­sagt verið sjö ára. Auðvitað vissi ég hvað myndi ger­ast þegar þetta færi í gang en var bara ekki alveg búinn að hugsa málin til enda.“

ADHD-börn ráða síður við spenn­ing­inn í aðdrag­anda jóla

Vil­hjálmur segir að óop­in­ber­lega sé nokkuð við­ur­kennt að um 8-10% barna á Íslandi séu með ADHD og um 5% full­orð­inna. „Stífustu rann­sóknir horfa á eldri tölur og tala um 5-6% barna og 2,5% full­orð­inna en það er hærra; ég segi hik­laust 8-10% barna og að helm­ingur þeirra lifi með ADHD-ein­kennum eftir að heil­inn nær fullum þroska eins og maður segir. Þetta er þroska­röskun í fram­heila­stöðvum sem eru að þroskast fram undir 23-25 ára aldur og þar af leið­andi geta ein­kennin ADHD minnkað. Það er ekk­ert víst að þetta trufli suma á full­orð­ins­aldri og þeir myndu þá ekki grein­ast með ADHD.“

Kvíði og óyndi

Það líður að jólum og mörg börn bíða spennt eftir að hátíð ljóss og friðar gangi í garð. Spenn­ing­ur­inn teng­ist líka aðvent­unni þar sem ýmis­legt er í gangi og jóla­ljósin fanga augu og huga. Svo eru það jóla­lögin, jóla­svein­arnir og hitt og þetta.

„Það er þekkt að ADHD-börn ráða síður við spenn­ing­inn í aðdrag­anda jóla og þetta getur hæg­lega snú­ist upp í kvíða og alls konar óyndi. Það er mikið í gangi allan des­em­ber. Jólaböll í skólum og fleira og spenn­ing­ur­inn bygg­ist upp hægt og rólega.“

Vil­hjálmur segir að kvíði sé klass­ískt afleið­ing ADHD-ein­kenna sem magn­ist kannski upp í aðdrag­anda jól­anna. Spenn­ing­ur­inn hleðst upp. „Þá missa börn stjórn á skap­inu og það getur leitt til þess að þau verði kvíðin. Það er ein af afleið­ing­unum af öllum þessum látum af því að þau kunna ekki að slökkva á sér og eiga örugg­lega erfitt með að sofna.

Ég leysti Georg mör­gæs af

Það er þekkt að það þarf að halda aðeins betur utan um ADHD-börn og það þarf að passa upp á að þau nái að róa sig aðeins af og til. Það þarf að gera eitt­hvað með börnum með ADHD fyrir jólin. Leyfa þeim að vera með í hinu og þessu. Tala við þau og demda þeim ekki inn í eigið stress; það á ekki að gera við nein börn en þegar þetta eru ADHD-börn þá þarf for­eldrið að passa upp á börnin og um leið sjálft sig og gleyma sér ekki líka í vit­leys­unni. ADHD-börn geta orðið æst. Það á að leyfa þeim að hreyfa sig og búa til aðstæður þar sem þau eiga rólegar stundir í þessum asa. Það á að njóta þess að vera í vetr­ar­myrkr­inu og kveikja jafn­vel á kerti. Það þarf að gefa börn­unum tíma sér­stak­lega um jólin. Búa til tíma þar sem þau geta andað og geta helst slakað á með for­eldr­unum til þess að vit­leys­urnar vindi ekki upp á sig og til þess að for­eldr­arnir séu ekki með allt á milljón rétt fyrir klukkan sex á aðfanga­dag. Barnið pikkar það upp og á erf­ið­ara með að hafa stjórn á sjálfu sér af því að það er allt á fullu í kringum það. Stundum þarf að plana betur fyrir fram, ekki síst ef for­eldr­arnir eru líka með ADHD. Þú getur bókað að ef eitt barn er með ADHD þá er mjög lík­lega að annað barn af þremur sé það líka og annað for­eldrið.“

Ég fúnkera

Jú, jólin eru fram undan og jólin eru aug­ljós­lega svo­lítið til umræðu í þessu við­tali. Vil­hjálmur er spurður út í jólin áður en hann var greindur 33 ára.

„Á þeim tíma var ég oft að aðstoða ónefnda sveina sem komu ofan af fjöll­unum og svo var ég á tíma­bili vara­mör­gæs fyrir þrenn jól. Ég leysti Georg mör­gæs af.“

Burtséð frá því að vera í hlut­verki jóla­sveins­ins seg­ist Vil­hjálmur aldrei muna eftir því að skrifa jóla­kort og ef hann hefur munað það þá er orðið of seint að senda þau. „Maður reynir samt að passa upp á sína nán­ustu. Ég hef samt ekki þurft að hlaupa um bæinn kortér yfir 12 á aðfanga­dag að leita að gjöfum. Ég hef náð að klára þetta fyrir þann tíma. En ég er ekk­ert endi­lega snemma í því.“

Jú, Vil­hjálmur var 33 ára þegar hann var greindur með ADHD og fékk lyf við því. Hann er spurður hvaða máli það skipti fyrir hann að vera á lyfjum; hverju það breytir fyrir hann í dag­legu lífi.

„Ég enda ekki á að keyra í hringi eftir hádegi; ef það ger­ist þá veit ég að ég hef gleymt að taka lyfin mín.“

Hann kímir.

„Ég fún­kera. Ég fæ ekk­ert færri hug­myndir en ég kannski fram­kvæmi fleiri af þeim. Og klára hlut­ina. Ég klára hluti í vinn­unni og ann­ars staðar; mér fall­ast ekki lengur hendur af því að klára ekki neitt eins og áður fyrr og þá stóðu svo að manni öll spjót. Ég set þetta í sam­hengi við barn sem fer yfir um af spenn­ingi og svo bara hringsnýst allt og það veit ekki í hvorn fót­inn það á að stíga.

Ég keyrði sjálfan mig á kaf í mennta­skóla

Ég verð að passa mig á að detta ekki í þung­lyndi en það var á sínum tíma afleið­ing af ómeð­höndl­uðu ADHD. Það hefur komið fyrir í minni vinnu að ein­hver hefur pikkað í mig og sagt að ég sé hættur að brosa. Þá þarf ég að fara að taka til í mínu dag­lega lífi. Þá er maður orð­inn við­skota­illur og snöggreið­ist. Ágæt lýs­ing á þessu er að ADHD sé eins og jóla­sería á tré þar sem sumar per­urnar virka ekki alltaf.“

Hvað er það erf­ið­asta sem Vil­hjálmur upp­lifði varð­andi ADHD áður en hann var greindur?

„Ég keyrði sjálfan mig á kaf í mennta­skóla og síðan aftur þegar ég var byrj­aður í skóla úti í London. Ég kom heim í gríð­ar­lega góðu jafn­vægi en sex árum síðar fór allt til fjand­ans af því að ég vissi ekki hvað var í gangi. Alltaf var heim­il­is­lækn­ir­inn að gefa mér þung­lynd­is­lyf sem virk­uðu í einn eða tvo mán­uði.“

Svo fór hann á ADHD-lyf 33 ára og það tók tíma að ná jafn­vægi. „Það sem ger­ist fyrir marga sem grein­ast á full­orð­ins­árum sem fá lyf er að það er svo margt sem hrynur og það getur reynst erfitt að vinna sig út úr því. Það tekur bara tíma.“

Vil­hjálmur er spurður hvað hann hafi lært af því að hafa verið með ógreint og ómeð­höndlað ADHD í 33 ár og verið svo á lyfjum við því meira og minna síðan.

„Það var ein­stak­lega gaman að fatta af hverju sum trikk höfðu reynst mér vel og geta farið að tálga þau til eins og að færa tíma­press­una framar. Ég var alltaf ógeðs­lega góður í að redda hlut­unum á síð­ustu stundu en núna redda ég þeim aðeins fyrr. Ég kann nú orðið að setja mig í súper fókus eða nýta mér þann hæfi­leika að bíða eftir því að ná yfir­sýn­inni; vera ekki hræddur við að horfa á alla óreið­una í stóru, flóknu verki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina