Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Árni Johnsen, fjaðrafokið og dómurinn: „Ég sagði ekki beint ósatt, ég sagði ekki allan sannleikann“

Árni Johnsen, fjaðrafokið og dómurinn: „Ég sagði ekki beint ósatt, ég sagði ekki allan sannleikann“
Mynd/skjá­skot: sam­sett/DV 2003

Þann 6. febr­úar árið 2003 var fyrrum alþing­is­mað­ur­inn Árni Johnsen dæmdur í tveggja ára fang­elsi í Hæsta­rétti, fyrir fjár­drátt og umboðs­svik í opin­beru starfi, mútu­þægni og rangar skýrslur til yfir­valda. Með því þyngdi Hæsti­réttur dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem hafði hljóðað upp á fimmtán mán­aða fang­elsi.

Árni var ákærður í 27 ákæru­liðum og fyrir Hér­aðs­dómi ját­aði hann sök í 12 þeirra. Hann dró játn­ingu sína í tveimur lið­anna þó til baka í Hæsta­rétti en á það var ekki fall­ist, þar sem engin ný gögn höfðu komið fram sem sýndu fram á að draga ætti játn­ingu hans í hér­aði í efa.

Að end­ingu var hann sak­felldur í 22 ákæru­liðum í Hæsta­rétti.

En hvað var það sem Árni Johnsen var sak­felldur fyrir? Hvað gerði hann eig­in­lega?

Byko og DV

Málið hófst sum­arið 2001 með þeim hætti að úttekt­ar­miða sem sýndi að strikað hafði verið yfir nafn Þjóð­leik­húss­ins og heim­ils­fang Árna Johnsen alþing­is­manns í Vest­manna­eyjum sett í stað­inn.  Starfs­maður bygg­ing­ar­vöru­versl­un­ar­innar Byko stað­festi í fram­hald­inu við blaða­mann DV að vöru­út­tektir Árna Johnsen, alþing­is­manns og for­manns bygg­ing­ar­nefndar Þjóð­leik­húss­ins, hjá versl­un­inni væru hugs­an­lega vafa­samar og ef til vill ástæða til að skoða málið betur.

Blaða­maður lagð­ist í mikla rann­sókn­ar­vinnu og mál­inu var velt fram og til baka innan rit­stjórn­ar­innar, enda afar óvenju­legt mál í tengslum við alþing­is­mann og mik­il­vægt að stíga var­lega til jarðar.

Vikuna eftir birt­ist fyrsta fréttin um málið í DV. Allt benti nefni­lega til þess að það sem st´ð á afhend­ing­ar­seðl­inum og starfs­maður Byko hafði stað­fest ætti við rök að styðj­ast. Morg­un­blaðið tók strax afstöðu með Árna og sagði þá frétt að málið allt hefði verið mis­skiln­ingur sem strax hefði verið leið­réttur.

Timbur sem merkt var Þjóð­leik­hús­inu hafði verið sent frá Byko og heim til þing­manns­ins. Eftir því sem dýpra var grafið komu fleiri hlutir í ljós. Til að mynda höfðu óðals­kant­steinar verið sendir að heim­ili Árna í Reykja­vík og jarð­vegs­dúkur hafði ratað að heim­ili hans í Vest­manna­eyjum. Allt skrifað á leik­húsið. Téður jarð­vegs­dúkur átti eftir að vera mikið umtal­aður. Morg­un­blaðið hafði upp­lýst að dúk­ur­inn væri í geymslu í Gufunesi og þannig reynt að grafa undan frétt DV um þau svik að þing­mað­ur­inn keypti dúk­inn í nafni Þjóð­leik­húss­ins og flutti til Eyja. Þessu til sönn­unar birti blaðið mynd af dúknum í nefndri geymslu í Gufunesi. Sam­dæg­urs og Mogginn birti frétt­ina upp­lýsti DV að dúk­ur­inn hafði vissu­lega farið til Eyja en Árni laum­aði honum upp á land aftur. Málið varð að miklum áfell­is­dómi yfir Morg­un­blað­inu sem varð að við­ur­kenna mis­tökin.

Það leið ekki á löngu áður en Árni Johnsen hafði tjáð sig um málið á þeim nótum að hann við­ur­kenndi dóm­greind­ar­brest. Hann sagði svo af sér þing­mennsku. Eins og gefur að skilja höfðu allir fjöl­miðlar lands­ins gripið frétt­irnar á lofti og fylgt þeim eftir. Það heyrð­ist varla annað í sam­fé­lags­um­ræð­unni á þessu tíma­bili. Málinu lauk þó ekki með afsögn Árna Johnsen – rann­sókn var farin í gang af hálfu Rík­is­end­ur­skoð­anda. Að þeirri rann­sókn lok­inni voru öll gögn send Rík­is­lög­reglu­stjóra.

Mynd/skjá­skot Tímarit.is/DV

Ákæra gefin út – fimm sakborningar

Löng rann­sókn lög­reglu tók við. Um tíma heyrð­ist minna af mál­inu í fjöl­miðlum, enda lítið til að flytja fréttir af á meðan lög­regla fór gaum­gæfi­lega yfir gögn, við­aði að sér miklu magni af þeim til við­bótar og yfir­heyrði svo tugi manna í tengslum við málið.

Það var svo þann 6. maí árið 2002, næstum ári eftir að starfs­maður Byko hafði fyrst sett sig í sam­band við blaða­mann DV, að Rík­is­sak­sókn­ari gaf út ákæru á hendur Árna Johnsen og fjórum öðrum mönnum. Stuttu áður höfðu 12 menn verið með rétt­ar­stöðu grun­aðra í mál­inu, svo þeim hafði fækkað nokkuð.

Það var þá sem Árni, eftir að hafa haft hægt um sig um vet­ur­inn, fór í Ísland í dag og Kastljós til að skýra málið og gera hreint fyrir sínum dyrum. Viðtölin urðu ekki til að auka á vin­sældir hans. Það var umtalað að Árni hefði komið út sem hroka­fullur og laus við alla iðrun. Til að kór­óna allt saman kenndi hann fjöl­miðlum um þá klemmu sem hann var staddur í. Hann átti sann­ar­lega ekki eftir að verða síð­asti alþing­is­mað­ur­inn með horn í síðu fjöl­miðla. Árni bakk­aði ekki með sinn mál­flutn­ing.

Mynd/skjá­skot Tímarit.is

Dómur kveðinn upp

Málið var þing­fest í júní og við tóku þriggja daga rétt­ar­höld. Árni ját­aði á sig fjár­drátt upp á allt að 2,5 millj­ónir króna – sem var aðeins hluti af því sem hann var ákærður fyrir. Svo fór að í júlí dæmdi Hér­aðs­dómur Árna Johnsen í fimmtán mán­aða fang­elsi. Enginn partur dóms­ins var skil­orðs­bund­inn og því við­búið að fyrrum alþing­is­mað­ur­inn væri á leið í fang­elsi. Hinir menn­irnir fjórir voru sýkn­aðir.

Árni end­aði á að áfrýja dómnum til Hæsta­réttar, þrátt fyrir að margir lög­fróðir ein­stak­lingar teldu að áfrýjun myndi senni­lega enda í þyngri dómi. Það fór svo eins og áður sagði; dóm­ur­inn var þyngdur og Árni hlaut tveggja ára fang­els­is­dóm.

Óðalskantsteinarnir

Umræddir óðals­kant­steinar sem Árni tók út á nafni Þjóð­leik­húss­ins voru frá BM-Vallá. Í dálít­inn tíma vissi eng­inn hvar stein­arnir voru nið­ur­komnir en Árni sagði þá vera í geymslu. Það kom á dag­inn að þeir voru hreint ekki í neinni geymslu – heldur á heim­ili Árna í Vest­manna­eyjum. Árni sagði að um mis­tök hefði verið að ræða sem hann hefði ætlað sér að leið­rétta en ekki enn kom­ist í.

BM-Vallá gaf frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að Árni hefði sjálfur sótt kant­stein­ana og svo skilað sekkj­unum sem stein­arnir voru geymdir í og fengið skila­gjaldið end­ur­greitt.

„Ekki stóralvarlegt, en ekki til fyrirmyndar“

Í hádeg­is­fréttum RÚV þann 16. júlí árið 2001 tók Kristján Guy Burgess við­tal við Árna Johnsen. Í því sagði Árni meðal ann­ars að hann teldi að „út af þessu fjaðrafoki öllu“ væri rétt­ast fyrir hann að stíga til hliðar úr bygg­ing­ar­nefnd Þjóð­leik­húss­ins. Þegar Kristján spurði þá Árna hvort fjaðrafokið væri ekki til komið vegna þeirra ósann­inda sem Árni hefði við­haft í sam­skiptum við fjöl­miðla, sagði Árni: „Ég sagði ekki beint ósatt, ég sagði ekki allan sann­leik­ann, en nú hef ég gert það.“

Kristján minnti Árna þá á að hann hefði sagt kant­stein­ana vera á brettum úti í bæ.

„Já, ég sagði það vegna þess að þegar maður gengur að lager hjá fyr­ir­tæki sem selur þessa steina þá eru þeir geymdir þannig,“ svar­aði Árni.

„En þeir voru í garð­inum heima hjá þér!,“ sagði Kristján þá. Árni jánk­aði því.

„Ekki á bretti úti í bæ!,“ sagði Kristján.

„Nei,“ sagði Árni þá.

„En þú sagðir þjóð­inni það í gær,“ sagði Kristján.

„Já, það er ósatt og það er ekki gott,“ svar­aði Árni.

Kristján spurði þá hinnar aug­ljósu spurn­ingar; hvort Árna væri sætt áfram sem alþing­is­maður fyrir þjóð sem hann hafði sagt ósatt. Það var Árni hins­vegar ekki í vafa um:

„Já, já, ég held að það sé ekki þess eðlis þetta mál. Þegar standa öll járn á manni, þá reynir maður ósjálfrátt að víkja sér undan, og þetta er nú ekki alvar­legt.“

„Þér finnst þetta ekki alvar­legt?,“ spurði þá Kristján.

„Nei, ekki stóral­var­legt, en ekki til fyr­ir­myndar,“ svar­aði Árni.

Listsköpun á Kvíabryggju

Árni afplán­aði fang­els­is­dóm sinn í fang­els­inu á Kvía­bryggju frá 16. febr­úar til 16. nóv­em­ber árið 2003 – í níu mán­uði. Eftir það flutt­ist hann á áfanga­heim­ili Félaga­sam­tak­anna Verndar þar sem hann var vistaður þar til afplánun hans lauk með reynslu­lausn þann 11. febr­úar árið 2004. Á meðan Árni sat inni á Kvía­bryggju stund­aði hann list­sköpun. Hann smíð­aði margs­konar lista­verk úr fjöru­grjóti og málmi og eftir að hann lauk afplánun hélt hann lista­sýn­ingu í Duus­húsum í Keflavík.

„Liðlega tvö þús­und manns sóttu sýn­ingu Árna Johnsen í Keflavík fyrstu tvo sýn­ing­ar­dag­ana. Er þetta meiri aðsókn en áður hefur sést á list­sýn­ingu á Suð­ur­nesjum. Fjöl­menni var við opnun sýn­ingar Árna í Gryfj­unni, nýjum sýn­ing­ar­sal Byggða­safns Reykja­nes­bæjar, í Duus­húsum,“ sagði í frétt Morg­un­blaðs­ins árið 2004. „Á sýn­ing­unni eru 37 verk úr steini og fleiri efnum og nefn­ist hún Grjótið í Grund­ar­firði. Meðal gesta við opn­un­ina voru Davíð Oddsson for­sæt­is­ráð­herra og Geir H. Haarde fjár­mála­ráð­herra.“ (Tekið úr Stund­inni)

Mynd/skjá­skot RÚV

Æran og Alþingi

Árni fékk upp­reist æru árið 2006 sem veitti honum kjör­gengi á ný. Frétta­blaðið greindi frá því að skjalið hafi verið und­ir­ritað af hand­höfum for­seta­vald­ins, þeim Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Gunn­laugi Claessen, þáver­andi for­seta Hæsta­réttar og Sólveigu Pét­us­dóttur, þáver­andi for­seta Alþingis, að beiðni Björns Bjarna­sonar, þáver­andi dóms- og kirkju­mála­ráð­herra.

Árni var svo aftur orð­inn alþing­is­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 2007 og sat á þingi fram til árs­ins 2013.

Árið 2016 kom Árni Johnsen í við­tal við sjón­varps­þátt­inn Mannamál. „Ég var dæmdur fyrir dugnað,“ sagði hann meðal ann­ars í við­tal­inu. Hann þvertók fyrir að hafa tekið hluti ófrjálsri hendi og sagði málið hafa snú­ist um 1800 þús­und krónur á röngum tíma.“

Hann sagð­ist þess full­viss að hann hafi verið tek­inn fast­ari tökum en gengur og ger­ist í málum sem þessum.

Heimildir:

DV

RÚV

https://timarit.is/page/3041345#page/n7/mode/2up

https://kjarninn.overcastcdn.com/documents/ærubeiðni_Arni_Johnsen.pdf

https://stundin.is/frett/10-stadreyndir-um-arna-johnsen-sem-thu-gaetir-hafa/#_=_

https://kjarninn.is/frettir/2016-08-04-arni-johnsen-vill-aftur-thing/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina