Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Katla Margrét flaug fram af sviði í slagsmálum við aðra leikkonu

Katla Margrét flaug fram af sviði í slagsmálum við aðra leikkonu

Leik­konan, hand­rits­höf­und­ur­inn og grínist­inn, Katla Margrét Þor­geirs­dóttir, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Óhætt er að segja að Katla sé ein fyndn­asta kona Íslands, en hún hefur meðal ann­ars kitlað hlát­ur­taugar land­ans í Stelp­unum og Ára­mótaskaup­inu og vakti ásamt hljóm­sveit sinni, Heim­il­is­tónum, mikla lukku í Söngvakeppni sjón­varps­ins árið 2018, með lag­inu Kúst og fæjó.
Katla hefur einnig um nokk­urra ára skeið verið einn af hand­rits­höf­undum Skaups­ins og er engin breyt­ing á því í ár og stytt­ist nú óðum í að þjóðin fái að berja Ára­mótaskaup þessa árs augum og bíða eflaust margir með mik­illi eft­ir­vænt­ingu.
Mannlíf komst að því að Katla horfir mikið á nor­rænar glæpa­ser­íur, en sjálf fór hún einmitt með hlut­verk í einni slíkri; Ófærð, henni leið­ist að sortera pappír og seg­ist vera til vinstri.

Fjöl­skyldu­hagir? Er í sam­búð og við eigum tvo syni.

Menntun/atvinna? Lærði leik­list og starfa við það fag.

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Núna horfi ég mikið á nor­rænar glæpa­ser­íur.

Leikari? Svo margir góðir leik­arar. Ég verð að segja pass.

Rit­höf­undur? Sama svar.

Bók eða bíó? Finnst jafn gaman að lesa og að fara í bíó.

Besti matur? Það er svo breyti­legt. Um dag­inn fékk ég pönnu­steikta bleikju með smjör­steiktu græn­meti, döðlum og möndlum. Það er upp­á­hald núna.

Kók eða Pepsí? Drekk hvor­ugt.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Úff, svo margir fal­legir. Í dag ætla ég að nefna Seyð­is­fjörð.

Hvað er skemmti­legt? Hitta góða vini og vinna við skap­andi starf.

Hvað er leið­in­legt? Sortera papp­íra.

Hvaða flokkur? Alltaf til vinstri.

Hvaða skemmti­staður? Borg­ar­leik­húsið.

Kostir? Félags­lynd.

Lestir? Stundum fljót­fær.

Hver er fynd­inn? Jón Gnarr fær mig oft til að brosa.

Hver er leið­in­legur? Enginn í mínum vina­hópi.

Trúir þú á drauga? Nei.

Stærsta augna­blikið? Að fá börnin mín í fangið.

Mestu von­brigðin? Á þau senni­lega eftir.

Hver er draum­ur­inn? Að lífið haldi áfram að vera svona gjöf­ult.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Frekar rólegt ár og lítið um afrek.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei, alls ekki.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Man ekki eftir neinum sem þyrfti að kom­ast á prent.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Ég flaug einu sinni fram af sviði í slags­málum við aðra leikkonu. Það dró aðeins úr dramanu við þau hvörf.

Sorg­leg­asta stundin? Allt yfir­stíg­an­legt hingað til.

Mesta gleðin? Það sem ég geri með strák­unum mínum.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Kær­leikur og tengsl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una