Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gegga meðferðarþjálfari: „Ég brotnaði niður á geðdeild sem hjúkrunarfræðingur á vakt“

Gegga meðferðarþjálfari: „Ég brotnaði niður á geðdeild sem hjúkrunarfræðingur á vakt“

Það er ískaldur morgun þegar Helga Birg­is­dótt­ir, lista­kona og með­ferð­ar­þjálf­ari, sem oft­ast er kölluð Gegga Smiler, tekur á móti blaða­konu Mannlífs í lista­smiðju sinni við Skipa­sund. Þar hefur blaða­kona mælt sér mót við lista­kon­una og heilsugúrú­inn Geggu til þess að ræða um lífið, heils­una og list­ina. Það er boðið upp á ilm­andi te.

Helga byrjar á því að útskýra hvers vegna hún sé oft­ast kölluð Gegga.

„Gegga er gælu­nafn sem mér var gefið af móð­urafa mínum þegar ég var lítil. Ég lagði það til hliðar í ung­lings­árum af því að mér fannst það hall­æris­legt. Ég tók það svo aftur upp sem lista­konu­nafn um síð­ustu alda­mót í Lista­há­skóla Íslands.

Ég er svo­lítið klofin per­sóna. Er for­vitin, hvat­vís og fróð­leiks­fús að eðl­is­fari og verð að prófa helst allar sortir. Þess vegna borða ég alltaf á mig gat á öllum hlað­borðum.

Hjálpartæki gleðinnar

Gegga er sú geggj­aða í mér og Helga sú heilaga. Það sem kveikir áhuga hjá mér er það sem sam­einar and­lega rækt og list­sköpun. SMILER, hjálp­ar­tæki gleð­innar er dæmi um það. Hálsmen sem minnir á að þú sért skap­ari í eigin lífi með við­horfi þínu.

Þegar illa liggur á mér þá sting ég gripnum á milli munn­vikanna og bý þannig til bros. Hjúkkan í mér veit að þó að bros sé pínu falskt þá fram­leiðir það gleði­hormón sem efla heil­brigði. Þetta þýðir þó ekki að hundsa eigi erf­iðar til­finn­ingar. Ég trúi að það séu gjafir í öllu mót­læti þótt í erf­iðum umbúðum séu. Reglu­lega eru ein­stak­lingar sem sýna kjark og kær­leika í erf­iðum áskor­unum, heiðraðir sem SMILER. Þessar hvunn­dags­hetjur og fyr­ir­myndir má sjá á heima­síð­unni smiler.is.

Þar sem bíll­inn minn ber nafnið SMILER á núm­ers­plöt­unni þá er ég til­neydd að vera í gleði­gír undir stýri, sem er heppi­legt fyrir mig og þá sem á vegi mínum verða.

Ég gef öllum séns og upp­lifi það sama á móti. „Gefðu með gleði það sem þú vilt fá“ er eitt af slag­orðum SMILER. Aðalslag­orðið er haft eftir búdda­munknum Thich Nath Hanh: „ef þú brosir 5 sinnum á dag – ÁN TILEFNIS, getur þú breytt lífi þínu á 90 dögum.“ Þessa speki heyrði ég sama dag og banka­hrunið varð á Íslandi 2008. Þessi orð áttu eftir að vekja upp hug­mynd­ina að SMILER, því erfitt var að brosa þegar sparifé brann og lánin fóru á stera.“

Forvitin um sálina

Ein aðal­á­stríða Geggu er and­leg mann­rækt og hefur hún sótt ógrynni nám­skeiða og mennt­unar í tengslum við hana gegnum tíð­ina. Hún hefur alltaf verið for­vitin um sál­ina og út á hvað þetta jarð­líf gengur.

„Ég er eins og flestir aðrir alltaf að leita að ást og hef kom­ist að því að sú skil­yrð­is­lausa býr hið innra. Ef ég finn hana ekki þar, þá er von­laust að finna hana ann­ars staðar. Stundum ögra ég sjálfri mér asskoti mikið – allt fyrir þrosk­ann. Til dæmis var ég skít­hrædd við tantra og kaf­aði ofan í það um tíma, skjálf­andi á bein­unum. Ég lifði það af, lærði af því, hætti því, og hélt líf­inu áfram.

Fyrstu árin sem ég starf­aði á geðsviði LSH var þar dásam­leg lista­smiðja, aðstaða til að skapa eitt­hvað og gleyma sér. Þar mál­aði ég fjölda mál­verka sem prýddu svo veggi deild­ar­innar.  Mörgum fannst þetta vera besta með­ferðin; að dunda sér í félags­skap ann­arra án allra kvaða. Því miður var lista­smiðj­unni svo lokað eins og mörgum öðrum góðum með­ferð­ar­formum. Fókusinn var nán­ast allur á lyfja­með­ferð.“

Fékk meðvirkni í vöggugjöf

Lífið er skrítið og eng­inn lof­aði að það yrði bara gaman, segir hún.

„Ég fékk með­virkni í vöggu­gjöf sem var mér oft fjötur um fót. Ég gat illa þolað að vinna á móti gildum mínum, vera farið að mis­líka starfið og geta varla sagt nei við auka­vöktum vegna pressu og vinnu­fíknar. Einn góðan haust­dag brotn­aði ég niður, grát­andi og skjálf­andi á geð­deild­inni – ekki sem sjúk­lingur, heldur hjúkkan á vakt­inni. Ég var send í frí, en nei; að hvíla mig á meðan ég gat gengið var meira en með­virkur hugur minn gat þolað.

Hann sagði mér að hund­skast í vinn­una fyrst ég væri ekki slösuð. Og þá varð slysið! Ég hrap­aði fram af fjöru­kambi og möl­braut hægri oln­boga og rif. Hausinn fékk líka högg og hefði farið illa ef ekki hefði verið fyrir flottu sel­skinns­húf­una. Ég var ein og síma­laus, 11 stiga frost úti, hálka og myrkur að skella á.

Það var þrek­virki að ganga rúm­lega kíló­metra leið að bústað þar sem vinir voru. Að tjasla mér í fyrra horf hefur tekið tíma. Oln­bog­inn var vír­aður saman og greri bara vel. Það var aftur erf­ið­ara fyrir egóið mitt sem þrjóskað­ist lengi við að leita í Virk. Í Virk var gott fólk sem leyfði mér að gráta og vera lítil í mér. Ég sem aldrei grét, grét nú eins og Gullfoss. Guð veit hvað virkar og Virk var hár­rétti stað­ur­inn fyrir brotnu mig til að byrja að raða mér saman á ný.

Þessar minn­ingar minna mig á stóran leirskúlp­túr sem ég gerði á síð­ustu öld og hét: „ég raða brot­unum saman, orðin kona.“ Hann var gerður af konu­lík­ama í brotum sem ég límdi saman. Hann brotn­aði svo end­an­lega er vinur minn missti hann í gólfið. Efni er ekki eilíft sem betur fer og ég sjálf mun enda sem aska. Þessi kulnun var blessun eins og allt annað í líf­inu.“

Starfaði sem hjúkrunarfræðingur á geðsviði

Gegga kallar sig and­legan heilsu­m­ark­þjálfa, en hún er NLP með­ferðar- og mark­þjálfi sem notar aðferðir til að heila sig og styðja við aðra, m.a. með svo­kall­aðri IFS (innri parta­með­ferð) og The Work, aðferð Byron Katie.

Þegar hún starf­aði sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur á geðsviði fannst henni hana vanta tíma fyrir þessa með­ferð­ar­vinnu með sjúk­ling­unum.

Hún segir að: „við læknum ekki sjálfs­hatur, þung­lyndi og kvíða með pillum þótt þær geti hjálpað tíma­bundið. Ég lít ekki á and­leg veik­indi og fíknir sem sjúk­dóma heldur afleið­ingu streitu og áfalla sem hægt er að heila. Það fæð­ist eng­inn með þung­lyndi eða kvíða og þess vegna finnst mér glóru­laust að gefa börnum geð­lyf við erf­iðum til­finn­ingum.“

Gegga seg­ist nota list­með­ferðir með skjól­stæð­ingum sínum, þar sem hún hefur góða aðstöðu til þess.

„BA mynd­list­argráða mín skiptir mig minnstu máli þar, því þetta er byggt á til­finn­inga­málun en ekki fag­ur­fræði. Ég nota svo tón­list og hug­leiðslu í bland ef mér finnst það henta. Ég elska að styðja við skjól­stæð­inga sem þora að kíkja í sál­ar­djúpið og hlusta á sína innri visku, sinn mátt­uga heil­ara. Mik­il­væg­ast af öllu er kær­leik­ur­inn, skil­yrð­is­laus; að sam­þykkja allar til­finn­ingar sem er and­stæða við það sem okkur hefur verið kennt; t.d. að reiði sé röng. Sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur á geðsviði þá vann ég oft í mót­sögn við gildi mín, sem end­aði á miklu krassi eins og áður er getið.“

Kvíðinn með augum kærleikans

Hún segir að af öllu því skemmti­lega sem hún fáist við, finn­ist henni nám­skeiðin standa upp úr.

„Þau eru blanda af ýmsu og alltaf kósí. Það er svo gef­andi að vera í góðum hópi kvenna þar sem grímur eru teknar niður og sál­ar­spjall telst sjálf­sagt. Síðustu sumur hef ég haldið nám­skeið bæði á Hóla­skjóli Hálend­is­mið­stöðvar og í Syðri-Vík í Vopna­firði, fyrir þreyttar og streittar konur. Þau verða end­ur­tekin.

Upp­á­haldið mitt, The Work, aðferð Byron Katie, er ein­föld og áhrifa­rík hug­leiðslu­að­ferð sem ég elska að kenna. Síðast í nóv­em­ber var ég með helg­ar­nám­skeiðið „Kvíðinn með augum kær­leik­ans.“

Dauðinn í nýju ljósi

Í jan­úar verður svo nám­skeiðið „Dauðinn í nýju ljósi.“ Þar munum við skoða hvernig ótt­inn við dauð­ann hefur áhrif á allt okkar líf. Í des­em­ber var ég með nýj­ung; sunnu­dags­hug­vekjur „Kveiktu á ljósi þínu og slak­aðu á.“ Það var fjör!“

Hennar heitasta ósk er að skóla­kerfið skapi umræðu­völl um okkur sem and­legar verur. Þar sem ungt fólk fær að velta upp pæl­ingum án þess að full­trúi ákveð­inna trú­ar­bragða komi með svörin.

„Spurn­ingar eru oft mik­il­væg­ari en svörin – enda eng­inn með þau á hreinu. Lífið er ein­stök upp­lifun hvers og eins. Krakkar þurfa að þekkja styrk sinn og mátt kær­leik­ans; skoða sann­leika sinn – skamm­laust.

Ég hélt eitt sinn fyr­ir­lestur um hug­mynda­fræði SMILER fyrir um hund­rað ung­linga í 9. bekk. Ég spurði hvort þau tryðu að þau væru eitt­hvað meira en hold, vessi og bein – hefðu sál eða anda? Öll virt­ust rétta upp hönd, en hvar fá þau svo að ræða þessi and­legu mál?“

Gerum eitthvað skrítið og skemmtilegt

Í bók­inni hennar, SMILER getur öllu breytt (fæst á Amazon), mælir hún með að fólk gefi sér leik­dag af og til.

„Þar sem við erum ein með sjálfum okkur og gerum eitt­hvað skrítið og skemmti­legt. Enginn má vera með, því þú átt að ráða öllu! Teikna – lita – skoða í dóta­búð – móta engil í snjó­inn – bara hvað sem er.

Ég er svo með sér­nám í leir­list en mála mest núorðið – sletti leir á striga, beint úr íslenskri jörðu. Bestu verkin mín verða til þegar ég er að leika mér, drullum­alla og hugsa ekki um útkom­una. Sjá gegga.is.

Leyfðu þér að leika þér – það bætir þig og kætir!

Bókin SMILER getur öllu breytt seld­ist upp og kemur nú út í öðru upp­lagi í des­em­ber á Amazon, bæði á íslensku og ensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina