Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Flugliði þyrlubjörgunarsveitarinnar myrtur á Keflavíkurflugvelli – Blóð um gólf og veggi

Flugliði þyrlubjörgunarsveitarinnar myrtur á Keflavíkurflugvelli – Blóð um gólf og veggi

Sunnu­dags­kvöldi 14. ágúst 2005 fannt her­mað­ur­inn Ashley Turner blóði drifin í sófa í stiga­gangi á fyrstu hæð blokkar her­manna á Kefla­vík­ur­flug­velli. Ashley var aðeins tví­tug að aldrei, flug­liði í þyrlu­björg­un­ar­sveit vall­ar­ins. Hafði hún verið stungin ítrekað og bar mikla áverka. Ljóst var að mikið hafði gengið á því blóð var um gólf og vegg.

Hún var enn með lífs­marki en var úrskurðuð látin við komu á sjúkra­hús. Talið var að stungu­sár á hnakka hefði orðið henni að bana.

Þjófnaður nágrannans

Ashley Turner var fædd í Maryland fylki í Banda­rík­unum árið 1985, dóttir for­eldra sem bæði voru í sjó­hernum og fylgdi hún í fót­spor þeirra við útskrift úr mennta­skóla. Því næst starf­aði hún í tækni­deild björg­unar­sveitar varn­ar­liðs­ins með góðum vitn­is­burði. Hún stefndi síðar á nám í dýra­lækn­ingum.

Ashley Turner ásamt bróður sínum.

Skömmu síðar var Calvin Hill, tví­tugur her­maður hand­tekin grun­aður um að hafa ráðið henni bana. Áður hafði Ashley kært mann­inn fyrir að stela, ásamt öðrum her­manni, hátt á þriðja þús­und doll­urum af banka­korti sínu og höfðu þau átt í deilum vegna þessa. Bjuggu þau í sömu bygg­ingu á meðan málið var í rann­sókn og þykir nokkuð merki­legt að Turner skuli ekki hafa verið boð­inn nýr gisti­staðður. Hill var enn að bíða nið­ur­stöðu í því máli þegar morðið átti sér stað en meintum sam­verka­manni hans hafði verið vísað úr landi. Þegar Turner var myrt voru aðeins nokkrir dagar í að hún ætti að bera vitni í mál­inu.

Blóðblettir og horfinn hnífur

Þar sem engir Íslend­ingar komu að mál­inu tók banda­ríski her­inn við mál­inu að fullu og komu til lands­ins erlendir sér­fræð­ingar að beiðni hers­ins. Flestir sem að mál­inu komu töldu að morðið væri full­sannað á Hill þar sem til að mynda blóð­blettir úr Turner fund­ust á skóm hans. Ekki bætti úr skák að kærasta Hill bar fyrir dómi að sama kvöld hefði hann brugðið sér út yfir bíó­mynd og sagst myndu þurfa að hitta yfir­mann sinn. Þegar hann sneri aftur hófst hann þegar handa við að þvo föt sín. Kærstan bar einnig fyrir að rétti að hnífur hefði horfið með Hill úr eld­hús­inu.

Allir sem að máinu komu töldu að rétt­ar­höld yrðu til mála­mynda, svo óvé­fengj­an­legar væru sann­an­irnar. Hann neit­aði þó ávallt sök en ját­aði þjófn­að­inn. Hill var fluttur til Þýska­lands í kjöl­farið og yfir­heyrður og þaðan til Banda­ríkj­ann þar sem dæmt var í mál­inu. Átti hann yfir sér lífs­tíðar- og jafn­vel dauða­dóm. Það kom varn­ar­lið­inu í opna skjöldu þegar Hill var sýkn­aður af morð­inu þar sem kvið­dómur taldi að ekki hefði verið rann­sakað nægi­lega hvort aðrir ger­endur kæmu til greina, til að mynda kær­asti Turner sem átti yfir sér dóm vegna fíkni­efna­brots.

Vonuðust eftir dauðarefsingu

Eina refs­ingin sem Hill fékk var lækkun í tign í hernum. Foreldar Turners voru aftur á móti afar ósáttir við með­ferð og nið­ur­stöðu og gagn­rýndu til að mynda harð­lega að dóttir þeirra hefði verið neydd til að búa í sama stiga­gangi og Hill eftir þjófn­að­inn. Þau sögðu opin­ber­lega hafa von­ast eftir dauða­refs­ingu.

„Við erum afar von­svik­in,“ sagði Larry Turner, faðir Ashley í sam­tali við frétta­menn, skömmu eftir að dómur féll. „Ég er hræddur um sam­fé­lagið. Það gengur morð­ingi laus. Dóttir mín er dáin og ein­hver var valdur að dauða hennar.“

Ekkert frekar aðhafst

Banda­rísk yfir­völd gáfu út þá yfir­lýs­ingu að þau myndu ekk­ert aðhaf­ast frekar í mál­inu og kann­aði þá fjöl­skylda Turner hvort unnt væri að hefja mál gegn Hill á Íslandi. Svo gekk ekki þar sem í við­auka við Varn­ar­samn­ing Íslands og Banda­ríkj­anna frá 1951 segir að rík­is­stjórn Íslands óski ekki eftir að fara með lög­sögu í málum varn­ar­liðs­manna sem hún hafi áskilið sér nema um sé að tefla sakir sem hafi sér­staka þýð­ingu fyrir Ísland.

Ef engin ný sönn­un­ar­gögn koma upp sem benda á að ein­hver annar gæti verið morð­ingi Ashley Turners, eða gefa stað­fest­ingu á sekt Calvin Hills, mun engum verða refsað fyrir morðið um ókomna tíð.

Bak­sýnispeg­ill­inn er end­ur­birtur. Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina