Rúmenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa ekki komið manni í hættu til bjargar, er Daníel Eiríksson lést í apríl á þessu ári en hann fannst látinn á bílastæði í Vindakór í Kópavogi.
Fram kemur í ákærunni að Daníel hafi haldið með báðum höndum í hliðarrúðu bíls sem hinn ákærði keyrði og dregist þannig með eða hlaupið með bílnum um fjórtán metra þar til hann datt í jörðina. Var bílnum ekið á mili 15 og 20 kílómetra hraða.
Samkvæmt Rúv
er maðurinn ákærður til vara fyrir hættubrot og fyrir að hafa ekki komið Daníel til bjargar.
Í ákærunni stendur að er Daníel féll í jörðina hafi sá ákærði ekið af vettvangi án þess að athuga með hann. Telur saksóknaði að með háttsemi sinni hafi hinn ákærði stofnað lífi og heilsu Daníels í augljósa hættu en Daníel lést á sjúkahúsi daginn eftir atvikið vegna höfuðáverka. Sakborningurinn er krafinn um 15 milljónir króna af fjölskyldu Daníels, í skaða og miskabætur.
Í vor voru þrír handteknir í tengslum við rannsókn málsins en einn þeirra var úrskurðaður í gæsluvarðhald og farbann. Vakti það athygli þegar hann komst úr landi þrátt fyrir farbannið en stóð til að gefa út evrópska handtökuskipun til að fá hann sendan aftur til landsins.
Rúmeninn heldur því fram að Daníel hafi dáið af slysförum og það hafi ekki verið meining hans að keyra á hann. Segist hann ekki hafa áttað sig á alvarleika málsins.
Fyrir stuttu tók Mannlíf viðtal við föður Daníels, Eirík Sigurbjörnsson þar sem hann meðal annars ræddi sonarmissinn.
„Ég hafði verið snemma á fótum. Vaknaði snemma. Og eins og venjulega fór ég á hnén og bað til Guðs. Þetta er stór dagur, föstudagurinn langi. Ég bað í tvo tíma. Svo las ég um krossfestingu Jesú Krists. Ég var að hugleiða hvað mannskepnan getur verið ótrúlega grimm og hvernig hermenn umkringdu Jesú sem var allur í sárum. Blóðugur. Þeir slógu hann og settu á hann þyrnikórónu og gerðu gys að honum. Þeir voru þvílíkt fjandsamlegir. Ég var að hugleiða þetta klukkan hálfátta. Síðan rúmlega átta fór ég af stað, fór ég út að hjóla. Heilsusamlegt. Síðan kom ég heim rétt um ellefu og þá kom konan mín til dyra og út á stétt náföl og sagði að lögreglan væri búin að hringja og hefði sagt að Daníel hefði fundist særður úti á götu, það væri búið að fara með hann á spítala og hann væri kominn á gjörgæslu. Ég varð alveg máttlaus. Ég hringdi og það var sagt að hann hefði fundist, væri skaddaður og væri í öndunarvél.“
Sjá einnig: EINKAVIÐTAL: Eiríkur á Omega grætur sonarmissi: „Það er svo hræðilega sárt að missa Daníel“































Athugasemdir