Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

EINKAVIÐTAL: Eiríkur á Omega grætur sonarmissi: „Það er svo hræðilega sárt að missa Daníel“

EINKAVIÐTAL: Eiríkur á Omega grætur sonarmissi: „Það er svo hræðilega sárt að missa Daníel“
Eiríkur hefur misst tvö börn sín.

Eiríkur Sig­ur­björns­son, stofn­andi og sjón­varps­stjóri kristi­legu sjón­varps­stöðv­ar­innar Omega, hefur gengið í gegnum hel­víti. Hann hefur misst tvö börn; elsta barn hans dó vöggu­dauða og í vor lést yngsta barn hans, son­ur­inn Daníel, sem var þrí­tugur. Grunur er uppi um að hann hafi lát­ist vegna sak­næms athæfis. Eiríkur segir að hann myndi fyr­ir­gefa bana­manni sonar síns ef sá myndi iðr­ast, ganga á Guðs vegi, játa og biðja um fyr­ir­gefn­ingu. Sjón­varps­stjór­ann dreymdi sem barn um að verða upp­finn­inga­maður eins og Edison, honum fór að finn­ast martröð að vera í skóla, hann fór að taka hug­breyt­andi efni þegar hann varð eldri og frels­að­ist svo á sam­komu hjá Fíla­delfíu, rúm­lega tví­tugur, sem hann hélt fyrst að tengd­ist ofsa­trú þar sem fólki væri dýft í vatn þangað til það sæi dúfu. Ævin­týrið hófst í kjöl­farið en hann stofn­aði síðar kristi­lega útvarps­stöð og síðar kristi­lega sjón­varps­stöð. Nú er heim­ur­inn undir. Og segja má að þeim heimi teng­ist dómur upp á 10 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og greiðslu 109 millj­óna í sekt vegna brota á skatta­lögum.

„Það sem hjálpar manni lík­lega lang­best er að gráta. Gráta og gráta. Ég græt með ein­hverra daga milli­bili kannski í einn til tvo tíma stans­laust. ar nýfermdur, glaður á skell­inöðr­unni og að prjóna, lífið Það er svo hræði­lega sárt að missa Daníel. Allar minn­ing­arnar. Rifja upp þegar hann vlasti við og hvað hann hafði brenn­andi áhuga á að vera í við­skiptum. Hann var mjög klár í öllum við­skiptum og hann hefði plu­mað sig vel og stóð sig alltaf vel í öllu og var alveg feiki­lega dug­legur. Hann var eft­ir­sóttur í vinnu því hann var það röskur og dug­legur,“ segir Eiríkur Sig­ur­björns­son, stofn­andi og sjón­varps­stjóri kristi­legu sjón­varps­stöðv­ar­innar Omega, í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni, en yngsta barn Eiríks, Daníel, lést í vor. Hann fannst að morgni föstu­dags­ins langa liggj­andi í blóði sínu á bíla­stæði og leikur grunur á að dauða hans hafi borið að með sak­næmum hætti.

Eiríkur rifjar upp þennan morgun.

„Ég hafði verið snemma á fótum. Vaknaði snemma. Og eins og venju­lega fór ég á hnén og bað til Guðs. Þetta er stór dagur, föstu­dag­ur­inn langi. Ég bað í tvo tíma. Svo las ég um kross­fest­ingu Jesú Krists. Ég var að hug­leiða hvað mann­skepnan getur verið ótrú­lega grimm og hvernig her­menn umkringdu Jesú sem var allur í sárum. Blóðugur. Þeir slógu hann og settu á hann þyrni­kór­ónu og gerðu gys að honum. Þeir voru því­líkt fjand­sam­legir. Ég var að hug­leiða þetta klukkan hálf­átta. Síðan rúm­lega átta fór ég af stað, fór ég út að hjóla. Heilsu­sam­legt. Síðan kom ég heim rétt um ell­efu og þá kom konan mín til dyra og út á stétt náföl og sagði að lög­reglan væri búin að hringja og hefði sagt að Daníel hefði fund­ist særður úti á götu, það væri búið að fara með hann á spít­ala og hann væri kom­inn á gjör­gæslu. Ég varð alveg mátt­laus. Ég hringdi og það var sagt að hann hefði fund­ist, væri skadd­aður og væri í önd­un­ar­vél.“

Daníel fór í aðgerð og í ljós kom að ástandið var alvar­legra en haldið hafði verið í fyrstu og lést hann í kjöl­farið. Hann var þrí­tugur.

Mæðginin Kristín Kui Rim og Daníel Eiríks­son. Hún sá ekki sól­ina fyrir syni sínum.

Frum­burður Eiríks og eig­in­konu hans, Krist­ínar Kui Rim, sem er frá Suður-Kóreu, lést vöggu­dauða. Það var son­ur­inn Kristinn og kvaddi hann þennan heim þriggja mán­aða gam­all árið 1987. „Við höfum þurft að ganga í gegnum mjög erf­iða tíma, ég og konan mín. Það var hræði­legt áfall. Mikil tár og mikil sorg sem við þurftum að ganga í gegnum. Það er svo ynd­is­legt fólk til. Við fengum svo góðan stuðn­ing og bænir. Og ekki síst þegar tárin runnu, þá hugg­aði Jesús mann. Mestu og bestu hugg­un­ina fékk ég þegar Guð faðm­aði og hugg­aði mig.“

Eiríkur er spurður hvort það sé eitt­hvað verra til en að missa barnið sitt.

„Ég held ekki. Ég var að hug­leiða þetta. Mig minnir að það hafi verið Egill Skalla­gríms­son sterki; hann hafði misst son sinn. Það var ekki hægt að ræða við hann. Það var svo mik­ill harmur. Ég var að hug­leiða í morgun að þegar Jakob, ætt­faðir Ísra­els­manna sem átti mörg börn, frétti, sem var raun­veru­lega ekki rétt, að sonur hans, Jósef, hefði dáið, þá varð hann ekki við­ræðu­hæfur. Það var ekki hægt að ræða við hann. Harm­ur­inn var það mik­ill.“

Ég græt með ein­hverra daga milli­bili kannski í einn til tvo tíma stans­laust.
Við höfum þurft að ganga í gegnum mjög erf­iða tíma, ég og konan mín.

Ekki slys

Eiríkur segir að Daníel hafi lifað „riskí“ lífi. Hann hafði verið í neyslu en snúið við blað­inu og verið edrú í sjö mán­uði þegar hann féll skömmu áður en hann dó.

„Freist­ing­arnar voru svo miklar að Daníel féll. Hann átti að fara í með­ferð eða hitta lækni á föstu­deg­inum langa, en hann var í neyslu um nótt­ina. Vinkona hans, kærasta hans, vakn­aði og tók eftir að hann var ekki á staðnum. Hún kíkti svo út og sá hvar hann lá í blóði sínu. Þetta er alveg hræði­legt. Maður var settur í gæslu­varð­hald en var leystur út eftir fjóra til fimm daga. Sverrir, sonur minn, sagði að þetta hlyti að vera hræði­legt áfall fyrir þann sem olli þessu, ef þetta var slys; okkur datt í hug hvort við ættum að ræða við hann og hugga hann, ef þetta hefði verið slys. En nokkrum dögum síðar var hann far­inn að dilla sér á fullu, selja eit­ur­lyf og gera alls konar kúnstir án þess að sýna nokkra iðrun. Þetta veit lög­reglan.

Daníel lést í blóma lífs­ins.

Kærasta Daníels var búin að lifa mjög erf­iða tíma. Loksins fann hún þann sem hún elskaði, var búinn að gefa henni von, var góður við hana og stapp­aði stál­inu í hana. Stúlka sem tal­aði við hana sagði að móðir sín hefði orðið vitni að þessu og sagði henni í smá­at­riðum það sem móðir hennar hafði sagt henni. Hún sagði að það hefði verið ógeðs­legt að sjá mann­inn í sömu peys­unni þegar vett­vangs­rann­sókn vat gerð og þegar hann framdi þetta ódæði. Hún sagði að þetta hefði ekki verið slys. Daníel datt niður og mað­ur­inn keyrði yfir hann og bakk­aði síðan yfir hann. Kærasta hans vildi hitta mömmu stúlkunnar, sem var til í það, en svo þegar þær hitt­ust þá sagð­ist konan aldrei hafa séð þetta. Fólk er hrætt. En hvernig vissi hún að mað­ur­inn hafði verið í sömu peys­unni?“

Voru illindi á milli Daníels og umrædds manns?

„Já, það sem varpar efa á að þetta hafi verið óvilja­verk er að akkúrat ári áður, upp á dag, þá rændi þessi náungi gull­meni sem mamma Daníels hafði gefið honum. Upp á dag. Daníel var aldrei sáttur við það og vildi fá það til baka en honum hafði verið hótað dag­ana á undan og var tölu­vert smeykur. Hann sagði á áfanga­heim­il­inu, sem hann var á, að honum hefði verið hótað. Það hafði farið að renna af honum þarna um morg­un­inn og hann þurfti meira. Þá kom þessi sendi­boði sem aug­lýsti á Instagram eða hvað það heitir og Daníel sá það og þá var það akkúrat mað­ur­inn sem hafði rænt af honum ári áður.

Það eru margir sem leið­ast út á óheilla­braut en innst inni vilja þeir lifa öðru­vísi lífi og ég hugsa og get sagt það hérna að ef þessi við­kom­andi ein­stak­lingur iðr­að­ist, breytti til, gengi á Guðs vegi, ját­aði og beidd­ist fyr­ir­gefn­ingar þá væri ég fyrsti maður til að rétta fram hönd­ina og reyna að hjálpa honum, vegna þess að ég hef reynslu af því að hjálpa þeim sem eru komnir í þennan far­veg. Ég myndi fyr­ir­gefa honum. En eins og staðan er í dag þá gengur hann ekki á Guðs vegi og fyrr eða síðar verður hann öðrum og sjálfum sér til skaða ef hann er ekki stopp­aður af.“

Ég myndi fyr­ir­gefa honum.

Eiríkur segir að Daníel hafi verið með gott upp­lag og átt mikla og bjarta fram­tíð. „Það var búið að ganga mikið á og það var svo góður árangur að nást. Hann var glæsi­menni. Vel byggður, fal­legur og með gott hjarta. Vinir hans eru í áfalli og ég hef þurft að hitta sér­stak­lega einn vin hans sem er enn þá í áfalli. Sumir hafa ekki treyst sér til að fara að leið­inu hans. Fleiri hund­ruð manns sáu útför­ina. Hann var vin­margur og þetta var mikil hryggð fyrir alla. Einn vinur hans sagði að Daníel væri sá ein­stak­lingur sem væri með besta hjarta sem hann hefði nokkurn tím­ann kynnst. Annar sagð­ist ekki hafa talað íslensku þegar hann var í skóla og hefði verið lagður í ein­elti, en það var einn sem tók hann að sér og það var Daníel. Stúlka sem hafði verið í partíi með Daníel þótti ekki vera nógu fín og var henni vísað á dyr. Daníel fór út til að hugga hana.“

Já, það sem varpar efa á að þetta hafi verið óvilja­verk er að akkúrat ári áður, upp á dag, þá rændi þessi náungi gull­meni sem mamma Daníels hafði gefið honum.

Orð Guðs upp í gervihnött

Eiríkur Sig­ur­björns­son er Reyk­vík­ingur. Bjó sem lítið barn í bragga um tíma en man þó fyrst eftir sér þegar fjöl­skyldan var flutt á Flóka­göt­una.

„Allt í einu fékk ég vitrun þegar ég var átta eða níu ára gam­all. Upplifun. Þá sagð­ist ég vita hvað ég ætl­aði að verða þegar ég yrði stór. Ég ætl­aði að verða eins og Edison. Þá sagði systir mín að ég yrði að vera dug­legur að læra. Nei, nei – Edison hætti í skóla þegar hann var smá­krakki og honum vegn­aði mjög vel og ég ætl­aði að verða upp­finn­inga­maður. Ég hafði mik­inn áhuga á öllu slíku.“

Árin liðu.

„Ég var eins og hver annar ung­lingur. Vildi frjáls­ræði og var áhuga­samur um að gera skemmti­lega hluti, spenn­andi hluti, og var í góðum félags­skap. En það end­aði þannig að við fórum að fikta með vín og það leiddi að öðru. Síðan fann ég engan til­gang í því að vera í skóla. Mér fannst það vera algjör martröð. Mér fannst vera svo heimsku­legt að læra algebru vegna þess að ég vissi að ég myndi aldrei nota algebru í líf­inu. Af hverju að eyða tíma í það?

Það varð breyt­ing á mínu lífi árið 1974,“ segir Eiríkur en þá fór hann á sam­komu í Fíla­delfíu með kunn­ingja sínum sem átti kunn­ingja sem hafði frels­ast. „Ég hugs­aði síðan með mér út í hvað ég væri að fara núna; Fíla­delfía tengd­ist ofsa­trú og þeir héldu fólki ofan í vatni og slepptu ekki fyrr en það sæi dúfu. Ég hélt að þetta væri eitt­hvað furðu­legt en samt sem áður var ég búinn að lofa kunn­ingja mínum að koma.“ Eiríkur heyrði að maður sem hefði verið í neyslu væri frels­aður og hann hugs­aði með sér að þetta væri eitt­hvað sem pass­aði honum ef hann gæti „frels­ast frá þessu ves­eni“.

Fíla­delfía tengd­ist ofsa­trú og þeir héldu fólki ofan í vatni og slepptu ekki fyrr en það sæi dúfu.

Það varð ekki aftur snúið. Eiríkur fann nýjan veg til að ganga eftir í líf­inu.

„Það breytt­ist allt eftir að ég komst til lif­andi trúar. Þá fékk ég góða og mikla sýn,“ segir Eiríkur og nefnir boð­skap­inn sem var fluttur í Fíla­delfíu og nefnir Einar Gíslason predik­ara sem tal­aði undir miklum inn­blæstri og segir að skemmti­legir Bibl­íu­lestrar hans séu ógleym­an­legir.

Eiríkur hugs­aði með sér að margir fengjust ekki til að fara á sam­komur en að allir sætu fyrir framan sjón­varps­tækin. „Þá sá ég að besta leiðin til að flytja orð Guðs til lands­manna væri í gegnum sjón­varp.“ Þetta var í kringum 1975. Eiríkur stund­aði síðan nám við Bibl­íu­skóla í Noregi í níu mán­uði og kom aftur til Íslands árið 1976. Hann var þá 26 ára. Hann fór að skoða hvað þyrfti til að stofna sjón­varps­stöð en honum fannst þetta vera svo dýrt og sá ekki fyrir sér að þetta yrði hægt. „En síðan, þegar við komumst til trúar, þá lærum við það að fyrir Guð eru allir hlutir mögu­legir.“

Árin liðu og árið 1986 var svo leyfi gefið frjálst til að stofna útvarps- og sjón­varps­stöðvar. „Ég fékk sterka sann­fær­ingu um hver væri vilji Guðs og í stað þess að byrja á sjón­varpi hugs­aði ég með mér að það væri létt­ara að byrja með útvarp og sótti ég um útvarps­leyfi og fékk leyfi mjög fljót­lega. Síðan var haf­ist handa við að finna sendi og loft­net og annað sem til þurfti.“

Kristi­lega útvarps­stöðin Alfa fór síðan í loftið sama ár. Hvað með fjár­magn? „Ég sett­ist niður og skrif­aði bréf til bræðra og systra í trúnni og sagði að nú væri tæki­færi fyrir okkur að ná til þjóð­ar­innar með fagn­að­ar­er­indið. Fólk byrj­aði að leggja fram stuðn­ing og hægt og síg­andi fengum við fjár­magn til þess að fjár­magna þetta.

Ég sett­ist niður og skrif­aði bréf til bræðra og systra í trúnni og sagði að nú væri tæki­færi fyrir okkur að ná til þjóð­ar­innar með fagn­að­ar­er­indið.

Eftir tvö og hálft ár var oft á bratt­ann að sækja vegna þess að trú­ar­leið­togar í öðrum söfn­uðum voru kannski ekk­ert ánægðir með að ég væri að tala til þeirra sauða og þeir voru kannski hræddir um sinn hag. Það hófst svaka­legur bar­dagi og mót­staða. Ég varð veru­lega undr­andi, en síðan höfðum við bræður og systur úr öllum sam­fé­lögum sem stóðu með okkur.“

Eiríkur, sem vildi verða upp­finn­inga­maður eins og Edison, hugs­aði lengra. Hann hugs­aði um heim­inn sem er stærri en Ísland. „Guð vill að við förum með fagn­að­ar­er­indið út um allan heim. Þá fór ég að athuga með útvarps­senda sem myndu ná frá Íslandi út um allan heim og ég rann­sak­aði hvað til þurfti.“

Enn leið tím­inn og dimman nóv­em­ber­dag árið 1991 stóð Eiríkur inni á bað­her­bergi heima hjá sér. „Þá allt í einu birti til á bað­her­berg­inu og ég heyrði mjög sterka og ákveðna rödd mjög djúpt innra með mér segja að ég ætti að byggja upp kristi­lega sjón­varps­stöð á Íslandi. Ég lyfti upp höndum og sagði: „Drottinn, ég veit að þú ert að tala og ég ætla að hlýða þér því ég veit að þú verður með.“ Þá vissi ég nákvæm­lega hvað ég þurfti að gera.“

Það var hægt að leigja sendi og í júlí árið 1992 hóf sjón­varps­stöðin starf­semi sína. Og enn liðu árin. Eiríkur hefur stækkað veldi sitt og árið 2002 var sent beint upp í gervi­hnött og dag­skrá dreift inn á millj­ónir heim­ila í Skand­in­avíu.

Ég lyfti upp höndum og sagði: „Drottinn, ég veit að þú ert að tala og ég ætla að hlýða þér því ég veit að þú verður með.“
Guð vill að við förum með fagn­að­ar­er­indið út um allan heim.

Dæmdur fyrir skattabrot

Eiríkur hefur verið dæmdur í 10 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi. Þá þarf hann að greiða 109 millj­ónir í sekt vegna brota á skatta­lögum. Hann var dæmdur fyrir að hafa ekki gefið upp tekjur upp á 78,5 millj­ónir á árunum 2011–2016 í tengslum við starf­semi Omega og þannig kom­ist hjá því að greiða skatta upp á 36 millj­ónir. Fram kom í dómi hér­aðs­dóms að Ei­rík­ur hefði árið 1992 hafið starf­semi Omega, en hann og kona hans voru eig­end­ur fé­lags­ins Omega Krist­ni­boðs­kirkja auk Global Missi­on Network ehf. og Gospel Chann­el Evr­ópa ehf. Í síð­ast­nefnda fé­lag­inu var rek­in er­lend starf­semi Omega og var fé­lagið með reikn­inga í Nor­egi og greiðslu­kort þar.

Rík­is­skatt­stjóri hóf árið 2016 að eig­in frum­kvæði skoðun á notk­un á er­lend­um greiðslu­kort­um hér á landi. Í fram­hald­inu var notk­un Ei­ríks á kort­um í nafni Global Missi­on tek­in til skoð­unar og var hann síðar ákærður vegna máls­ins. Í dóm­n­um er farið yfir að Ei­rík­ur hafi fengið greiðslur frá Omega en að þær hafi svo verið færðar sem skuld á Global Missi­on og að þar hafi safn­ast upp skuld Ei­ríks við fé­lagið. Var skuld­in met­in sem hinar van­fram­töldu tekj­ur og féllst dóm­ur­inn á það. Seg­ir í dóm­n­um að ótví­rætt sé að um­rædd út­hlut­un af fjár­mun­um Global Missi­on til Ei­ríks hafi verið lán sem bar að skatt­leggja sem laun og færa til tekna, enda var lánið óheim­ilt sam­kvæmt ákvæðum laga um einka­hluta­fé­lög, en eig­end­um er óheim­ilt að taka lán frá eig­in fé­lög­um. Sem fyrr seg­ir var Ei­rík­ur dæmd­ur í 10 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi, en tekið er fram að tals­verðar taf­ir hafi verið á með­ferð máls­ins. Þá er hann dæmd­ur til greiðslu þre­faldr­ar þeirr­ar upp­hæðar sem hann var fund­inn sek­ur um að hafa kom­ist hjá að greiða, eða sam­tals 109 millj­ón­ir.“

Það eru tekjur sem ég hafði erlendis sem valda mér þessum vand­ræðum.

„Það er í und­ir­rétti og það er búið að áfrýja því vegna þess að við undum ekki nið­ur­stöð­unni,“ segir Eiríkur sem segir að hann hafi verið sýkn­aður af 10 mán­aða skil­orðs­bundnu fang­elsi en ef hann geti ekki greitt þá sé það fang­elsi.

Omega er orðið að stór­veldi undir stjórn Eiríks.

„Það verður að taka betur á þessu og það verður gert. En allir þeir sem starfa með mér og eru tengdir mér vita að Omega er ekk­ert inni í þessu. Þetta eru mín per­sónu­legu mál. Það eru tekjur sem ég hafði erlendis sem valda mér þessum vand­ræðum. Ég hef aldrei reynt að svíkja undan skatti. Aldrei stolið pen­ing. Allt rekj­an­legt. Málið snýst um að þetta voru erlendar tekjur sem ég áleit alltaf að væru færðar inn sem laun og fyrir mér er þetta raun­veru­lega svo­lítið mér að kenna, að fylgj­ast ekki með ef það er þannig. Það er mik­il­vægt að fylgj­ast með bók­haldi og bók­halds­vinnu,“ segir Eiríkur sem vildi ekki læra algebru í skóla. „Ég er með góðan bók­hald­ara og það er ekk­ert við hann að sakast, en það getur ýmis­legt farið úrskeiðis sem er ekki hægt að höndla. Þegar betur er að gáð eru kannski ekki allir hlutir 100% í lagi og það vita menn sem reka fyr­ir­tæki. Maður hefði átt að vera vak­andi.“

Eiríkur Sig­ur­björns­son vill fara enn lengra með orð Guðs. Hann segir að það séu mjög bjartir tímar fram undan. „Við höfum tæki­færi til að fara inn á sjón­varps­hnött sem dreifir inn á 139 millj­ónir heim­ila í Evrópu, Norður-Afríku og Mið-Aust­ur­löndum. Við stefnum að því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una