Hin árlega pakkasöfnun í Kringlunni gengur ekki vel í ár og er það því annað árið í röð sem illa gengur að safna pökkum.
„Raunin er sú að pakkasöfnun í ár og reyndar í fyrra er með því lakasta sem við höfum séð um margra ára skeið,“ segir Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar í viðtalið við Fréttablaðið.
Mögulega er ástæðan Covid faraldurinn að sögn Baldvinu.
„Við sjáum sláandi mun frá fyrri árum, en við teljum að það hljóti að vera vegna Covid. Margar fjölskyldur höfðu það fyrir hefð að koma saman í Kringluna og kaupa jólagjöf fyrir barn eða ungling sem fá ekki gjafir vegna fjölskylduaðstæðna. En nú er eins og fólk stoppi styttra við vegna ótta við smit og gefi sér ekki tíma eða gleymi að setja gjöf undir tréð.“
Baldvina segir einnig í viðtalinu að boðið sé nú upp á nýjung til þess að bæta úr pakkaskortinum.
„Fólk sem vill gefa börnum og unglingum sem minna mega sín gjafir fyrir jólin geti farið inn á kringlan.is og valið sér upphæð sem það vill láta renna í gjöf. Síðan erum við með litla jólaálfa sem fara og kaupa gjafirnar og pakka þeim inn og merkja og setja undir tréð.“
Samkvæmt Fréttablaðinu gengur einnig illa að safna gjöfum í Smáralindinni.































Athugasemdir