Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þóra heilari gekk í gegnum ofbeldissambönd: „Ég er eins og millistykki fyrir þá“

Þóra heilari gekk í gegnum ofbeldissambönd: „Ég er eins og millistykki fyrir þá“
Þóra Guðrún Gríms­dóttir

Þóra Guðrún Gríms­dóttir hefur unnið við heilun um ára­bil.

„Ég man ekki sér­stak­lega eftir and­legum hæfi­leikum mínum frá því ég var barn nema að því leyti að þegar ég fór inn á þessa braut og fór að vinna í and­legum málum sem full­orðin mann­eskja þá átt­aði ég mig á því að það er indíáni sem fylgir mér og hefur gert frá því ég var barn og tengd­ust leik­irnir mínir svo­lítið mikið indíánum. Ég gerði mér samt ekki grein fyrir því þá. Ég var á æsku­ár­unum mikið að reyna að hjálpa ef ein­hver átti bágt eða vant­aði eitt­hvað. Ég man að ég var ofboðs­lega myrk­fælin sem barn en svo lærði ég að vinna á því og þannig að ég hef ein­hvern veg­inn lært að takast á við hræðslu og hindr­anir sem fylgja kannski því að vera næmur án þess að skilja það sem barn.“

Árin liðu. Þóra Guðrún fór ein­hverju sinni til mið­ils á ung­lings­ár­unum sem sagði að hún ætti eftir að vinna með hönd­unum. Hún fór að læra hár­greiðslu 17 ára gömul og vann við það fag í um 20 ár og rak eigin stofur um tíma bæði úti á landi og í Reykja­vík.

„Ég var með kæk þegar ég var að klippa og með­höndla fólk í stólnum. Ég strauk þá oft  hönd­unum fyrir ofan höf­uðin á þeim sem voru í stólnum það kom ekk­ert hár­greiðsl­unni við. Ég hélt að þetta væri kækur og von­aði að eng­inn tæki eftir þessu. Einu sinni var ég og kona, sem var fastakúnni, tvær eftir á stof­unni og hún sagði að ég væri að heila fólk á meðan ég gerði þetta. Þá kveikn­aði svo­lítið á per­unni hjá mér af því að það komu margir til mín sem áttu erfitt og sem sögðu mér oft margt svo sem í tengslum við erf­iða lífs­reynslu sem þeir höfðu gengið í gegnum. Þessi kona fór að segja mér hvað fælist í heilun og hún bauð mér að koma í þró­un­ar­hring þar sem var mið­ils­þjálfun. Þar eig­in­lega byrj­aði ferða­lagið mitt á þess­ari braut; að þróa þennan hæfi­leika og átta mig á því hvaða hæfi­leika ég hafði. Ég var í svona hringjum í mörg ár.

Ég strauk þá oft hönd­unum fyrir ofan höf­uðin á þeim sem voru í stólnum það kom ekk­ert hár­greiðsl­unni við

Ég hef einnig sótt ýmis nám­skeið og lærði meðal ann­ars OPJ-orku­punkta­jöfnun og engla­reiki auk þess að læra fyrri lífa heilun. Ég hef alltaf verið ofboðs­lega for­vitin um fyrri líf og fund­ist það liggja bein­ast við að það hljóti að vera ein­hver til­gangur – við erum ekki bara í dag á jörð­inni. Það hlýtur að vera ein­hver til­gangur með þessu en ann­ars væri ekki rétt­látt af hverju sumir sigla nokkurn veg­inn lygnan sjó en aðrir lenda aftur og aftur í ein­hverjum áföllum og erf­iðum lífs­reynslum.

Þessi fyrri lífa heilun finnst mér vera mjög merki­leg af því að þar tengi ég mig við engla og mína leið­bein­endur og þá sem koma til mín. Fólk fer í það líf sem þarf til að tengja við núver­andi líf og sér þá kring­um­stæður í nýju ljósi. Það er kannski erfitt að útskýra þetta en þá nær það að tengja við af hverju það er í þessu í dag og það er kannski búið að ströggl­ast svona í nokkur líf; er alltaf í svip­uðum aðstæðum. Og þegar það fær að sjá það þá fær það yfir­leitt hjálp við að koma sér úr þessum aðstæðum.“

Þóra Guðrún seg­ist finna fyrir kær­leiksorkunni þegar hún heilar en hún seg­ist þá tengja sig við alheims­ljósið og leið­bein­endur sína. „Ég er eins og milli­stykki fyrir þá af því að þeir þurfa að fá jarð­teng­ing­una mína til að geta nálg­ast mann­eskj­una sem kemur eða sem er verið að biðja fyrir,“ segir Þóra Guðrún sem hefur verið með fyr­ir­bæna­bók í mörg ár.

Ég er eins og milli­stykki fyrir þá af því að þeir þurfa að fá jarð­teng­ing­una mína til að geta nálg­ast mann­eskj­una sem kemur eða sem er verið að biðja fyrir

Þóra Guðrún segir að það ger­ist engin krafta­verk í tímum hjá sér. „Það sem ég hef fengið að heyra og hef upp­lifað sjálf er að and­lega hliðin hjá þeim sem leita til mín verður miklu sterk­ari til að takast á við það sem þeir eru að ganga í gegnum.“

Óútskýrður barnsgrátur

Þóra Guðrún skynjar og hefur verið ber­dreymin en seg­ist ekki sjá látna mikið en þó stundum og þá til hliðar. Hún talar um hlið­ar­sjón. Hún tekur nokkur dæmi um hæfleika sína.

„Ég bjó á sínum tíma í gömlu, þriggja hæða húsi á Vest­fjörðum. Ég var tví­tug og var til­tölu­lega nýbúin að eign­ast mitt fyrsta barn. Svefn­her­bergið var í ris­inu og þar svaf barnið. Ég heyrði oft barns­grát þegar ég var komin á mið­hæð­ina eftir að barnið var sofnað uppi á kvöldin. Ég hljóp alltaf upp en alltaf var barnið steinsof­andi. Þetta gerð­ist ítrekað. Þáver­andi mað­ur­inn minn og mágur fóru einu sinni á skemmtun og ég og systir mínum ákváðum að lyfta okkur aðeins upp heima. Barnið var í pössun heima hjá tengda­móður minni. Við syst­urnar sátum í stof­unni og spjöll­uðum saman þegar allt í einu heyrð­ist barns­grátur. Þá litum við hvor á aðra og ég spurði hvort hún heyrði grát­inn og hún sagði svo vera. Það var ekk­ert barn í hús­inu. Þá vissi ég og við að þetta væri nátt­úr­lega eitt­hvað að handan. Það að systir mín skyldi líka heyra grát­inn sann­færði mig um að svo væri.

Þá litum við hvor á aðra og ég spurði hvort hún heyrði grát­inn og hún sagði svo vera. Það var ekk­ert barn í hús­inu

Ég var byrjuð í hár­greiðsl­unni á þessum tíma og var með stofu í hús­inu og einn dag­inn kom kona til mín og þar sem hún sat í stólnum fór hún að tala um húsið og sagði að þar hefði hörmu­legur atburður átt sér stað. Hún sagði að barn á fyrsta ári hefði dottið ofan í lút­ar­bala og lát­ist í kjöl­farið. Ég var svo mik­ill krakki í sjálfu sér að ég var ekk­ert að for­vitnst um hvaða ár þetta hafði gerst en húsið var byggt í kringum 1900 þannig að þetta hefur senni­lega gerst á fyrri hluta 20. aldar. Þá var þetta litla barn að láta vita af sér öllum þessum ára­tugum síðar.“

Berdreymin

Þóra Guðrún flutti í annað hús nokkrum árum síðar. Hún segir að hún hafi alltaf fundið ein­hverja fyr­ir­stöðu þegar hún gekk inn í húsið. „Það var eins og þar væri ein­hver eða eitt­hvað sem ég þyrfti að troða mér í gegnum. Ég vakn­aði stundum við það að mér fannst sonur minn koma gang­andi úr her­berg­inu sínu inn í her­bergið mitt en hann var alltaf steinsof­andi. Þá var ein­hver annar á ferð­inni í hús­inu. Síðan vakn­aði dóttir mín oft upp og grét mikið, en hún var þá tveggja ára en sonur minn sex ára, og þá sá ég allaf hálf­gert „ljósashow“ í loft­inu í her­berg­inu hennar.“

Fjöl­skyldan flutti síðan úr hús­inu og eftir það hitti Þóra Guðrún konu sem var þá flutt í húsið. Konan spurði Þóru Guðrúnu hvort hún hafi aldrei orðið vör við neitt í hús­inu.

„Ég sagði kon­unni frá því sem ég hafði upp­lifað í hús­inu og þá sagði hún mér frá því að vina­hjón hennar hafi komið í heim­sókn og mað­ur­inn, sem var mið­ill, hafi bara verið að reka út á meðan hann var þar. Ég heim­sótti kon­una síðar og það var eins og við mann­inn mælt; það var engin hindrun þegar ég gekk inn í húsið.“

Ég sagði kon­unni frá því sem ég hafði upp­lifað í hús­inu og þá sagði hún mér frá því að vina­hjón hennar hafi komið í heim­sókn og mað­ur­inn, sem var mið­ill, hafi bara verið að reka út á meðan hann var þar

Þóra Guðrún segir að áður en hún flutti í þetta hús hafi sig dreymt ömmu sína sem hafi sagt í draumnum að hún ætl­aði að búa í kjall­ar­anum hjá barna­barn­inu. „Ég hafði þá aldrei séð húsið að innan en amma sýndi mér húsið í draumnum og eftir að ég sá húsið þá gerði ég mér grein fyrir að það var akkúrat speg­il­mynd af því húsi sem amma sýndi mér í draumnum. Ég var svo að fara til Spánar ein­hverjum árum áður en þetta var, nánar til­tekið 17 ára, en viku áður dreymdi mig að amma kæmi í heim­sókn til mín og sagð­ist vilja kveðja mig. Amma var þá á Grund og orðin mjög veik. Ég heim­sótti hana áður en ég fór til Spánar og skynj­aði að hún vissi af mér. Ég var komin til Spánar nótt­ina áður en Karl Breta­prins og Díana giftu sig en ég man að þann dag var hátíð á Spáni og nótt­ina áður dreymdi mig að amma kæmi til mín og sagð­ist vilja fá sófann sinn og lít­inn, bleikan kistil sem tengd­ist mér ekki.

Svo hugs­aði ég ekk­ert út í draum­inn. Þegar ég var svo í vél­inni á leið til Íslands fletti ég Morg­un­blað­inu og sá þar til­kynn­ingu um að amma hefði lát­ist nótt­ina sem mig dreymdi að hún kæmi í heim­sókn til mín og bæði um sófann og kistil­inn, og að hún yrði jörðuð dag­inn sem ég flaug heim. Þannig að hún heim­sótti mig aftur til að láta mig vita að hún væri farin og vildi fá þessar eigur. Ég var svo­lítið sár yfir því að hafa ekki verið látin vita að hún væri dáin en mér var sagt þegar heim kom að það hefði engu breytt; ég hefði ekki komið fyrr heim hvort sem væri og þau vildu ekki skemma fríið fyrir mér. Ég sætt­ist alveg á þá skýr­ingu.“

Gefur mikið

Sjálf hefur Þóra Guðrún leitað til heil­ara en hún hefur upp­lifað ýmis áföll í gegnum tíð­ina.

„Faðir minn var mik­ill sjúk­lingur og hann dó þegar ég var 18 ára en hann og báðar ömmur mínar dóu á nokk­urra mán­aða tíma­bili. Ég varð vitni að krapa­flóð­unum á Pat­reks­firði í jan­úar 1983 og það er áfall sem ég er nýbúin að vinna úr, næstum því 40 árum seinna.“ Þóra Guðrún sá þegar annað krapa­flóðið hreif með sér hús sem stóð nokkrum metrum frá heim­ili hennar. „Svo á ég tvö ofbeld­is­sam­bönd að baki sem var erfitt að losa sig úr og bæði heilun og fyrri lífa heilun hafa hjálpað mér mjög mikið í að vinna í því að sætta mig við og fyr­ir­gefa. Þannig að það er ýmis­legt sem ég hef gengið í gegnum. Ég trúi því að við lifum aftur og aftur og að við komum til að öðl­ast ákveðna reynslu. Við erum búin að ákveða að við ætlum að öðl­ast ákveðna reynslu á þess­ari jörð.“

Þóra Guðrún segir að það sem hún hafi lært af því að vera með þessa hæfi­leika sé að við höfum öll til­gang með því að koma á jörð­ina. „Ég hef lært að dæma ekki fólk heldur reyni að skilja af hverju fólk er í ákveðnum aðstæðum.“

Og hún segir að það gefi sér mikið að geta aðstoðað fólk sem heil­ari. „Mér hlýnar um hjarta­ræt­urnar þegar ég veit að ég hef hjálpað mann­eskju og get gefið þennan kær­leika frá mér sem mér var falið að nota.“

Ég trúi því að við lifum aftur og aftur og að við komum til að öðl­ast ákveðna reynslu
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við