Sjötug kona féll í hálku nálægt heimili sínu austur á Héraði föstudaginn 3. desember. Konan gat ekki risið aftur á fætur og veifaði því bílum sem keyrðu framhjá í von um hjálp. Allt kom fyrir ekki en þó nokkrir bílar keyrðu framhjá án þess að virða hana viðlits.
Mjög kalt var í veðri og fannst konunni sem heil eilífð hefði liðið á meðan hún beið eftir miskunnsömum samverja en sennilega liðu um 20 mínútur þar til samverjinn lét sjá sig.
„Það var ungur strákur á mjög stórri vinnuvél sem stökk úr vélinni og hjálpaði mér inn,“ sagði konan í samtali við Mannlíf.
Konan fór ekki til læknis fyrir eftir helgi og kom þá í ljós að hún var fótbrotin en brotið er nálægt öklanum. Fékk hún gifs upp að hné en vegna þess að hún hefur ekki nægan kraft í handleggjunum getur hún ekki notast við hækjur. Náðist að útvega henni hjólastól sem hún notar enda má hún ekki stíga í fótinn.
„Mig langar endilega að koma kærum þökkum á framfæri til unga mannsins sem bjargaði mér úti í kuldanum, ég náði ekki nafninu hans,“ sagði konan að lokum við Mannlíf.































Athugasemdir