Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Súsanna og neyslan: „Ég grét á Sæbrautinni, leið eins og ég væri búin að keyra yfir mikið af dýrum“

Súsanna og neyslan: „Ég grét á Sæbrautinni, leið eins og ég væri búin að keyra yfir mikið af dýrum“
Skjáskot af Eigin Konum

Súsanna var 18 ára greind með geð­hvarfa­sýki eftir alvar­leg geð­rof og ánetj­að­ist ung fíkni­efnum.

Hún sagði sögu sína í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur.

Súsanna Sif Jóns­dóttir, 30 ára náms­maður, ólst upp í Breið­holti á góðu heim­ili.

Hún var tólf ára gömul þegar hún byrj­aði að nota kanna­bis og segir ekki hafa verið aftur snúið eftir fyrsta skiptið.

Súsanna var greind með geð­hvar­far­sýki átján ára gömul en byrj­aði að finna fyrir ein­kennum mikið fyrr; í eitt skiptið ætl­aði hún að hoppa niður af svölum því hún var viss um að fólk væri að reyna að drepa hana:

„svo var ekki aftur snúið“

„Ég var átta ára þegar ég fór að vera mjög döpur.

Mamma fór með mig að leita aðstoðar því hún vissi ekki hvað var að.

Ég var mjög erf­iður ung­lingur og erfið í skapi; það var alveg byrjað að nefna varð­andi mig geð­hvörf, þegar ég var 15-16 ára.

En á þessum tíma var ekki verið að greina börn svona ung. Þannig að ég fór ekki form­lega í grein­ingu fyrr en ég var orðin lög­ráða; ég fór til geð­læknis þegar ég var 18 ára,“ segir Súsanna.

Þegar Súsanna var í grunn­skóla var mikið um áfeng­is­neyslu á meðal ungra krakka í kringum hana. Hún var, eins og áður segir, aðeins tólf ára þegar hún byrj­aði að nota kanna­bis, en henni var boðið það af eldri krökkum.

Hún neit­aði fyrst, en skipti svo um skoðun og þá segir hún ekki hafa verið aftur snúið; hún segir fíkni­efnin hafa fyllt upp í tóma­rúm innra með henni, sem hún vissi ekki að væri til staðar:

„Það er eins og ég hafi ekki tekið eftir því að ég hafi ekki verið heil, en svo var eins og þetta væri púslið sem vant­aði.“

Innan fárra ára var Súsanna komin í neyslu á örvandi efnum og seldi fíkni­efni til að fjár­magna neysl­una:

„Það var eina leiðin, eða selja lík­ama sinn. Ég reyndar gerði það ekki; eða ekki beint; ég átti ýmsa kærasta á þessu tíma­bili og ég er ekki viss um að ég hefði valið þessa menn í líf mitt ef það væri ekki fyrir hvað þeir áttu mik­inn pen­ing og hvað þeir áttu mikið dóp,“ segir Súsanna.

„Ég hélt að fólk væri að reyna að drepa mig“

Súsanna segir frá alvar­legu geð­rofi þar sem hún kom sér í lífs­háska:

„Ég hélt að fólk væri að reyna að drepa mig og sá alls konar ofsjónir. Ég var að keyra, já, ég var að keyra í geð­rofi, og búin að vera vak­andi ég veit ekki hvað lengi. Ég stopp­aði ein­hvers staðar á Sæbraut­inni því ég bara hágrét af því mér leið eins og ég væri búin að keyra yfir svo mikið af dýrum.

Ég sá bara dýr alls staðar á Sæbraut­inni.“

Heldur áfram:

„Ég var á ein­hverjum tíma­punkti stödd í blokk þar sem ég ætl­aði að fleygja mér fram af svöl­unum af því ég hélt að það væri fólk að fara að ná mér. Fólk er hvort sem er að fara að drepa mig, og ég ætla ekki að gefa þeim það heldur gera þetta sjálf þá.

Fólkið sem var með mér stopp­aði mig af og gaf mér alls konar eit­ur­lyf til að ná mér út úr þessu ástandi, sem ég veit ekki hvort hafi verið góð hug­mynd, en þau voru að reyna að hjálpa mér því ég var alveg farin.“

„þakk­lát að hafa ekki slasað neinn.“

Súsanna vann við að keyra á þessum tíma, ásamt því að selja fíkni­efni:

„Ég var alltaf að selja eit­ur­lyf, en ég var líka að vinna; ég þori varla að segja það – ég var í heim­send­inga­þjón­ustu. Ég er heppin að hafa ekki drepið neinn,“ segir hún en við­ur­kennir að hún hefði eitt sinn keyrt á kyrr­stæðan bíl og sé mjög þakk­lát að hafa ekki slasað neinn.

Súsanna var alin upp á góðu heim­ili:

„Ég fékk gott vega­nesti í upp­eld­inu mínu, og mamma mín er metn­að­ar­fyllsta kona sem ég veit um, og pabbi minn er dug­leg­asti verka­maður sem ég veit um.

Ég var með góðar fyr­ir­myndir í líf­inu, og þetta er and­stæðan við það sem ég er; þetta er svo ólíkt mér. Ég gerði hluti sem ég hefði aldrei getað trúað að ég myndi gera,“ segir hún.

Saga Súsönnu er saga mann­eskju sem hefur lent í miklum raunum, og hefur tekið á sínum málum.

En því miður greind­ist Súsanna með krabba­mein, árið 2017, sem hún er enn að glíma við. Vonandi tekst henni að vinna þann bar­daga líkt og hún gerði í bar­átt­unni við fíkni­efnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina