Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Brynhildur leikhússtjóri: „Enginn getur farið heill í gegnum lífið án þess að vita uppruna sinn“

Brynhildur leikhússtjóri: „Enginn getur farið heill í gegnum lífið án þess að vita uppruna sinn“
Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir Mynd. Skjáskot/RÚV

Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir var nýtekin við sem leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins þegar skellt var í lás vegna COVID-19 og segir það vissu­lega hafa verið krefj­andi en það sé þó verk­efni sem hún muni leysa ásamt sínu frá­bæra starfs­fólki.

Bryn­hildur seg­ist telja að eng­inn geti farið heill í gegnum lífið án þess að vita upp­runa sinn en sjálf var hún á ung­lings­aldri þegar hún fékk að vita að blóð­faðir hennar væri franskur. Á sama tíma og Bryn­hildur stóð frammi fyrir því að þurfa að loka leik­hús­inu eftir örfáa daga sat hún úti í sal þar sem frum­sýn­ing var um það bil að hefj­ast í Borg­ar­leik­hús­inu þegar hún fékk sím­tal um að blóð­faðir hennar væri lát­inn.

Franskur blóðfaðir

Bryn­hildur er fædd árið 1972. Hún er ein­birni, dóttir hjón­anna Mar­grétar Páls­dóttur og Guðjóns Magn­ús­sonar, bjó í Kópavogi sem barn, gekk í Digra­nes­skóla, átti kött og fór í sveit á sumrin. Hún seg­ist hafa átt góða æsku og notið góðs atlætis for­eldra sinna. Um ung­lings­ald­ur­inn hafi hún fengið að vita að blóð­faðir hennar væri franskur sem hafi skýrt það að hún hafi alltaf skorið sig aðeins úr, með sitt dökka hár og stóru brúnu augun. Hún hafi kom­ist í sam­band við blóð­föður sinn mörgum árum síðar, þegar hún var sjálf komin á full­orð­insár og stödd í fríi í Frakk­landi. Þá hafi hún haft upp á honum og hringt í hann.

„Það var merki­leg stund. Ég sagði honum að hann þekkti mig ekki neitt og ég væri ekki að fara fram á neitt frá honum en ég væri frá Íslandi og hugs­an­lega dóttir hans. Hann tók mér ein­stak­lega vel og það var mikil gæfa að fá að kynn­ast honum og fjöl­skyldu hans. Ég held að eng­inn geti farið heill í gegnum lífið án þess að vita upp­runa sinn. Myndin verður að vera heil, ann­ars erum við ekki heil.

Hann lést svo í mars síð­ast­liðnum úr lungna­krabba­meini. Ég sat úti í sal þar sem frum­sýn­ing á Skatt­svik Develop­ment Group var um það bil að hefj­ast í Borg­ar­leik­hús­inu þegar ég fékk sím­talið. Stundum þarf að kyngja hlut­unum hráum. Ég fór fram og tók sím­talið, stramm­aði mig af og snýtti mér og sett­ist svo inn á sýn­ing­una. Þannig var það nú.

Þetta var kvöldið fyrir frum­sýn­ingu á 9 lífum, en þann dag vissum við að þremur dögum síðar myndum við skella í lás í leik­hús­inu vegna heims­far­ald­urs COVID-19. Þarna hafði ég verið leik­hús­stjóri í þrjár vikur. Það gekk sem sagt á ýmsu á fyrstu metr­unum. En þetta er nú víst það sem er kallað lífið.“

Bryn­hildur man vel „hvernig leik­listin setti í fyrsta sinn fingrafar á sál­ina“ í henni, eins og hún orðar það sjálf. Það var í Þjóð­leik­hús­inu árið 1976. „For­eldrar mínir fóru með mig að sjá Kar­demommu­bæ­inn. Ég sat víst graf­kyrr og sagði ekki orð allan tím­ann, en eftir sýn­ing­una gjör­sam­lega frík­aði ég út. Ég var mjög stillt barn,“ segir hún og leggur áherslu á orðið mjög, „þótt ég hafi vissu­lega verið upp­á­tækja­söm en upp­á­tækin fólust kannski helst í því að skoða í skúffur sem ég mátti ekki skoða í og klæða kött­inn í dúkku­föt.

Ég var ekki fyr­ir­ferð­ar­mikið barn eða með læti, en þarna horfðu for­eldrar mínir á ein­hverja óhemju sem hringsner­ist og velt­ist á gólf­inu, þessi fyrsta upp­lifun mín af leik­hús­inu hafði svo ofboðs­lega sterk áhrif á mig. Tjaldið féll og ég bara umturn­að­ist. Ég verð mömmu og pabba ævin­lega þakk­lát fyrir að hafa hlustað á mig romsa upp úr mér sögum og leyft mér að hlusta enda­laust á plötur. Ég var ábyggi­lega óþol­andi,“ segir hún og hlær létt.

Öll dýr í dýraríkinu

Á meðan Bryn­hildur skrif­aði BA-rit­gerð­ina sína í frönsku á þriðja ári í Háskól­anum ákvað hún að sækja um í leik­list­ar­skóla í Bret­landi. Hún hafði tekið þátt í Stúd­enta­leik­hús­inu í Háskól­anum og seg­ist hafa verið komin á bragðið með að vera í útlöndum eftir að hafa dvalið í Frakk­landi og þess vegna ákveðið að sækja bara um í Bret­landi en ekki í Leik­list­ar­skól­anum hér heima.

„Ég vildi kom­ast í eins klass­ískt leik­ara­nám og mögu­legt var og valdi því Bretland. Ég fór í inn­töku­próf í nokkrum leik­list­ar­skólum í Bret­landi. Einn af þeim var Guild­hall School of Music & Drama í London og ég fann um leið og ég kom þangað inn í fyrsta skipti að þarna vildi ég vera. Ég hafði farið í inn­töku­próf í öðrum skóla og þar var allt mjög eins­leitt og upp­skrúfað. Svo kom ég inn í Guild­hall þar sem voru bara öll dýr í dýra­rík­inu: Stór og lítil, feit og mjó, svört og hvít, græn og gul, skökk og ekki skökk og svona og hinsegin. Mér fannst ég passa þarna inn. Þarna var allt lit­rófið.“

Ég var mjög stillt barn

Bryn­hildur man vel „hvernig leik­listin setti í fyrsta sinn fingrafar á sál­ina“ í henni, eins og hún orðar það sjálf. Það var í Þjóð­leik­hús­inu árið 1976. „For­eldrar mínir fóru með mig að sjá Kar­demommu­bæ­inn. Ég sat víst graf­kyrr og sagði ekki orð allan tím­ann, en eftir sýn­ing­una gjör­sam­lega frík­aði ég út. Ég var mjög stillt barn,“ segir hún og leggur áherslu á orðið mjög, „þótt ég hafi vissu­lega verið upp­á­tækja­söm en upp­á­tækin fólust kannski helst í því að skoða í skúffur sem ég mátti ekki skoða í og klæða kött­inn í dúkku­föt.

Ég var ekki fyr­ir­ferð­ar­mikið barn eða með læti, en þarna horfðu for­eldrar mínir á ein­hverja óhemju sem hringsner­ist og velt­ist á gólf­inu, þessi fyrsta upp­lifun mín af leik­hús­inu hafði svo ofboðs­lega sterk áhrif á mig. Tjaldið féll og ég bara umturn­að­ist.

Ég verð mömmu og pabba ævin­lega þakk­lát fyrir að hafa hlustað á mig romsa upp úr mér sögum og leyft mér að hlusta enda­laust á plötur. Ég var ábyggi­lega óþol­andi,“ segir hún og hlær létt.

Ástin var sannarlega velkomin í mitt líf

Bryn­hildur kynnt­ist unnusta sínum, Heimi, fyrir rúmum tíu árum síðan. Hún var þá til­tölu­lega nýskilin. Hún seg­ist við­ur­kenna að hún hafi hugsað með sér að hún yrði ein­hleyp það sem eftir væri.

„Ég var 38 ára og fannst ég bara ljót og óáhuga­verð en ég hugsa að það sé eðli­legt að slíkar til­finn­ingar bær­ist innra með manni eftir skilnað. En svo þarf ein­fald­lega að spýta í lóf­ana og áfram gakk. Ástin var sann­ar­lega vel­komin í mitt líf.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hjá Vikunni.

Heimild:

Guðrún Óla Jóns­dóttir. „Þetta er nú víst það sem er kallað lífið.“ Vikan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina