Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Mugison vill að Magnús Eiríksson hljóti heiðurslaun listamanna: „76 ára og er enn að semja á fullu“

Mugison vill að Magnús Eiríksson hljóti heiðurslaun listamanna: „76 ára og er enn að semja á fullu“
Mugison og Magnús Eiríks­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ef þú þekkir ein­hvern sem er í nefnd­inni sem úthlutar Heið­urs­launum Lista­manna þá langar mig að biðja þig um að sann­færa við­kom­andi um að Maggi Eiríks verði val­inn núna“

Þetta skrifar tón­list­ar­mað­ur­inn Mugison á Facebook-síðu sinni og hefur fengið miklar og jákvæðar und­ir­tektir við færsl­una.

Um Magnús Eiríks­son, tón­list­ar­mann og laga- og texta­höf­und, segir Mugison enn­fremur: „Hann er ekki bara besti laga- og texta­höf­undur Íslands heldur er hann líka geggjað fynd­inn og töff gaur. Hann er orð­inn 76 ára gam­all og er enn að semja á fullu.“

Eins og Mugison bendir á í færslu sinni hefur Magnús Eiríks­son samið fjöld­ann allan af lögum. Um er að ræða ótal perlur sem hafa skipað sér sess í þjóð­ar­sál Íslend­inga, á borð við Ein­hvers­staðar, ein­hvern tím­ann aftur, Bragga­blús, Reyndu aftur, Kóngur einn dag, Samferða, Ómissandi fólk, Ég er á leið­inni, Ó þú og svo mætti lengi áfram telja.

„Mig langar að biðja þig/þjóð­ina um að senda póst á þann stjórn­mála­mann sem þú fílar mest og saman getum beitt nefnd­ina þrýst­ingi og heiðrað hann Magga og þannig þakkað fyrir perlurnar sem hann hefur gefið okkur,“ segir Mugison. Hann seg­ist hafa sent póst bæði á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið ([email protected]) og for­sæt­is­ráðu­neytið ([email protected]) með til­lög­unni.

Hann lætur svo hlekk á alls­herjar- og mennta­mála­nefnd fylgja færsl­unni og biður um að fólk sendi þeim eina eða tvær línur um það að Magnús Eiríks­son sé sann­ar­lega verð­ugur hand­hafi Heið­urs­launa Lista­manna.

Magnús Eiríks­son. Mynd/skjá­skot RÚV.

Á hverju ári veitir Alþingi allt að 25 lista­mönnum heið­urs­laun á fjár­lögum. Það er alls­herjar- og mennta­mála­nefnd sem leggur til breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til fjár­laga ár hvert um þann hóp lista­manna sem nýtur heið­urs­launa.

„Þeir einir geta notið heið­urs­launa sem hafa varið starfsævi sinni eða veru­legum hluta hennar til list­starfa eða skarað fram úr við list­sköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóða­vett­vangi,“ segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins um heiðus­laun lista­manna.

Athugasemdir vegna Megasar

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hafa und­an­farið borist athuga­semdir vegna heið­urs­laun­anna, þar sem vakin hefur verið athygli á því að tón­list­ar­mað­ur­inn og laga­höf­und­ur­inn Megas sé meðal þeirra sem hljóti launin.

Megas hefur hlotið heið­urs­laun lista­manna und­an­farin átján ár. Nýverið var Megas sak­aður um að hafa nauðgað ungri konu árið 2004. Stundin fjall­aði um málið og birti við­tal við kon­una. Hún sagð­ist hafa reynt að kæra málið en það hafi ekki borið árangur.

Heið­urs­laun lista­manna eru veitt lista­manni að fullu til sjö­tíu ára ald­urs og skulu þá vera þau sömu og starfs­laun lista­manna eru á hverjum tíma. Eftir sjö­tugt verða þau 80% af starfs­launum í sam­ræmi við eft­ir­laun.

Samkvæmt frétt RÚV frá því í gær hefur alls­herjar- og mennta­mála­nefnd fundað tvisvar í vik­unni um heið­urs­launin, meðal ann­ars vegna athuga­semd­anna sem borist hafa um Megas. Ekki er víst að nefndin hafi yfir höfuð vald til þess að svipta ein­hvern heið­urs­launum lista­manna, enda hefur það aldrei verið gert. Nið­ur­staða í mál­inu þarf að liggja fyrir áður önnur umræða fjár­laga fer af stað, næst­kom­andi þriðju­dag.

Það er því, eins og Mugison bendir á, enn hægt að senda athuga­semdir og til­lögur á nefnd­ina, þó tím­inn sé knappur.

Hér má finna nefnd­ar­menn í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina