Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Meintur ofbeldisfaðir stígur fram – Kona sakar Gísla um ofbeldi á opinberum vettvangi

Meintur ofbeldisfaðir stígur fram – Kona sakar Gísla um ofbeldi á opinberum vettvangi

Mannlíf greindi frá því í gær að kona saki ofbeld­is­mann sinn um að sækja sér vor­kunn á Facebook eftir að hún greindi frá ofbeld­inu. Konan greindi frá þessu í opnum Facebook hóp þar sem hún bað fólk um að trúa honum ekki, einnig hefur hún tekið fram að hún geti sent einka­póst með nafni og heim­il­is­fangi hjá mann­inum ef fólk óskar eftir því. Maðurinn, Gísli að nafni, hafði sam­band við Mannlíf með sína hlið á mál­inu og segir barns­móður sína deila um sig lyga­sögum.

„Barns­móðir sem sakar mig um að vera ofbeld­is­mann á opin­berri Facebook síðu og sinni eigin facebook síðu er ger­andi sem leikur fórn­ar­lamb. Barns­móðir missti skap oft í sam­band­inu okkar fór úr einum upp í tíu í brjál­æðisköstum og sló mig og barði mig í höf­uðið mörgum sinnum í sam­band­inu og í lík­amann og baðst bara fyr­ir­gefn­ingar í eitt skipti. Einu sinni braut hún rauðan antíks­stól í reiðiskasti. Hún hót­aði mér með börn­unum þegar ég bað um skilnað og sagði að mála­ferli gætu tekið mörg ár og ég fengi aldrei að sjá börnin mín aftur. Hún hót­aði mér svo ég gæfi lög­heim­ili barna okkar við skilnað og sagð­ist segja öllum að ég hafi verið vondur við sig með öðrum hót­unum. Í sam­band­inu heyrðu nágrannar hana öskra á mig öllum illum orðum og nöfnum og hringdu í for­eldra mína út af því. Ég varð fyrir lík­am­legu og and­legu ofbeldi í sam­band­inu okkar og einnig Gas­ljóstrun sem ég þá átt­aði mig ekki á hvað var.“

Í sam­tali við blaða­mann Mannlífs sagði móðir Gísla frá sinni upp­lifun á sam­band­inu. Hún seg­ist hafa verið mikið inni á heim­il­inu á þessum tíma og aldrei vitað af neinu ofbeldi. Sam­bandið hafi verið storma­samt og parið hafi verið „stál í stál“ en aldrei hafi verið nein saga um ofbeldi. Fjöl­skylda Gísla seg­ist vera orðin lang­þreytt á áreit­inu frá kon­unni en það eru rúm þrjú ár síðan þau skyldu og hefur hún síðan þá, sakað Gísla um ofbeldi gagn­vart sér og börnum sínum.

Gísli og konan eiga tvö börn saman og eru þau með sam­eig­in­lega umgengni.

„Eftir að við eign­uð­umst son okkar þá sagð­ist hún vilja annað barn en ég var ekki alveg viss um það en þá hót­aði hún mér og sagð­ist þá fara bara sér­leið til að eign­ast það. Móðir mín heyrði allt þetta. Í umgeng­is­mál­inu eftir skilnað skrif­aði hún svo að dóttir mín hefði verið slys, hefði verið getin óvart. Hvaða mann­eskja getur logið svona og sagt svona ljóta lygi um sitt eigið barn?“

Móðir Gísla seg­ist hafa orðið vitni að þessum sam­ræðum en þegar Gísli sagð­ist ekki vera til­bú­inn í fleiri börn sagði konan að hún myndi þá leita annað til að fá því fram­gengt, sam­kvæmt Gísla og móður hans.  Hjá sýslu­manni sagði konan dóttur sína hafa orðið til fyrir slysni.

Konan sagði blaða­manni Mannlífs að hún og börnin hennar væru í hættu vegna Gísla: ,Maðurinn getur komið og ráð­ist illi­lega á mig og mína“ sagði hún.

Alltaf eru þó tvær hliðar á öllum málum og hefur Gísli allt aðra sögu að segja: „Hún segir hvað sem er til að meiða aðra og láta aðra líta illa út. Hún kemur bæði með til­gangs­lausar og ljótar lygar eins og um dóttir okkar og alvar­legar til mann­orðs­morðs.

Konan deildi mynd af sári í Facebook hópnum og segir Gísla hafa veitt henni þá áverka.„Málið er að ef hún hefur fengið klór eftir mig á háls­inn þá hefur það verið af því hún réðst alltaf á mig til að berja mig í lík­ama og höfuð og ég að verja mig. Eða þá að ég hafi aldrei veitt henni neina áverka“ Gísli bætir við að konan eigi sögu um sjálf­skaða og hann telur hana jafn­vel hafa veitt sér þessa áverka sjálf.

Konan á barn úr fyrra sam­bandi og segir Gísli líta á son hennar sem sinn eigin. Hann, for­eldrar hans og systk­ini voru í lífi barns­ins í sjö ár. Eftir skilnað segir Gísli kon­una hafa komið í veg fyrir öll sam­skipti son­ar­ins við sig og fjöl­skyldu sína.

„Ég ól hann upp í 7 ár og er með myndir af honum sem barns­móðir gerði sem stendur besti pabbi í heimi. Hann kall­aði mig bæði Gísla pabba og pabba. Hann var mitt fyrsta barn þó ég eigi hann ekki“

„Allir í grunn­skól­anum vita hvernig faðir ég er. Ég mæti á for­eldra­fundi og aðra við­burði en við erum með sam­eig­in­legt for­ræði. Það sýnir og segir bara allt sem segja þarf um hana. Hún býr til lygar um allt til að láta mig eða aðra líta illa út. Fólk úr heimabæ hennar segir að hún búi til hluti í hausnum á sér og geri það að sann­leika hjá sér. Enginn af bekkj­ar­fé­lögum hennar kann­ast til dæmis við að hún hafi lent í ein­elti í barna­skóla eða grunn­skóla en hún hefur talað um að hafa lent í ofbeldi alla ævi, kyn­ferð­is­legu og öðru ofbeldi. Vinir og ætt­ingjar hafa rætt við fjölda fólks í heimabæ hennar vegna ummæla hennar um mig til að skilja hegðun hennar og lygar núna í rúm 3 ár.“

Gísli seg­ist ekki hafa lagt í það að skrifa um þessi mál en að hans mati er nú kom­inn tími til þess að hann verji mann­orð sitt fyrir börnin. Hann segir hana hafa dreyft lyga­sögum um víðan völl á Facebook og tekið fram að fólk geti fengið nafn og heim­il­is­fang hans. Hún segir sig hafa orðið fyrir ofbeldi alla ævi, af mökum og í skóla. Árið 2012 skrif­aði hún pistil um reynslu sína á ein­elti í heimabæ sínum.

Kjarni máls­ins er sá, sam­kvæmt Gísla, að hún sé að saka hann um ofbeldi sem aldrei gerð­ist:

„En allt þetta snýst um að hún er að saka mig um að vera ofbeld­is­maður sem er ekki satt núna rúmum þremur árum eftir skilnað og hún gerir það opin­ber­lega, segir hvar ég á heima og gefur fólki upp nafn mitt. Hún er að búa til margar sögur, ýkja hlut­ina og taka þá úr sam­hengi eða snúa þeim frá sér og yfir á mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina