Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigríður ræktar Great Dane: „Þetta er stundum svona nettur dýragarðsfílingur“

Sigríður ræktar Great Dane: „Þetta er stundum svona nettur dýragarðsfílingur“

Sigríður Jóns­dóttir er sú eina sem ræktar hunda­teg­und­ina Great Dane eða Stóra Dana hér á landi og er óhrædd við að fara ótroðnar slóðir. Ræktun Sigríðar heitir Determination Great Danes og lætur hún drauma sína ræt­ast. Má með sanni segja að hún sitji ekki auðum höndum.
Sigríður býr með manni sínum, Magnúsi Kjartani Eyj­ólfs­syni og börnum við Laug­ar­vatn. Þar eru þau með búskap, fjár­hund, þrjá Stóra Dana, einn Saint Bern­harðs og einn Franskan bull­dog.

Sigríður, Magnús Kjartan og Kumpel

Sigríður og Magnús eiga heim­ili þar sem er svo sann­ar­lega líf og fjör en eiga þau fjórar hörku dug­legar stelpur saman. Sigríður á úr fyrra sam­bandi Kolbrúnu Ninnu 11 ára og Bríeti Klöru 9 ára, þá á Magnús hana Maríu Dögg 12 ára. Saman eiga þau svo Ronju Rún sem er 20 mán­aða.
Magnús er tón­lista­maður og því kemur fyrir að hann fari í burtu vegna vinnu. Það sem flestum yrði ofviða að hugsa til þess að sjá um heim­ilið og allt sem því fylgir, sam­hliða námi, virð­ist ekki stressa Sigríði en segir hún að allt gangi yfir­leitt ótrú­lega vel.

Syst­urnar Kolbrún Ninna og Bríet Klara dregnar áfram af Benna og Avu

Hvaðan kemur áhug­inn á hundum?
Sem barn segir Sigríður að henni hafi alltaf langað í hund, hún hafi reynt allt og komið heim með hunda í heim­il­is­leit. Hún hafi þó und­an­tekn­ing­ar­laust verið send með þá til baka en átti þetta í raun við um öll dýr.

„Ég gerði til­raunir til þess að koma heim með hvolpa, kom jafn­vel heim með fleiri en einn. Það var eig­in­lega alveg sama hvaða dýr það voru, þá vildi ég bara eiga þau,“ segir Sigríður og hlær.

Benedikt og hvolpa­sveitin

Segir hún það hafa verið sitt fyrsta verk er hún flutti að heiman að eign­ast hund. Draum­ur­inn rætt­ist loks er hún fékk lít­inn blend­ings-hvolp upp í hend­urnar sem hún skírði Erró. Hann varð því miður ekki lang­lífur en veikt­ist hann og dó aðeins sex mán­aða. Stuttu áður hafði Sigríður rekið augun í aug­lýs­ingu sem vakti athygli hennar en hafði hana alltaf dreymt um að eign­ast Stóra Dana en teg­und­ina sá hún fyrst í bók sem barn. Í aug­lýs­ing­unni var einn slíkur sem var í heim­il­is­leit.
Eins og henni einni er lagið rauk hún af stað, tók með sér sam­starfs­konu og keyrði út á land til þess að hitta hund­inn.

JCh INTCh RW Determinations Anything is Possible “Urður“

„Við bara tókum strauið án þess að gera mér nokkra grein fyrir því hvað ég væri að gera sko, keyrði um á smá­bíl og tók hann með mér heim sama kvöld“.

Þetta var upp­hafið af því sem átti eftir að verða ástríða Sigríðar, hund­ur­inn stóri sem hét Gleði­gjafa Kerúb.
„Það var bara ást við fyrstu sýn, hann var stór­kost­legur hundur,“ segir Sigríður og ljóst er að teng­ingin við hund­inn var sterk.

„Ég hafði svo mikla elju fyrir því að eign­ast þessa teg­und að ég lét þetta bara ganga“. Bætir hún við að hún hafi fengið mikla hjálp frá ætt­ingjum og vinum.

Sigríður eign­að­ist síðar tík sem var undan systur Kerúbs en dó hún vegna maga­snún­ings. Útskýrir hún að maga­snún­ing­ur­inn sé frekar algengt vanda­mál hjá stórum hundum og í sumum til­vikum erfitt að með­höndla. Eftir að stóru góð­vinir hennar tveir kvöddu ákvað Sigríður að bíða og leyfa stóru dön­unum að deyja út á land­inu.

Líf rækt­and­ans. Sigga sof­andi í got­kassa í fæð­ingu

„Ég vildi svo­lítið sjá þennan gamla stofn deyja út, upp á heil­brigði og skyld­leika og annað slíkt, það var eitt­hvað sem heill­aði mig ekki við það. Síðan árið 2013 flyt ég inn fyrstu tík­ina mína frá Banda­ríkj­unum og flutti inn rakka frá Aust­ur­ríki á móti henni, hann Mojo“.
Undan þeim kom eitt got, 14 hvolpar, 13 sem lifðu og hafa hvolp­arnir frá Sigríði verið heilsu­hraustir. Mojo dó einnig vegna maga­snún­ings en segir hún að vissu leyti vera fegin að hennar hundar lendi í því en ekki þeir sem fara á ný heim­ili, reynslan sé afskap­lega erfið eins og gefur að skilja.

Ræktunin
Eft­ir­spurn blíðu risanna segir hún vera mikla. Fólk átti sig þó oft ekki nægi­lega vel á ábyrgð­inni.
„Yfir árið fæ ég gríð­ar­legt magn af fyr­ir­spurnum, fæstir gera sér grein fyrir kostn­aðnum og vinn­unni og að þetta sé skuld­ind­ing til að lág­marki 10 ára,“segir Sigríður en er lífaldur stóru hund­anna lægri en minni hunda.
Þá segir hún vinn­una í kring um gotin og hundana gríð­ar­lega.

„Þú þarft að vaka yfir þeim, vakta að tíkin legg­ist ekki ofan á þá, passa að þeir séu að þyngj­ast, passa upp á tík­ina. Það verður eng­inn ríkur af hunda­rækt, ekki nema vera með fyr­ir­tæki í kringum þá“.
Sigríður segir mik­il­vægt að lyfta umræð­unni upp á það plan að meta hvað rækt­endur eru að gera. Þá séu rækt­endur sem betur fer flestir í þessu til þess að vanda sig, ekki til þess að græða. Þó séu nokkur skemmd epli, en fá.

Sigga og Mojo

Sigríður er þakk­lát fyrir að eiga í góðu sam­bandi við þá sem hafa fengið hjá henni hvolp.
„Ég fylgi bara svo­lítið með“ .Þykir henni mik­il­vægt að fá að fylgj­ast með hund­unum. Þá hafi hún ákvæði um það að ef hundur úr hennar ræktun þurfi að ein­hverjum ástæðum nýtt heim­ili þá komi hann til baka til hennar.
Fyr­ir­komu­lag Sigríðar er til fyr­ir­myndar og skín það í gegn hvernig hún talar um hundana og eig­endur þeirra. Hver ein­asta ákvörðun er vand­lega hugsuð. Þá umhverf­is­þjálfar hún hvolpana alveg frá byrjun og leggur gríð­ar­legan metnað í það sem hún gerir. Hund­arnir fá allir fyrsta flokks fóður, Eukanuba frá Petsmart

Fjöl­skyldan fékk á dög­unum nýjan risa í fjöl­skyld­una.
„Þetta er búið að vera ár í ferli, þetta var kær­komin jóla­gjöf að fá hana heim núna,“ en setti heims­far­ald­ur­inn meðal ann­ars strik í reikn­ing­inn.

RW Hipogryf Kumpel

Hund­arnir hennar Sigríðar eru gull­fal­legir og hafa fengið frá­bæra dóma á sýn­ingum. Hún seg­ist þó fyrst og fremst rækta fjöl­skyldu­hunda sem fylla heim­ili af gleði, sýn­ing­arnar eru plús.

Hver er í upp­á­haldi?
„Ég á elsta Saint Bernard hund á land­inu, hann er kast,“ en hund­ur­inn Benedikt (10 ára) er ein­stakur. Hann hefur í gegnum tíð­ina látið sig hverfa, stolið mat, velt sér upp úr drullu rétt fyrir sýn­ingu og ein­fald­lega látið Sigríði hafa fyrir sér. Hún seg­ist elska alla hundana sína en Benedikt eigi sér­stakan stað í hjarta hennar. Þau hafi verið óað­skilj­an­leg síðan hún fékk hann aðeins 8 vikna gamlan.

„Við erum hálf­part­inn eitt, við eigum ákaf­lega sér­stakt sam­band. Maðurinn minn grín­ast stundum með það að ef ég þyrfti að velja, Magga eða Benna, þá myndi hann verða fyrri til og fara og pakka niður í tösku,“ segir hún og hlær.

Myndi ekki breyta neinu
Fólk á stundum erfitt með að skilja þennan lífs­stíl, en það finnst Sigríði allt í lagi.
„Fólk þarf ekki að skilja þetta, ég myndi ekki vilja þetta öðru­vísi“.

Sigríður hefur svo sann­ar­lega látið draum­inn ræt­ast og er stelpan sem kom heim með hunda í leyf­is­leysi orðin einn glæsi­leg­asti rækt­andi lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina