Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sólarmerki stjörnuspekinnar – Réttsýnar vogir, skapandi fiskar og nautnafull naut

Sólarmerki stjörnuspekinnar – Réttsýnar vogir, skapandi fiskar og nautnafull naut

Sól­ar­merkið er það merki sem margir líta á sem aðal­at­riðið í stjörnu­speki – það merki sem lík­leg­ast er að fólk þekki nú þegar. Þegar ein­hver seg­ist vera ljón í stjörnu­merki, þá er við­kom­andi að öllum lík­indum að tala um sól­ar­merkið sitt; það merki sem sólin var í þegar ein­stak­ling­ur­inn fædd­ist. Sólin er um það bil einn mánuð að fara í gegnum hvert og eitt stjörnu­merki.

Í stjörnu­speki stendur sólin fyrir okkar ytra sjálf, með­vit­und og egóið. Sólin er grunn­per­sónu­leiki okkar og lífs­orka. Það má líta á sól­ina sem yfir­mann stjörnu­korts okkar. Við erum talin sitja vel í sjálfum okkur þegar við náum jafn­vægi í sól­ar­merki okkar. Sólin er rök­ræn og ráð­andi – hún er frekar hugur en hjarta. Í gegnum sól­ar­merki okkar síast allar upp­lýs­ingar og áhrif ann­arra merkja í stjörnu­kort­inu. Orkan frá henni er úthverf (e. extroverted).

En hver eru ein­kenni hvers sól­ar­merkis fyrir sig?

Hrúturinn

(U.þ.b. 21. mars–19. apríl*)

Ástríðu­fullur, hvat­vís, orku­mik­ill.

Hrút­ur­inn er eld­merki. Hrút­ur­inn er fyrsta merkið í hringnum og hrútar eru gjarnan fyrstir að byrja og fyrstir að klára það sem þeir taka sér fyrir hendur. Hrútur býr yfir miklum sprengi­krafti og orku. Vilja­styrk­ur­inn er mik­ill og hann hendir sér með höf­uðið á undan í allt það sem hann tekur sér fyrir hendur. Hrútur er afar ástríðu­fullur og býr yfir frum­krafti sem erfitt er að jafna. Ef eitt­hvað kveikir áhuga hans fer það ekki á milli mála. Hann er afar hrein­skil­inn og bein­skeyttur. Mislíki honum eitt­hvað er það yfir­leitt aug­ljóst og hann reynir ekki heldur að fela það. Hann sér ekki nokkra ástæðu til þess að halda aftur af skoð­unum sínum. Þar af leið­andi á hann það til að stuða fólk og sumum getur þótt hann dálítið dóna­legur. Það er ekki ætlun hans – hann skilur bara ekki hvers vegna hann ætti að fara eins og köttur í kringum heitar graut með neitt ein­asta mál. Fólk getur reynt að beisla hann og temja, en það mun ekki ganga vel. Auk þess mun það gera hrút­inn nið­ur­dreg­inn. Hann þarf að vera í kringum fólk sem kann að meta þessa eig­in­leika hans.

Þú getur oft­ast nær treyst á að dæmi­gerðir hrútar segi þér það sem þeim raun­veru­lega finnst. Hrein­skilni og heið­ar­leiki er einn af þeirra helstu kostum. Þeir eru ekk­ert að flækja hlut­ina og botna oft ekk­ert í því þegar þeir fá ekki sömu hrein­skilni, flækju­leysi og blátt áfram nálgun frá öðru fólki.

Þeir eru oft mjög hug­mynda­ríkir og nálg­ast hluti af barns­legri for­vitni. Sköpun og upp­finn­inga­semi er leikur í þeirra augum. Á móti geta þeir verið svo­lítið barna­legir í allri nálgun sinni á lífið. Þeir kjósa oft að skauta fram hjá dýpri og erf­ið­ari hlutum og neita að dvelja lengi við neitt. Þeim leið­ist líka auð­veld­lega – og þeir láta það svo sann­ar­lega í ljós.

Hrútur getur verið ansi bráður í skapi. Fólki bregður oft þegar hann reið­ist – það er engin sía eða demp­ari á honum. En eins og íslenskt veð­ur­far er hrútur fljótur að skipta um ham og er yfir­leitt orð­inn rólegur aftur eins fljótt og hann reidd­ist. Hann er almennt ekki lang­ræk­inn og fer ekki mikið í fýlu – hann kýs að afgreiða hlut­ina hratt og örugg­lega (og stundum ofsa­fengið).

Nautið

(U.þ.b. 20. apríl–20. maí*)

Trygg­lynt, nautna­fullt, stöðugt.

Nautið er jarð­ar­merki. Rætur þess ná djúpt og það er yfir­leitt stöðugt. Naut ana ekki að neinu – þau kjósa frekar að taka sér tíma og gera hlut­ina vel. Þau eru metn­að­ar­gjörn, en sætta sig við að góðir hlutir ger­ist hægt. Ákvarð­anir þeirra eru líka yfir­leitt vel ígrund­aðar.

Naut eru nautna­full og bein­tengd erkitýpu Venusar. Þau elska að gera vel við sig í mat og drykk. Þeim getur jafn­vel hætt við að fara dálítið yfir strikið í þeim efnum og þegar þau eru ekki í nægi­legu jafn­vægi eiga þau til leti. Til þess að það ger­ist ekki þurfa þau að rækta lík­ama og sál og passa upp á að búa við skipu­lag og vinna að mark­miðum. Naut vilja láta dekra við sig, lík­am­lega og and­lega. Þetta er talið eitt kyn­þokka­fyllsta stjörnu­merkið í hringnum. Naut lifa mikið til í gegnum skiln­ing­ar­vit sín – hvert skiln­ing­ar­vit er þanið til hins ýtrasta. Núvitund er þeim eðl­is­læg. Þau njóta þess að hlusta á góða tón­list, finna lykt­ina af nátt­úr­unni, veita blómum og plöntum athygli og snerta, svo eitt­hvað sé nefnt.

Mann­eskjan sem fann upp hug­takið „sjálfs­ást“ hefur senni­lega verið naut. Naut eru almennt frekar inn­hverf og þurfa tíma í ein­veru til að hlaða batt­er­íin fyrir átök dag­legs lífs og sam­komur.

Öryggi skiptir naut miklu máli. Þau vilja koma sér þannig fyrir í líf­inu að þau þurfi ekki að hafa áhyggjur. Þannig er þeim oft mik­il­vægt að eiga nóg af pen­ingum. Þau þurfa ekk­ert endi­lega að vera rík, en þau þurfa að eiga nóg til þess að geta haft það gott og lifa áhyggju­laus.

Naut eru afskap­lega traust og trygg­lynd. Það skiptir þau líka öllu máli að geta treyst sínum nán­ustu. Bregðist þú trausti nauts getur verið afar erfitt að vinna það til baka. Þau eru nefni­lega nokkuð lang­rækin. Þau byggja mat sitt á raun­veru­legum skynj­unum og hinu áþreif­an­lega. Þar af leið­andi skipta fögur orð ekki nokkru máli ef gjörðir fylgja ekki á eftir. Naut munu ávallt dæma þig út frá því sem þú gerir, ekki því sem þú segir. Naut eru föst fyrir og þrjósk – það getur reynst þrautin þyngri að tala um fyrir þeim og fá þau til að skipta um skoðun.

Tvíburarnir

(U.þ.b. 21. maí–20. júní*)

For­vitnir, félags­lyndir, greindir.

Tví­burarnir eru loft­merki. Tvíburi er afar for­vit­inn og fróð­leiks­fús. Hann vill vita. Tvíbura þykir fólk ein­stak­lega áhuga­vert og hann er félags­lyndur. Hann er heill­andi og á auð­velt með að tala við flesta. Skoðanir hans geta sveifl­ast eins og pendúll – enda á hann auð­velt með að setja sig í spor allra og skoða allar hliðar mála ofan í kjöl­inn. Hann er því langt frá því að vera fastur fyrir og skamm­ast sín ekk­ert fyrir að breyta afstöðu sinni þegar hann telur upp­lýs­ingar hafa komið fram sem varpa nýju ljósi á málin.

Tvíburi er yfir­leitt með nokkuð breitt áhuga­svið og skiptir ört um skoðun. Hann er grein­andi í eðli sínu og kann vel við að stinga sér á kaf ofan í rann­sókn­ar­vinnu. Ef eitt­hvað vekur ósvik­inn áhuga tví­bura er ekki ólík­legt að hann steypi sér ofan í það og ranki við sér nokkrum klukku­stundum og ótal gúggl-síðum og mynd­böndum síðar, skyndi­lega nógu fróður um mál­efnið til að geta átt um það rök­ræður eða haldið fyr­ir­lestur um það. Hann veit ýmis­legt um mjög margt, en athygli hans er oft af skornum skammti og hann þýtur hratt á milli við­fangs­efna.

Tví­bur­inn er merki orða. Tvíburi notar orð sem brú milli fólks og skoð­ana, leið til þess að tengja við aðra, tál og vopn þegar svo ber undir. Hann er ein­stak­lega fær í rök­ræðum og hefur líka gaman af þeim. Áhugi sem end­ist hjá honum snertir eitt­hvað sem kveikir í honum vits­muna­lega.

Tvíburar geta verið sveiflu­kenndir og óákveðnir og sumir geta upp­lifað van­traust í garð þeirra vegna þessa og vegna þess hve hratt afstaða þeirra og skoð­anir geta breyst. Þeir líta málið ekki sömu augum, því fyrir þeim er mik­il­vægt að geta tengt við mis­mun­andi ein­stak­linga og skoð­anir – berg­máls­hellar eru tví­burum þvert um geð. Þeir eiga oft marga vini en nánd er þeim ekki alltaf auð­veld.

Tvíburi á það til að vera upp­stökkur. Hann er það oft ekki út á við en þessi hlið hans kemur gjarnan í ljós heima fyrir og bitnar á hans nán­ustu. Þetta stafar yfir­leitt af innri óró­leika og eirð­ar­leysi. Lausnin fyrir þá er að finna sér ein­hver verk­efni, sama hversu lítil. Tvíburi á það líka til að vera áhyggju­fullur og það getur þró­ast í kvíða.

Krabbinn

(U.þ.b. 21., 22. júní–22., 23. júlí*)

Sam­úð­ar­fullur, við­kvæmur, djúpur.

Krabbinn er vatns­merki. Krabbi er almennt vina­legur og hlýr, en er nokkuð inn­hverfur og lætur ekki endi­lega mikið fyrir sér fara. Hann lætur sér annt um annað fólk og þykir afar erfitt að horfa á aðra þjást. Þjáning er nokkuð sem hann á til að sjá í hverju horni og það getur gert hann nið­ur­dreg­inn.

Eins og í hinum vatns­merkj­unum er krabbi afar til­finn­inga­ríkur. Hann er sömu­leiðis næmur á til­finn­ingar ann­arra og stundum er hrein­lega eins og hann búi yfir skyggni­gáfu – hann á auð­velt með að skynja hvað aðrir eru að ganga í gegnum og hvernig þeim líður. Þetta er hæfi­leiki í fari hans, en þetta getur bæði verið blessun og bölvun. Eig­in­leik­inn getur gert krabba að með­fæddum heil­ara, en hin hliðin á pen­ingnum er sú að hann getur átt mjög erfitt með að setja mörk og á það til að vera með­virkur. Þetta er eitt­hvað sem krabbi þarf að vinna mikið með.

Krabbar geta verið dálítið lok­aðir og eiga erfitt með að treysta heim­inum fyrir sínu innra sjálfi. Þeir þurfa mikið á rótum að halda í líf­inu og geta streist tölu­vert á móti breyt­ingum. Fyrir þeim ger­ast góðir hlutir hægt og þeim er illa við hraðar breyt­ingar sem þeir ná ekki almenni­lega utan um.

Frá kröbbum stafar hlýja og þeir hugsa vel um sína nán­ustu. Þeir vilja fá að „passa“ þá sem þeim þykir vænt um. Þeir eru heima­kærir og munu yfir­leitt velja rólegt kvöld heima frekar en að fara út að skemmta sér eða á manna­mót. Þeir eru hrifnir af dekri og vilja hafa það nota­legt – krabbar eru yfir­leitt mikil kúru­dýr. Þeir þurfa líka á ein­veru að halda, stans­laus félags­skapur getur sogað úr þeim ork­una og gert að verkum að þeim finnst þeir ekki geta heyrt eigin hugs­anir.

Krabbi á það til að vera dálítið mis­lyndur og þungur í skapi. Stundum er hrein­lega eins og það sé þrumu­ský pikk­fast yfir höfð­inu á honum. Hann á það líka til að verða ansi melankól­ískur og velta sér upp úr vanda­mál­unum og vor­kennir sér stundum. Hann er lang­ræk­inn. Hann er átaka­fæl­inn og hör­undsár. Framan af hefur hann lang­lund­ar­geð og getur fyr­ir­gefið hitt og þetta, en um leið og þú gengur fram af honum er ekki aftur snúið.

Ljónið

(U.þ.b. 21. júlí–20. ágúst*)

Sjálf­stætt, skap­andi, heið­ar­legt.

Ljónið er eld­merki. Ljón býr yfir miklum krafti og ástríðu og kveikir auð­veld­lega bál í öðrum. Þegar ljón ætlar sér eitt­hvað er fátt sem fær stöðvað það.

Ljón eru heið­ar­leg og traust. Þau segja hlut­ina yfir­leitt beint út og standa með því sem þau segja. Það er almennt séð nokkuð öruggt að hægt sé að treysta því sem þau segja. Þau vilja fá það sama á móti frá sam­ferða­fólki sínu, í það minnsta er það þeim afar mik­il­vægt að geta treyst fólk­inu í kringum sig og þau leggja mikið upp úr því. Þau treysta yfir­leitt frekar áreynslu­laust, það þarf ekki að vinna sér inn traust þeirra, heldur velja þau að hafa glasið fullt frá upp­hafi. Ef þú hins vegar bregst trausti þeirra eða svíkur þau á ein­hvern hátt verða þau óbæri­lega sár og von­svikin. Þá er erfitt að vinna traust þeirra til baka. Brostið traust ljóns er algjör for­sendu­brestur í sam­skiptum við það og ljóni er nán­ast ómögu­legt að vera í kringum fólk sem hefur ekki reynst trausts þess verð­ugt.

Ljón elskar að hrista makk­ann og láta dást að sér. Það kann vel við að vera mið­punktur athygl­innar. Það er hins vegar fljótt að finna þegar hólið er ekki ósvikið og það mis­líkar því mjög. Ljóni ferst vel í leið­toga­hlut­verki og getur hrifið nán­ast hvern sem er með sér. Það er snill­ingur í að halda hvatn­ing­ar­ræður á ögur­stundu. Hver dagur í lífi ljóns er upp­fullur af leik­rænum til­þrifum, skemmtun og eld­móði. Þegar ljón setur sér mark­mið eru ekki margar hindr­anir sem gætu kyrr­sett það. Þrátt fyrir að ljónum finn­ist þau mik­il­væg er ekki þar með sagt að þau séu athygl­is­sjúk eða sjálf­miðuð, eins og þau hafa stundum orð á sér fyrir að vera. Þau upp­lifa mik­il­vægi sitt nefni­lega yfir­leitt á þann hátt að þau þurfi að breyta heim­inum og hjálpa öðrum. Þau láta sér mjög annt um aðra og það er hreint ekki ama­legt að vera undir vernd­ar­væng ljóna. Þau eru með stóra drauma og vilja vekja ánægju hjá öðrum.

Ljón eru mjög skap­andi. Það er kraftur í þeim og þau eru dramat­ísk í eðli sínu, svo það verður yfir­leitt eitt­hvað spenn­andi sem kemur út úr hug­mynd­unum sem þau fá.

Ljón geta verið dálítið bráð í skapi, eins og algengt er hjá eld­merkjum. Þau eru líka þrjósk og föst fyrir, svo það er erfitt að fá þau ofan af skoð­unum sínum. Þau eru afskap­lega stolt og taka því mjög illa þegar stolt þeirra er sært eða ef ein­hver gerir lítið úr þeim.

Ljón er svipað ljónum í dýra­rík­inu að því leyti að það elskar að hafa það náð­ugt og geta notið þess lengi í einu að slaka á og dekra við sig. Þegar það hins vegar fer af stað og ætlar sér eitt­hvað er það alltaf gert af miklum eld­móði og ákefð.

Meyjan

(U.þ.b. 21. ágúst–20. sept­em­ber*)

Nákvæm, dug­leg, hjálp­söm.

Meyjan er jarð­ar­merki. Meyja er skyn­söm, rök­föst og treystir því áþreif­an­lega í kringum sig. Meyja lætur verkin tala.

Meyjur eru afskap­lega iðnar og góðar í að halda mörgum boltum á lofti í einu. Þær eru afar nákvæmar, oft hrein­lega haldnar full­komn­un­ar­áráttu, og setja mikla pressu á sig í hverju því sem þær taka sér fyrir hendur. Enda stand­ast þær press­una nær alltaf. Meyja er ein­stak­ling­ur­inn í hópnum sem er með allt á hreinu. Hún skipu­leggur við­burð­ina, passar að kaupa inn, minnir hina á að mæta á réttum tíma og þegar að því kemur er allt óað­finn­an­legt. Hún á oft erfitt með að treysta öðrum fyrir verk­efnum og deila ábyrgð. Svo á hún það samt til að verða pirruð þegar eng­inn annar en hún tekur af skarið og gerir hlut­ina.

Meyjur elt­ast við vit­neskju og vilja kunna hlut­ina. Hæfni í líf­inu er þeim afar mik­il­væg. Þær elt­ast sjaldan við sviðs­ljósið og eru mjög sáttar á bak við tjöldin, svo lengi sem þær fá þá end­ur­gjöf sem þær eiga skilið og fólkið í kringum þær kann að meta þær og verk þeirra. Meyjur lað­ast að öllu hreinu og nátt­úru­legu. Ást þeirra á nátt­úr­unni er mikil. Þær eru til­finn­inga­ríkar og við­kvæmar en á yfir­borð­inu geta þær virst svo­lítið til baka. Það þarf oft ekki mikið til þess að gera þær vand­ræða­legar. Sjálfs­gagn­rýni meyja er mikil og þær blygð­ast sín auð­veld­lega.

Meyja getur stundum virst til baka og lokuð á yfir­borð­inu, en undir niðri er hún ljúf og mjúk. Hún á bara stundum erfitt með að treysta öðrum fyrir sjálfri sér – hvað þá hjarta sínu. Þegar hún hleypir fólki inn umvefur hún það hlýju og umhyggju. Hún hugsar afar vel um sína nán­ustu og er með ein­dæmum hjálp­söm. Einhvern veg­inn virð­ist meyja alltaf búa til tíma til þess að hjálpa öðrum. Hún á það hins vegar til að gleyma sjálfri sér og er ekki nógu dug­leg við að segja hvað það er sem hún þarfn­ast. Þetta þarf meyja að hafa á bak við eyrað.

Vegna full­komn­un­ar­árátt­unnar og pressunnar sem meyja setur á sjálfa sig á hún það til að vera áhyggju­full og trekkt á taugum. Þetta getur líka gert hana upp­stökka gagn­vart öðrum. Hún getur líka sett pressu á sitt nán­asta fólk (eins og hún gerir við sjálfa sig) og getur misst sig í nöldur þegar henni finnst fólk ekki standa sig.

Meyja þarf að hafa nóg fyrir stafni, ann­ars er stutt í óánægj­una. Meyja sem hefur engin verk­efni fer fljót­lega að finna fyrir þyngslum, dep­urð og pirr­ingi. Hún leggur mikið kapp á að hafa nóg að gera og gera allt vel. Meyjur eru í eðli sínu svo áhyggju­fullar að það myndi breyta miklu fyrir þær að læra að sleppa tak­inu af og til. Láta sig fljóta með straumnum. Þetta gæti fært þeim meiri lífs­fyll­ingu og innri ró.

Vogin

(U.þ.b. 23. sept­em­ber–22. októ­ber*)

Réttsýn, heill­andi, félags­lynd.

Vogin er loft­merki. Vog er afar heill­andi og á það til að vera dálít­ill daðr­ari. Það er skemmti­legt að vera í kringum vogir, þær eru hlýjar og hafa lag á því að láta fólk­inu í kringum þær líða vel. Þær eru góðar í að skynja and­rúms­loft og stemn­ingu og eru flinkar í að bæta hana eftir þörfum.

Vog er félags­lynd og þrífst mikið á sam­skiptum við aðra. Henni dauð­leið­ist að vera lengi ein, enda fær hún mikla orku úr sam­tölum og sam­neyti við fólk. Hún hefur mikla hæfi­leika þegar kemur að því að skilja annað fólk og setja sig í spor þess. Þetta gerir hana afar flinka í að sætta ólíkar skoð­anir og hún er oft fær diplómat. Vog hefur afar gaman af líf­legum rök­ræðum – en um leið og ein­hver skap­hiti fær­ist í leik­inn er hún yfir­leitt fljót að forða sér. Hún er nefni­lega ansi átaka­fælin.

Vegna þess hve auð­velt hún á með að skoða mál frá öllum hliðum getur henni reynst þrautin þyngri að taka ákvarð­anir. Hún er með mik­inn val­kvíða og hver ákvörðun getur tekið hana langan tíma. Hún á erfitt með að standa með ein­hverju sem ef til vill er síðan ekki „rétt“ ákvörðun. Hún lætur því valið stundum sigla frá sér og lætur aðra um ákvarð­anir. Vog er til að mynda ekki lík­leg til að vera sá ein­stak­lingur í hópnum sem ákveður hvað skal borða. Þegar hún er spurð er hún lík­leg til að koma með enn fleiri mögu­leika og flækjur.

Vog þrífst á sam­skiptum og vill vera í teymi með öðrum. Þetta á sér­stak­lega við þegar kemur að sam­böndum – vog er mjög hrifin af hug­mynd­inni um lífs­föru­naut. Vogir eru gjarnan í löngum sam­böndum, jafn­vel hverju langa sam­band­inu á fætur öðru án þess að eyða miklum tíma ein­hleypar. Þeim finnst þær stundum á ein­hvern hátt ófull­komn­aðar þegar þær eru ekki í sam­bandi. Þetta er eitt­hvað sem vogir þurfa að vera með­vit­aðar um og reyna að finna fyll­ingu í sjálfum sér, en ekki alltaf leita að henni í öðru fólki. Vog er líka greind og getur vel staðið með sjálfri sér og tekið góðar ákvarð­anir. Hún þarf bara að trúa því. Hún hefur til­hneig­ingu til að verða með­virk.

Vogir eru með ein­dæmum rétt­sýnar og mega ekk­ert aumt sjá. Þeim líkar illa allt sem þær upp­lifa sem ójafn­vægi. Þær standa því gjarnan með þeim sem minna mega sín og leita oft í stöður þar sem þær geta barist fyrir ein­hvers konar rétt­indum og sann­girni.

Sporðdrekinn

(U.þ.b. 23. októ­ber–21. nóv­em­ber*)

Djúpur, ástríðu­fullur, dul­ar­fullur.

Sporð­drek­inn er vatns­merki. Sporð­dreki er afar til­finn­inga­ríkur og nálg­ast við­fangs­efni og fólk sem kveikir áhuga hans af ákefð. Hann leit­ast ávallt við að fara á dýpt­ina til­finn­inga­lega og er ein­stak­lega næmur á fólk og umhverfi sitt. Sporð­dreki virð­ist taka eftir öllu og muna allt. Djúpt inn­sæi hans og skynjun á mann­legu eðli gerir að verkum að sporð­drekar eru oft eins og mennskir lyga­mælar. Þeir virð­ast alltaf skynja þegar ein­hver er ekki heið­ar­legur við þá, sem er eitt­hvað sem þeir kunna mjög illa við. Sporð­drekar meta sann­leik­ann meira en flest annað. Þeir kjósa heldur að heyra sárs­auka­fullan sann­leika en dún­mjúka og þægi­lega lygi.

Sporð­dreki er dul­ar­fullur og heill­andi. Í honum býr eitt­hvert órætt myrkur sem sumir lað­ast að á meðan aðrir hræð­ast það. Hann vill skoða allar hliðar lífs­ins og mann­fólks­ins – líka þær dimmu og drunga­legu. Myrkrið hræðir hann ekki og hann vill þekkja allar hliðar þeirra sem honum þykir vænt um, sér­stak­lega elsk­huga sinna – líka þær „ljótu“, sem flestir reyna að fela fyrir umheim­inum. Þessar hliðar, þessar víddir, þykir sporð­dreka spenn­andi.

Sporð­drekar eru grein­andi og hugsa yfir­leitt marga leiki fram í tím­ann. Vegna þess hve læsir þeir eru á fólk eiga þeir oft auð­velt með að ýta á réttu takk­ana og ráðskast með fólk á mjög lúmskan hátt. Þeir eru góðir í að sveigja aðra til þess að gera það sem þeir vilja. Þarna verða þeir að stoppa sig af. Sporð­dreki dafnar best og tekur út þroska þegar hann lærir að nota greind sína, dýpt og inn­sæi til góða; til þess að hjálpa öðrum og sjálfum sér, í stað­inn fyrir að nýta hæfi­leik­ana til að ráðskast með aðra eða hefna sín.

Sporð­drekar eru afar lang­ræknir. Vegna þess hve minnugir þeir eru er lík­legt að allt sem maður gerir á hlut þeirra sé geymt en ekki gleymt. Þetta getur valdið þeim ama í sam­skiptum, svo ekki sé talað um í þeirra eigin sál­ar­lífi. Þeir eru tor­tryggnir í eðli sínu og eiga það til að vera afbrýði­samir. Þeir eru ekki sér­stak­lega bráðir í skapi, en þeir eru þó vissu­lega skap­stórir, en skap þeirra er seigt og hreyf­ist frekar hægt. Þeir eru líka þrjóskir.

Sporð­drekar eru trygg­lyndir og meta traust mik­ils. Þeir treysta hvorki auð­veld­lega né af sjálfs­dáðum, en vinnir þú þér inn traust sporð­dreka ertu búinn að eign­ast ómet­an­legan trún­að­ar­vin sem mun standa með þér og verja þig fram í rauðan dauð­ann.

Bogmaðurinn

(U.þ.b. 22. nóv­em­ber–21. des­em­ber*)

Bjart­sýnn, glað­lyndur, ævin­týra­gjarn.

Bog­mað­ur­inn er eld­merki. Bogmaður er orku­mik­ill og oft­ast hress og kátur. Hann er ein­stak­lega bjart­sýnn og steypir sér inn í hvern dag eins og um ævin­týri sé að ræða. Bogmenn eru fullir af eld­móði og mjög hug­mynda­ríkir. Þeir eru skap­andi í hugsun og góðir í að hrinda hlutum í fram­kvæmd – hins vegar er það ekki endi­lega þeirra sterka hlið að klára alltaf verk­efnin.

Bogmenn vilja hafa nóg fyrir stafni og þykir ekki gaman að láta sér leið­ast. Þá geta þeir orðið ansi daufir. Þeir heilla aðra með ákafa sínum og glað­lyndi og eiga auð­velt með að hrífa fólk með sér. Þeir eru afar for­vitnir og fróð­leiks­fúsir. Bogmenn elska að læra nýja hluti. Helst vilja þeir læra með því að fram­kvæma.

Ferðalög eru bog­manni afar mik­il­væg. Hann þrífst á því að lenda í ævin­týrum, helst í gegnum ferða­lög, og með því að upp­götva nýja menn­ing­ar­heima. Hann lærir mikið í gegnum ferða­lög og fyllist inn­blæstri.

Bogmaður metur frelsi mik­ils. Það fer honum ekki vel að fest­ast í hjól­förum eða vera of bund­inn niður, hvort sem er í starfi eða einka­lífi. Hann verður að búa við ákveðið frelsi og sjálf­stæði til að líða vel og geta breitt úr vængjum sínum.

Bogmaður er afar félags­lyndur og mik­ill húmoristi. Hann elskar að vera í kringum fólk og eiga sam­skipti, fara á skemmti­leg manna­mót og slíkt. Fólk lað­ast að birt­unni sem stafar frá honum. Vegna þess hve fróð­leiks­fús hann er, er hann mikið fyrir að kynna sér ný mál­efni og læra ný hug­tök. Hann á það til að vera fljótur á sér og fara að nota þessi hug­tök og það sem hann hefur nýverið lært í rök­ræðum eða til þess að breiða út boð­skap­inn. Þetta gerir hann gjarnan án þess að þekkja alveg nógu vel til. Samt er hann gjarn á að standa pikk­fastur á sinni mein­ingu og rök­ræða hlið sína út í hið óend­an­lega. Hann botnar stundum alls ekk­ert í því hvers vegna aðrir eru ósam­mála honum.

Stund­vísi og skipu­lag er hvor­ugt sterk hlið bog­manns. Hann getur orðið ansi kæru­laus og er gjarnan að vinna hlut­ina á síð­ustu stundu.

Steingeitin

(U.þ.b. 22. des­em­ber–19. jan­úar*)

Metn­að­ar­gjörn, stöðug, ákveðin.

Stein­geitin er jarð­ar­merki. Stein­geit er sjálf­stæð og örugg í fasi. Hún er lítið fyrir til­finn­ingarök og vill nálg­ast hlut­ina rök­rænt. Helst vill hún hafa allt hnit­miðað og skýrt – hún lítur á það sem tíma­eyðslu að vera með óþarfa skreyt­ingar og hafa fleiri orð um málin en nauð­syn krefur. Stein­geit treystir á það sem hún veit og sér og er afar raunsæ. Hún er mjög metn­að­ar­gjörn og kann vel við sig í nokkuð skýrum ramma. Hún vill skipu­leggja sig fram í tím­ann og reikna allt út, hún er glögg og hugsar ótal leiki fram í tím­ann til að ná mark­miðum sínum. Enda er það svo með stein­geit að það virð­ist oft­ast vera þannig að hún nái þeim mark­miðum sem hún setur sér.

Stein­geitur eru vinnu­samar, svo mjög að þær eiga það til að týna sér í vinnu og gleyma því að gefa sér frí­tíma. Ef þær njóta vinnu sinnar er engin klukka sem stöðvar þær. Þetta getur þó gert að verkum að með tím­anum safn­ist upp streita og spenna sem þarf að eiga við síðar. Þol stein­geita í þeim efnum er þó frekar mikið. Þær setja mikla pressu á sjálfar sig og eru afar nákvæmar. Þær beita sig oft full­mik­illi hörku og finnst ekk­ert sem þær gera nógu gott.

Það er oft hægt að líkja stein­geitum við fjalla­geitur í nátt­úr­unni. Þær klifra; þríf­ast á metn­aði sínum, klífa met­orða­stiga og fyrir þeim skiptir öllu máli að ná árangri. Þær svífast nán­ast einskis til að kom­ast á topp­inn.

Stein­geitur hafa mikla þörf fyrir að finn­ast þær gagn­legar og atorku­samar. Þær horfa meira á sam­fé­lagið en ein­stak­lingar í hinum jarð­ar­merkj­unum (Nautinu og Meyjunni) og strúkt­úr­inn innan þess. Það skiptir þær miklu máli að þær séu gjald­gengar innan sam­fé­lags­ins, að þær séu að ná árangri innan þess og hljóti ein­hvers konar við­ur­kenn­ingu. Þær vilja „gera eitt­hvað úr sjálfum sér“. Völd geta heillað stein­geitur og það býr dálítið myrkur innra með þeim sem þær þurfa oft að beisla.

Margar stein­geitur hafa þörf fyrir ákveðin stöðu­tákn. Hafi þær náð árangri og eigi næga pen­inga munu þær eiga vönduð föt (lík­lega frá virtum hönn­uðum) og dýra og góða bíla. Þarna erum við þó ekki að tala um mikið af glingri og eitt­hvað sem er of „glans­andi“. Stíll þeirra er mun jarð­bundn­ari og slungn­ari.

Stein­geitur eru oft mjög hnyttnar og með skemmti­legt skop­skyn. Þær nálg­ast grín á alvar­legum nótum og blátt áfram. Kald­hæðni þeirra er mikil og getur stungið þá sem kunna ekki að taka á móti slíku.

Stein­geitur geta oft virst kaldar og lok­aðar. Þær eiga erfitt með að treysta og það tekur þær tíma að hleypa fólki að sér. Það er hins vegar vel þess virði þegar þær loks­ins gera það. Stein­geitur eru oft gagn­rýnar á aðra og skapið í þeim getur orðið þungt. Þær eru þó ekki sér­stak­lega gjarnar á mik­inn æsing, þær eru færar í að halda ró sinni. Stein­geitin er stolt og það fer illa í hana þegar stolt hennar er sært.

Stein­geitur eru trygg­lyndar og fólkið í þeirra nán­asta hring getur treyst á þær. Þær gefa góð og praktísk ráð og geta hjálpað fólki við að koma betra lagi á líf sitt.

Vatnsberinn

(U.þ.b. 20. jan­úar–18. febr­úar*)

Frum­legur, sjálf­stæður, klár.

Vatns­ber­inn er loft­merki. Það ein­kennir vatns­bera gjarnan hversu frum­legir og stundum óvenju­legir þeir eru. Þetta getur lýst sér á ýmsan hátt. Þeir geta haft óvenju­legar skoð­anir og nálgun á mál­efni, þeir geta stundum hagað sér eins og hálf­gerðar geim­verur með stór­und­ar­legan húmor sem eng­inn annar skilur og þeir geta líka tjáð sig í gegnum fata­stíl og yfir­bragð sem þá er sér­stæður á ein­hvern hátt.

Vatns­beri er afar klár og nálg­ast flest í heim­inum út frá vits­muna­legum grund­velli. Hann er hugs­andi og hugur hans er rök­rænn. Hann er flinkur í að greina hluti og kom­ast að kjarna þeirra. Vatns­beri getur stundum virst dálítið aftengdur. Það hversu mikið hann treystir á hug­ann gerir hann stundum fjar­lægan til­finn­ingum, bæði sínum eigin og ann­arra. Elsk­hugum hans getur stundum fund­ist hann ansi kaldur; hálf­gert vél­menni. Það er auð­vitað ekki svo að vatns­beri sé til­finn­inga­laus. Honum er bara miklu tamara að nálg­ast hluti með huga sínum frekar en hjarta. Hitt þarf hann að þjálfa sér­stak­lega. Það hjálpar honum ef tunglið í stjörnu­korti hans er stað­sett í til­finn­inga­rík­ara merki.

Vatns­beri þarf á miklu frelsi að halda til að blómstra. Hann er vissu­lega fastur fyrir og þrjóskur, en hann þarf að vera á ferð og flugi og að upp­götva nýja hluti. Hann þolir illa ef engin fjöl­breytni er til staðar í líf­inu. Vatns­berar vilja og þurfa sjálf­ræði og að geta kúp­lað sig út og verið í friði. Þarna getur komið sér vel að vera með áhuga­mál sem þeir eiga í friði fyrir sínum nán­ustu.

Vatns­berar hafa mik­inn áhuga á fólki og sam­fé­lag­inu í heild sinni. Þeir vilja bæta heim­inn og eru gjarnir á að halda í hina og þessa veg­ferð­ina til að berj­ast fyrir rétt­indum eða vera rödd fyrir þá sem minna mega sín. Það hentar þeim gjarnan vel að sinna ein­hvers konar mann­úð­ar­starfi eða sam­fé­lags­úr­bótum. Þeir tengja líka oft sér­lega vel við dýr – það er eins og þeir kom­ist inn á eitt­hvert tíðni­svið sem aðeins dýrin eru inni á.

Vatns­berar geta verið ansi þverir og það pirrar þá mjög þegar aðrir eru þeim ekki sam­mála. Þeir eiga það til að vera dálítið hroka­fullir og þeim hættir til að tala niður til ann­arra.

Vatns­berar eru víð­sýnir og ekki hrifnir af því að feta fyr­ir­fram ákveð­inn veg út frá gömlum gildum. Þeir eru opnir fyrir nýjum og óhefð­bundnum hug­myndum, og leit­ast við að breyta og bæta. Þrátt fyrir þetta eru vatns­berar þrjóskir; þegar þeir hafa myndað sér skoðun og bitið eitt­hvað í sig er erfitt að sveigja þá.

Fiskarnir

(U.þ.b. 19. febr­úar–20. mars*)

Skapandi, við­kvæmir, dreym­andi.

Fisk­arnir eru vatns­merki. Fiskar búa yfir mik­illi til­finn­inga­legri dýpt og eru afar næmir á fólkið í kringum sig. Oft er eins og þeir finni fyrir til­finn­ingum allra ann­arra. Þetta er hæfi­leiki sem fiskum er tamt að nota til góða, en getur líka íþyngt þeim.

Fiskar eru list­rænir og skap­andi í eðli sínu. Þeir fá yfir­leitt margar og frum­legar hug­myndir. Það er gott að fá augu eða eyru fiska lánuð þegar eitt­hvað er í mótun, hvort sem það er ein­hvers konar lista­verk eða í raun hvað sem er annað – það er næsta víst að sjón­ar­horn þeirra verði áhuga­vert og ferskt, og þeir komi með nýja hug­mynd eða vinkil.

Það er skrýtið með fiska hvað þeir virð­ast eiga sér mörg and­lit. Þeir láta sig ber­ast áfram með straumnum og sá fiskur sem þú hittir í dag er ekki endi­lega sá sami og þú hittir á morgun. Þeir eru á sífelldri hreyf­ingu og þró­ast og breyt­ast með umhverfi sínu. Þetta þýðir ekki að þeir séu falskir eða óheið­ar­legir, það er ein­fald­lega í eðli þeirra að umbreyt­ast sífellt og soga umhverfið í sig. Þeir búa líka yfir inn­byggðum skiln­ingi í garð ann­ars fólks og eiga auð­velt með að setja sig í spor þess og tengja við ólíka reynslu­heima. Þeir eru víð­sýnir og með afar opinn huga. Þeir búa yfir sterkri sam­kennd og ást á mann­kyn­inu.

Fiskar eru afskap­andi dreym­andi. Þeir eiga það til að týna sér gjör­sam­lega í dagdraumum og tím­inn getur hrein­lega hlaupið frá þeim. Það er þó meðal ann­ars í gegnum þennan eig­in­leika sem þeir fá bestu hug­myndir sínar. Það hentar fiskum ekki sér­lega vel að vera í of föstum skorðum; fyrir þá flesta verður að vera ákveð­inn sveigj­an­leiki fyrir spuna í líf­inu. Það er þó mik­il­vægt fyrir fiska að vanda sig svo­lítið við að halda sig að verk­efn­unum og klára þau.

Fiskar eru til­finn­inga­ríkir og við­kvæmir. Þeir eru auð­særðir og líka afskap­lega hrif­næmir. Þessir ein­stak­lingar eru yfir­leitt fljótir að sann­fær­ast um að þeir séu ást­fangnir. Viku síðar liggja þeir í ást­ar­sorg og lífið er búið. Eftir viku í við­bót er eins og þetta hafi aldrei gerst.

Fiskar finna svo sterkt fyrir öllu í kringum sig að þeir hafa til­hneig­ingu til að flýja harðan veru­leik­ann. Þetta gera þeir stundum með ein­hvers konar sjálfs­blekk­ingu eða flótta­hegðun. Það endar þó iðu­lega með því að veru­leik­inn lendir harka­lega á höfði þeirra. Þá geta þeir orðið ansi daprir og dregið sig í hlé. Þeir eiga það þá til að vor­kenna sér og full­yrða hluti á borð við „Ég mun aldrei treysta neinum aftur!“ Þetta end­ist þó yfir­leitt ekki lengi og svona tíma­bil getur hrein­lega verið fiskum gagn­legt; þeir koma til baka tví­efldir.

Þeir geta verið svo­lítið mis­lyndir. Þeir eru ekki sér­lega bráðir í skapi, en dramat­ískir eru þeir og móðg­ast auð­veld­lega. Þeir eru líka afskap­lega auð­særðir. Þeir geta einnig verið dálitlir fýlu­púkar og skapið oft ansi þungt. Fúll fiskur fer ekki fram hjá neinum.

*Dag­setn­ing­arnar geta verið örlítið breyti­legar eftir árum. Á síðum á borð við Cafe Astrology má slá inn fæð­ing­ar­upp­lýs­ingar og skoða stjörnu­kortið sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina