Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Biðja um skýrslu vegna undanþága til barnahjónabanda: „Upplýsingar þurfa að rata í dagsljósið“

Biðja um skýrslu vegna undanþága til barnahjónabanda: „Upplýsingar þurfa að rata í dagsljósið“

Þingmenn Pírata og Flokks fólks­ins hafa sent beiðni um skýrslu frá inn­an­rík­is­ráð­herra um und­an­þágur frá ald­urs­á­kvæði hjú­skap­ar­laga. Á þar við veittar heim­ildir til barna undir 18 ára til að ganga í hjóna­band.

Í sumar greindi Vísir frá því að af þeim átján ein­stak­lingum sem hefðu hlotið und­an­þág­urnar, hefði verið um að ræða sautján stúlkur og einn dreng. Í tveimur til­vikum voru það 17 ára stúlkur sem fengu und­an­þágu til að gift­ast 31 árs gömlum manni. Tvær stúlkur voru 16 ára þegar þær fengu heim­ild til að gift­ast mönnum sem voru 18 ára og 23 ára.

Í beiðni þing­mann­anna er óskað eftir því að í skýrslu inn­an­rík­is­ráð­herra komi fram hvaða verk­lag var við­haft í hverju til­viki sem heim­ildir voru veittar börnum undir lög­aldri til að ganga í hjóna­band. Óskað er eftir skil­grein­ingum á því hvaða hlut­lægu við­mið voru lögð til grund­vallar við mat umsókna og hvaða gagna hafi verið aflað í hverju til­viki fyrir sig. Einnig hvernig ráðu­neytið hafi rækt rann­sókn­ar­skyldu sína til þess að ganga úr skugga um að ekki væri um þvingun að ræða.

„Jafn­framt verði gerð grein fyrir því hvernig ráðu­neytið hafi brugð­ist við alþjóð­legri laga­þróun, þeim til­mælum sem beint hefur verið gegn barna­hjóna­böndum, og hvernig metið hafi verið hvort fram­kvæmdin sam­ræmd­ist barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ segir í beiðni þing­mann­anna.

Fyrirspurn fyrst lögð fram árið 2018

Eins og segir í grein­ar­gerð beiðn­innar hefur tíðni barna­hjóna­banda hér á landi verið til athug­unar um nokk­urt skeið. Upp­lýs­inga hefur áður verið óskað frá dóms­mála­ráð­herra vegna þessa. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, lagði fram fyrstu fyr­ir­spurn um málið á Alþingi í mars árið 2018. Þar spurði Andrés hve oft dóms­mála­ráðu­neytið hefði veitt und­an­þágu frá skil­yrðum um aldur hjóna­efna í hjú­skap­ar­lögum, frá því sjálf­ræð­is­aldur var hækk­aður úr 16 árum í 18 ár.

Þá kom fram að á þessum tíma hefðu alls átján umsóknir um und­an­þágur borist. Þær höfðu allar verið sam­þykktar af ráðu­neyt­inu. Í flestum til­vikanna voru ein­stak­ling­arnir sem fengu und­an­þág­una 17 ára þegar leyfið var veitt. Í tveimur til­vikum voru við­kom­andi aðilar 16 ára.

Andrés Ingi Jónsson lagði fram frum­varp um bann við barna­hjóna­böndum með afnámi und­an­þágu frá ald­urs­skil­yrðum hjú­skap­ar­laga, eftir að dóms­mála­ráð­herra hafði sagst ætla að end­ur­skoða hjú­skap­ar­lögin með það að mark­miði að afnema und­an­þág­una, allt frá því að hin fyrsta fyr­ir­spurn barst árið 2018. Ráðherra var inntur eftir því ári síðar hvar sú end­ur­skoðun stæði. Í svari ráð­herra kom þá fram að end­ur­skoð­unin væri í vinnslu og fyr­ir­hugað væri að leggja fram frum­varp á næsta þingi. Það varð ekki.

Að lokum lagði Andrés Ingi fram frum­varp á 151. lög­gjaf­ar­þingi. Dóms­mála­ráð­herra lagði fram frum­varp stuttu síðar. Bæði frum­vörpin hafa verið til umfjöll­unar í alls­herjar- og mennta­málanend.

Í beiðn­inni er óskað eftir því að óháður aðili verði feng­inn til að gera skýrsl­una. „Ef ein­hver mis­brestur hefur verið á fram­kvæmd­inni, sem leitt hefur til þess að brotið hafi verið á rétti ein­stak­linga sem njóta verndar barna­sátt­mál­ans, þá þurfa þær upp­lýs­ingar að rata í dags­ljósið. Þar sem nið­ur­stöður úttekt­ar­innar geta reynst gagn­rýnar á fram­kvæmd ráðu­neyt­is­ins sjálfs er þess óskað að leitað verði út fyrir ráðu­neytið til óháðs aðila við gerð skýrsl­unnar.“

Beiðnin um skýrsl­una kemur frá eft­ir­far­andi þing­mönnum Pírata og Flokks fólks­ins: Andrési Inga Jónssyni, Arndísi Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur, Ásthildi Lóu Þórs­dóttur, Birni Leví Gunn­ars­syni, Evu Sjöfn Helga­dóttur, Eyjólfi Ármanns­syni, Gísla Rafni Ólafs­syni, Guðmundi Inga Krist­ins­syni, Halldóru Mogensen, Ingu Sæland, Jakobi Frímanni Magn­ús­syni og Tómasi A. Tómassyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina