Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gunnar kenndi Rúnari Júl á bassa: „Fyrstu skiptin sem við spiluðum sneri hann alltaf baki í fólkið“

Gunnar kenndi Rúnari Júl á bassa: „Fyrstu skiptin sem við spiluðum sneri hann alltaf baki í fólkið“
Gunnar Þórð­ar­son Mynd: Róbert Reynisson

Gunnar Þórð­ar­son er afkasta­mikið tón­skáld en hann hefur samið um 800 lög sem geta plokkað í strengi til­finn­ing­anna eins og gít­ar­leik­ari plokkar í strengi gít­ars­ins. Hann er enn að semja en sjúk­dóm­ur­inn kemur í veg fyrir að fing­urnir hlýði. „Ég get spilað smá­vegis en putt­arnir svara mér ekki alveg.“ Hann rifjar hér meðal ann­ars upp árin með Hljómum, minn­ist á vínið og fíkni­efnin og auð­vitað tón­list­ina, til dæmis trú­ar­lega tón­list. Hér er brot út við­tali Reynis Trausta við Gunnar sem birt­ist í jóla­blaði Mannlífs:

Gunnar Þórð­ar­son ólst fyrstu árin upp á Hólmavík og svo flutti fjöl­skyldan suður og það var byrjað að byggja hús í Keflavík. Rúnar Júl­í­us­son var bekkj­ar­fé­lagi hans frá níu ára aldri og þangað til við lok grunn­skóla­göng­unnar. Þeir urðu félagar. Bestu vinir.

Fyrsta giggið, fyrsta skiptið sem Gunnar kom fram, var árið 1961. Eða 1962. Það var með skóla­hljóm­sveit.

„Ég byrj­aði á trommum og ég gat ekki trommað. Það var frekar erfitt,“ segir Gunnar.

Svo fór alvaran að fær­ast í þetta og hann var kom­inn í hljóm­sveit Guð­mundar Ing­ólfs­sonar þegar hann var 17 ára. Þá var hann far­inn að spila á gítar; hann hafði keypt gít­ar­bók og stúd­er­aði hana.

Gunnar var ein­ungis í hljóm­sveit­inni í sjö til átta mán­uði. Svo stofn­aði hann Hljóma. Rúnar var líka í þeirri hljóm­sveit eins og flestir vita. Og Gunnar kenndi honum á bassa.

„Hann hafði aldrei séð bassa. Rúnar var nátt­úr­lega klár, þannig að það gekk fljótt. Bassi er líka ein­fald­ari heldur en gítar. Fyrstu skiptin sem við spil­uðum sneri hann alltaf baki í fólkið af því að hann var að lesa ein­hverjar nótur sem ég hafði skrifað. Hann lærði þetta fljótt.“

Ævin­týrið var hafið. Og Óli Gaukur samdi í byrjun text­ana fyrir þá. „„Bláu augun“ og „Fyrsti  koss­inn“ var Óli Gaukur. Svavar gaf þetta út á plötu og hann var með Óla í öllum textum. Við vorum hins vegar með enska texta en hann vildi ekki sjá það.“

Og Hljómar slógu í gegn. Þeir urðu lands­frægir. Gunnar er spurður hvernig það hafi verið að vera frægur.

„Þetta var alveg ótrú­legt af því að það var nátt­úr­lega ekk­ert sjón­varp. Það var þessi frægi konsert í Háskóla­bíói sem var fyrsti bítla­konsert­inn sem gerði okkur lands­fræga. Við vorum á for­síð­unni á Mogganum dag­inn eftir. Við fórum svo í túr um landið og við vorum eins og ein­hver frík.“

Hann segir að þeir hafi verið svo feimnir.

„Það var dálítið skrýtið að lenda í þessu. Það rjátl­að­ist af okkur með tím­anum.“

Hljómar störf­uðu í fimm ár.

Hér fyrir neðan má svo lesa allt við­talið í glæ­nýju jóla­blaði Mannlífs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina