Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skammdegisslysin í borginni – Keyrt á hjólandi og gangandi

Skammdegisslysin í borginni – Keyrt á hjólandi og gangandi
Myndin teng­ist ekki efni grein­ar­innar með beinum hætti.

Banaslysin sem orðið hafa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár urðu öll snemma morg­uns.

Í jan­úar hlaut 65 ára gam­all maður alvar­lega höf­uð­á­verka eftir fall á reið­hjóli í Breið­holti, hann lést á sjúkra­húsi degi síðar. Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa telur að and­látið megi rekja til þess að mað­ur­inn var ekki með hjálm.

Þann 17. febr­úar lést karl­maður á átt­ræð­is­aldri eftir að hafa orðið fyrir bíl á gatna­mótum Kauptúns og Urriða­holts­strætis í Garðabæ. Rannsókn þess slyss er langt á veg komin, en enn ólokið.

10. nóv­em­ber lést maður á raf­hlaupa­hjóli. Hann og öku­maður vespu skullu saman á illa upp­lýstum hjóla­stíg við Sæbraut. Að morgni 25. nóv­em­ber ók svo stræt­is­vagn á gang­andi konu á gatna­mótum Gnoð­ar­vogs og Skeið­ar­vogs með þeim afleið­ingum að konan lést. Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa rann­sakar til­drög þess­ara slys, nið­ur­stöðu er að vænta í vor.

Frá því í byrjun sept­em­ber hafa fjöl­miðlar greint frá að minnsta kosti 13 slysum til við­bótar þar sem ekið hefur verið á gang­andi fólk, fólk á hjóli eða raf­hlaupa­hjóli, börn eða full­orðna.

Mynd. Skjáskot/RÚV

Skamm­deg­isslysin

Reykja­vík­ur­borg stefnir að því að fækka slysum um fjórð­ung fyrir árið 2023. Sér­fræð­ingur segir að nú þurfi meira til en áður til að fækka slysum.Á árinu hafa fjórir gang­andi eða hjólandi veg­far­endur lát­ist í umferð­ar­slysum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar af þrír í Reykja­vík og langtum fleiri en und­an­farin ár.

Sú var tíðin að á lands­vísu lét­ust tugir í umferð­inni á ári hverju. Það sem af er ári eru and­látin orðin átta á lands­vísu. Fleiri en í fyrra og hitti­fyrra.

Fjögur af þessum manns­lífum töp­uð­ust í skamm­deg­is­um­ferð­inni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Það eru helst gang­andi og hjólandi sem slasast alvar­lega í þétt­býli, minna um alvar­leg meiðsl í inn­an­bæj­ar­á­rekstrum bif­reiða. Bíllinn er jú ákveð­inn brynja og nýir fólks­bílar eru hann­aðir til að veita öku­mönnum og far­þegum sífellt meiri vernd.

Búast við 241 slysi á ári

Viðhorf og hegðun veg­far­enda skipta máli þegar kemur að umferð­ar­ör­yggi en líka inn­við­irnir og þá móta ríki og sveit­ar­fé­lög.

Umferð­ar­ör­ygg­is­stefna Reykja­vík­ur­borgar tók gildi árið 2019 og gildir til 2023. Þar segir að á ári hverju megi gera ráð fyrir um 240 umferð­ar­slysum innan borg­ar­markanna. Þar af 40 slysum þar sem fólk slasast alvar­lega og einu banaslysi.

„Alvar­legt og sorg­legt“

Mynd. Skjáskot/RÚV

Guðbjörg Lilja Erlends­dóttir, yfir­verk­fræð­ingur hjá borg­inni og starf­andi sam­göngu­stjóri, segir að slysum þar sem ein­hver meidd­ist hafi fækkað skarpt í fyrra, um 15% frá árinu 2019. Slysum á börnum fækk­aði um þriðj­ung.

„Það þarf að horfa til þess að þetta er ár sem var covid og umferð þar af leið­andi minni, en það gefur okkur líka vís­bend­ingu um hver orsaka­vald­ur­inn er í flestum slysum og það er umferðin,“ segir hún.

Árang­ur­inn virð­ist enda ekki hafa verið kom­inn til að vera, heild­ar­fjöldi slysa í ár nálg­ast fjöld­ann árið 2019.

Fjár­fram­lög ekki í sam­ræmi við áætlun

Í áætlun Reykja­vík­ur­borgar í umferð­ar­ör­ygg­is­málum segir að sam­fé­lags­legur kostn­aður vegna umferð­ar­slysa í Reykja­vík nemi 15 millj­örðum króna á ári (m.v. verð­lag 2013). Aftur á móti sé heild­ar­kostn­að­ur­inn við að hrinda í fram­kvæmd öllum þeim aðgerðum sem höf­undar umhverf­is­ör­ygg­is­á­ætl­unar borg­ar­innar leggja til á árunum 2019 til 2023 sagður vera sex millj­arðar.

Fjár­fram­lög borg­ar­innar til verk­efn­is­ins eru langt frá því að sögn Guð­bjargar, starf­andi sam­göngu­stjóra. Lengst af hafi borgin varið 100 millj­ónum á ári til umferð­ar­ör­ygg­is­mála, en í ár og í fyrra hafi borgin sett 250 millj­ónir í slík verk­efni. Er það nóg?

„Við verðum bara að gera eins vel og við getum innan þess ramma sem við höfum og það gerum við með því að ein­blína á stað­ina og atriðin sem skila mestum árangri.“

Raf­hlaupa­hjólin öllum hug­leikin

Mynd. Skjáskot/RÚV

Berglind Hall­grímdóttir, sam­göngu­verk­fræð­ingur hjá Eflu segir að:

„Kannski helstu áskor­an­irnar eru ný far­ar­tæki, þessi raf­magns­hlaupa­hjól, vespurnar og raf­magns­hjólin.“

Hún segir að fólk sé ekki vant því að ferð­ast á 25 kíló­metra hraða og börn hafi ekki þroska til þess að greina hraða rétt fyrr en eftir 12 ára aldur. Í nágranna­löndum okkar sjá­ist varla börn á svona tækjum.

Guðbjörg segir að slys tengd raf­skútum séu mörg en fæst alvar­leg. Hugs­an­lega þurfi að fjalla sér­stak­lega um þær næst þegar umferð­ar­á­ætlun borg­ar­innar verður upp­færð. „Það verður enn meiri áhersla á að yfir­borðið þarf að vera nokkuð jafnt og slétt því þau eru við­kvæm­ari fyrir mis­fellum á yfir­borð­inu.“

Runólfur hjá FÍB myndi vilja draga úr hámarks­hraða raf­magns­hlaupa­hjóla og setja höft á notkun þeirra um helgar og Árni hjá Lands­sam­bandi hjól­reiða­manna segir hlaupa­hjólin ekki heyra undir hatt sam­tak­anna þó vissu­lega séu þau nýtt sem sam­göngu­máti og þarfn­ist svip­aðra inn­viða og hjól. Þau séu að hans mati óör­ugg­ari en reið­hjól, vegna smæðar dekkj­anna, og að auki mikið notuð af reynslu­litlum ung­mennum og drukknu fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina