Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

ASÍ mun berjast gegn hugmyndum um aukin völd ríkissáttasemjara varðandi takmörkun verkfallsréttar

ASÍ mun berjast gegn hugmyndum um aukin völd ríkissáttasemjara varðandi takmörkun verkfallsréttar
Drífa Snædal.

„Mið­stjórn ASÍ saknar þess að ekki sé lögð áhersla á að verja opin­bera vel­ferð­ar­kerfið og mæta lang­tíma­á­skor­unum sem fel­ast í hús­næð­is­vanda, öldrun þjóðar og að styrkja tekju­stofna til fram­tíðar í nýjum stjórn­ar­sátt­mála,“ segir í grein mið­stjórnar ASÍ.

Hagspá ASÍ fyrir árin 2020-2022

„Á örlaga­tímum hefur hreyf­ing vinn­andi fólks lagt áherslu á að verja hið opin­bera vel­ferð­ar­kerfi, afkomu fólks og auka jöfnuð í gegnum skatt­kerfið.

Í nýjum stjórn­ar­sátt­mála, sem gef­inn er út þegar verð­bólga er mikil og erf­iðar aðstæður á hús­næð­is­mark­aði, er lögð áhersla á að vaxa út úr krepp­unni í stað þess að auka álögur.“

Fært er í tal að „minna fer fyrir þeim ásetn­ingi að verja opin­bera vel­ferð­ar­kerfið og mæta lang­tíma­á­skor­unum sem fel­ast í hús­næð­is­vanda, öldrun þjóðar og að styrkja tekju­stofna til fram­tíðar; sér­stak­lega veldur það von­brigðum að lof­orð sem gefin voru í tengslum við kjara­samn­ing­ana 2019 eru end­urunnin og útþynnt í sátt­mál­anum“ og nefnt að „ Þar ber hæst lof­orð um hús­næð­is­mark­að­inn og þann kostnað sem heim­ilin bera, hvort sem fólk er á leigu­mark­aði eða eigna­mark­aði.

Stuðn­ingur stjórn­valda við hús­næð­is­ör­yggi og til­færslu­kerfin mun ráða úrslitum í kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í aðdrag­anda kjara­samn­inga 2022 og 2023.“

Rík­is­stjórn Íslands 2021

Mið­stjórn ASÍ er ekki sátt við að „hvergi er minnst á að styrkja atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið, setja á leigu­bremsu á leigu­markað, styrkja vaxta­bóta­kerfið eða skil­greina hlut­fall íbúða­bygg­inga á félags­legum grunni. Enn á ný er hins vegar lofað að lög­festa 15,5% fram­lag launa­fólks í líf­eyr­is­sjóði, lof­orð sem hefur ítrekað verið svikið, svo og að stað­festa lög gegn kenni­tölu­flakki.“

Og þessu bætt við:

„Þá hefur kröfum hreyf­ing­ar­innar um önnur atriði, svo sem útvíkkun á keðju­á­byrgð, fram­hald átaks­ins Allir vinna og stað­fest­ing á févíti vegna launa­þjófn­aðar ekki verið mætt í sátt­mál­anum.

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands fagnar því að nú sé kom­inn til starfa félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra sem lýsir áherslum nýrrar rík­is­stjórnar á vinnu­mark­aðs­mál.“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son

Þá er komið inn á að „gríð­ar­legar áskor­anir eru framundan vegna end­ur­nýj­unar kjara­samn­inga næstu tvö árin og rétt­látra umskipta vegna tækni- og lofts­lags­breyt­inga. Þar mun öllu máli skipta að vera í góðum tengslum við verka­lýðs­hreyf­ing­una, verja sjálf­stæði hennar og slag­kraft og styrkja mögu­leika fólks til starfs­mennt­unar og þátt­töku á heil­brigðum vinnu­mark­aði.“

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands­ins „fagnar stað­fest­ingu á auknu sam­ráði við vinnu­mark­að­inn og er til­búið til við­ræðna um bætt verk­lag í kjara­við­ræðum; Verka­lýðs­hreyf­ingin mun hins vegar berj­ast gegn öllum hug­myndum um að auka völd rík­is­sátta­semj­ara sem lúta að tak­mörkun verk­falls­réttar eða samn­ings­um­boðs og sjá til þess að þær munu ekki ná fram að ganga; Alþýðu­sam­bandið er til­búið í alla sam­vinnu sem lýtur að því að efla sí- og end­ur­menntun og auka tæki­færi fólks til mennt­unar.“

Einnig að „þrátt fyrir yfir­lýs­ingar hefur skort aðgerðir í mála­flokknum. Í raun hefur dregið úr stuðn­ingi við fram­halds­fræðslu síð­ustu ár og ára­tugi svo ekki verður við unað á tímum örra breyt­inga á vinnu­mark­aði. Þá er við­var­andi áskorun að vinda ofan af ótryggum ráðn­inga­sam­böndum, upp­gangi gulra stétt­ar­fé­laga og gera fólki kleift að njóta þeirra rétt­inda sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur byggt upp ára­tugum saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við