Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dagmar- lýsir hrottalegu ofbeldi: „Mér var byrlað í partýi“

Dagmar- lýsir hrottalegu ofbeldi: „Mér var byrlað í partýi“

Dagmar Rós Svövu­dóttir ræðir um kyn­ferð­is­of­beldi sem hún var beitt við hlað­varp­stjórn­and­ann Eddu Falak í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur. Í þætt­inum, sem er aðgengi­legur á Patreon-síðu Eigin Kvenna, er hægt að hlusta á við­talið í heild sinni.

Í við­tal­inu við Eddu lýsir Dagmar frá hrotta­legu ofbeldi sem hún var beitt og afleið­ingum ofbeld­is­ins.

Varúð. Lýsingar á kyn­ferð­is­of­beldi.

Í fyrra skiptið var henni byrlað og hún man ekki ennþá dag­inn í dag hvað gerð­ist og hversu margir ger­end­urnir voru. Í seinna skiptið var henni nauðgað af nánum fjöl­skyldu­vini, í brúð­kaupi hans. Hún kærði mann­inn og í kjöl­farið kærðu tvær aðrar konur hann einnig fyrir kyn­ferð­is­brot.

Konurnar voru stimpl­aðar sem „geð­veikar“ og sagt að þetta væri vin­konu­hópur sem væri að taka sig saman gegn mann­inum. Dagmar bendir á að hún þekkti aðra kon­una ekk­ert fyrir og hina mjög lítið. Hún bendir einnig á að eng­inn gerir sér þetta til gam­ans að fara í gegnum kerfið. Þetta sé ógeðs­lega erfitt, nið­ur­lægj­andi og lýj­andi.

„Mér var byrlað í partýi“

Dagmar var byrlað árið 2009, árið sem hún varð átján ára. „Ég gerði ekk­ert í því, ég sagði bara einni vin­konu minni og svo var þetta bara grafið,“ segir hún og bætir við að hún viti ekki enn í dag hvað hefði gerst.

„Mér var byrlað í partýi þar sem ég ætl­aði ekki einu sinni að drekka því ég átti að passa systkin mín dag­inn eftir. Gest­gjaf­inn og annar strákur sögðu: „Hey fáðu þér einn drykk“, og ég hugs­aði: „Æi, já hvað er einn drykkur að fara að gera.“ Ég held ég hafi tekið 2-3 sopa og svo man ég ekk­ert fyrr en dag­inn eftir. Þá vakn­aði ég nakin, á gólf­inu og man ekki neitt og veit ekki ennþá í dag hvað gerð­ist. Gæinn sem gaf mér drykk­inn var frammi, hann bauð mér góðan dag­inn og spurði hvað planið væri þennan dag. Ég vissi ekk­ert hvar ég var, sím­inn minn var dauður, þannig ég fékk hann til að skutla mér heim. Ég man þegar ég var í bílnum, þetta var svo súr­r­eal­ískt, að vera í bílnum með mann­inum sem gerði mér þetta. Ég fatt­aði það strax að hann byrl­aði mér, en þarna strax var skömmin svo mikil,“ segir Dagmar og bætir við að mað­ur­inn hefði þrifið fötin hennar og var búinn að hengja þau til þerris þegar hún vakn­aði.

„Það klikk­aða líka við þetta var að hann var búinn að þrífa fötin mín.“

Þetta er ekkert grín

Dagmar byrj­aði að vinna í áfall­inu í byrjun 2019. Í júlí sama ár verður hún aftur fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, í þetta skipti af hálfu manns sem var mjög náinn fjöl­skyld­unni.

„Fyrsta sem ég hugs­aði [eftir ofbeldið] var ég ætla að þegja, það er auð­veld­ast. Ég er vin­kona kon­unnar hans, mað­ur­inn minn og hann eru bestu vinir, dætur okkar eru bestu vin­konur. Öll þessi tengsl út um allt, ég hugs­aði að það væri lang­best að þegja,“ við­ur­kennir Dagmar.

En hún ákvað að segja frá. Fleiri konur stigu fram gegn sama manni í kjöl­farið en áttu þær þá að hafa tekið sig saman og voru sagðar „geð­veikar.“ Dagmar var í veik­inda­leyfi frá vinnu þegar þetta gerð­ist og nýtti mað­ur­inn sér það til að segja hana klikk­aða. Í heild­ina voru þær þrjár sem kærðu sama mann­inn fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Tvær kærur hafa verið felldar niður.

„Það gerir sér þetta eng­inn til gam­ans, að kæra svona. Þetta er ekk­ert grín. Nú er komið tvö og hálft ár og ég var loks­ins að fá nið­ur­stöðu núna. Þetta er bilun. Og að fá gögnin, ég held ég hafi aldrei verið jafn reið á ævi minni og þegar ég fór í gegnum þessi gögn. Þegar ég lagði fram kæru fannst mér hlut­irnir ger­ast frekar hratt til að byrja með og lög­fræð­ingnum mínum fannst það líka,“ segir hún.

„En þetta fer svo ekki fyrr en ári seinna til ákæru­sviðs. Þetta var bara ofan í skúffu.“

Fór til Íslands á neyðarmóttökuna

Nauðg­unin átti sér stað í brúð­kaupi manns­ins úti á Ítalíu. „Ég hringdi í Land­spít­al­ann og spurði hvað væri best fyrir mig að gera. Við vorum í litlum smábæ á Ítalíu þar sem eng­inn tal­aði ensku, þannig ég vissi ekki hvort ég ætti að fara þarna á spít­ala eða hvað. Við vorum að fara heim tveimur dögum seinna. [Sú sem ég tal­aði við á Land­spít­al­anum] sagði: „Nei komdu um leið og þú kemur heim. Svo málið sé hér en ekki úti á Ítalíu.“ Þannig ég gerði það. Við fórum heim tveimur dögum seinna, lentum um nótt­ina og ég fór strax á neyð­ar­mót­tök­una morg­un­inn eftir,“ segir Dagmar.

„Það er eitt­hvað sem fólk leikur sér ekki að gera. Þetta er svo nið­ur­lægj­andi ein­hvern veg­inn. Spurn­ing­arnar, þú liggur þarna nakin, það er verið að skoða þig alla, teknar myndir af þér. Ert að segja sög­una tvisvar, þrisvar.“

Hann spurði fullt af spurningum og var í áfalli sjálfur

Eftir atvikið tók maður Dagmarar eftir því að eitt­hvað væri að en hún vildi fyrst ekki segja honum það. „Ég vissi að allt færi til fjand­ans,“ segir hún. Hann hélt áfram að ganga á hana þar til hún sagði honum hvað hefði gerst.

„Hann spurði fullt af spurn­ingum og var í áfalli sjálfur. En hann efað­ist ekki um mig í eina sek­úndu, sem ég er ótrú­lega þakk­lát fyrir. Hann hefur alltaf verið eins og klettur í þessu máli,“ segir Dagmar og rifjar upp atvikið sjálft.

„Ég fór með honum upp í þetta hús því ég þurfti að fara á kló­settið og hann var að fara að skipta um föt […] Ég fór á kló­settið og kom fram og hann var bara á nær­bux­unum, sem mér fannst ekki skrýtið. Þetta er besti vinur manns­ins míns. Ég var ekk­ert að kippa mér upp við það, vorum bara að spjalla. Svo byrj­aði hann eitt­hvað svona að kitla mig, og ég sagði honum að hætta og hló aðeins. En hann hætti ekki þó ég sagði honum að hætta, og mér var farið að finn­ast þetta óþægi­legt því hann var far­inn að grípa í staði og bara svona káfa á mér. Svo er eins og ein­hver grimmd kemur yfir hann. Ég sé það bara í aug­unum á honum og svo var mér bara kastað á rúmið og ég fraus bara. Hann er ekki stór maður en ég samt varð hrædd við hann.“

Sjokk fyrir hana líka

Dagmar lýsir við­brögðum konu manns­ins. Hún tók einnig eftir að það væri ekki allt með felldu og sendi Dagmar stöðugt skila­boð þetta kvöld.

„Ég sagð­ist bara vilja hitta hana og ræða þetta augliti til auglits. En hún hætti ekki […] Endaði með að ég sendi á hana […] „mað­ur­inn þinn braut á mér.“ Og fyrsta sem hún sendi var: „Djöfull ertu rugluð, þú ert bara að ljúga.“ Auðvitað bjóst ég alveg við því en samt alveg: Já ókei bara þessi við­brögð. Ég var bara klikkuð en samt vorum við góðar vin­konur fyrir þetta. Ég var með í því að skipu­leggja gæsun­ina hennar fyrir brúð­kaupið, við vorum alveg þar. En það er bara löngu búið.“

Dagmar segir þær ekki tala saman í dag.

„Ég álasa henni ekki fyrir það, þetta er nátt­úru­lega sjokk fyrir hana líka. Ég var reið út í hana fyrst en hún er bara fórn­ar­lamb í þessu öllu saman. Hvað veit ég hvað hann hefur gert henni til dæmis,“ segir hún. Þau eru ekki lengur saman í dag að sögn Dagmarar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina