Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðmundur Felix kynntist Sylwiu handalaus: „Ég er rosa mikið að flengja hana núna því ég get það“

Guðmundur Felix kynntist Sylwiu handalaus: „Ég er rosa mikið að flengja hana núna því ég get það“

Guð­mundur Felix Grét­ars­son, hand­hafi eins og hann kallar sjálfan sig, er nýjasti gestur þeirra bræðra Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið. Þar fór hann yfir slysið sem breytti lífi hans og bata­ferlið sem er bæði gríð­ar­lega erfitt og mjög gef­andi.

Sjá einnig: Guð­mundur Felix vill hjálpa öðrum með reynslu sinni: „Ég hætti að streit­ast á móti líf­inu“

Felix eins og hann er gjarnan kall­aður hefur skrifað sig djúpt í hjörtu fólks bæði hér heima sem og erlendis en fyrir jól kom út bókin hans, 11.000 volt. Felix lenti í slysi jan­úar 1998 er hann vann sem raf­veitu­virki. Slysið sem hefði dregið flesta til dauða varð til þess að líf hans breytt­ist úr hefð­bund­inni sögu yfir í hálf­gerða hryll­ings­sögu á örskots­stundu.

Nú 23 árum síðar er hann nýkomin heim í jóla­heim­sókn með sinni ást­kæru konu Sylwiu og orð­inn hand­hafi. Hann gekkst undir aðgerð eins og flestir vita í jan­úar á þessu ári þar sem græddir voru á hann nýjir hand­leggir frá öxlum og niður.

Guð­mundur Felix nýklipptur og fínn.

Slysið

Felix fór yfir það í þætt­inum hvernig óskipu­lag og röð mann­legra mis­taka urðu til þess að hann ein­fald­lega fór upp í vit­lausan staur þennan afdrifa­ríka morgun með þeim afleið­ingum að hendur hans nán­ast sprungu af. Hann féll átta metra niður á jörðu sem hann reyndar segir að hafi gert það að verkum að hann hafi lifað af. Ef hann hefði ekki kast­ast í jörð­ina hefði hann ein­fald­lega brunnið upp til agna þarna upp í staurnum. Við fallið þrí­brotn­aði hann á hrygg ásamt því að rif­bein losn­uðu frá hryggjar­súl­unni. Þar að auki fékk hann tals­verða innri áverka sem þýddu að hann hefur tvisvar þurft að gang­ast undir lifra­ígræðslu.

„Það sem verður mér til lífs er að detta úr staurnum. Þetta er svona sér­stakir skór sem maður er í sem kræk­ist utan um staur­inn og svo er maður með belti og lífól utanum staur­inn. Ég er sem sagt búin að losa lífól­ina og gríp í lín­una og ef ég hefði ekki dottið þá hefði ég bara verið þar þartil ekk­ert hefði verið eftir, þá er maður bara eins og kynd­ill,“ segir Felix í hlað­varps­þætt­inum og heldur áfram.

„Í langan tíma var skömm því ég vissi ekki hvað hefði gerst, ég mundi ekk­ert. Það tók mig tals­verðan tíma að muna atburð­ar­rás­ina, það fóru svo alls­konar sögur afstað meðal ann­ars að ég hefði bara ætlað að kála mér,” segir Felix og bætir svo við. “en ég vissi samt að það var eitt­hvað óeðli­legt, ég meina ég var ekki fáviti, ég vissi nákvæm­lega hvað ég var að gera en eitt­hvað hefur farið úrskeiðis sem fær mig til að fara upp í rangan staur.“

Fljótlega tók að halla undan fæti

Fljót­lega eftir slysið byrj­aði föl­skyldu­formið að molna undan honum. Hann í raun segir að hann og kona hans þáver­andi hafi bara verið krakkar með krakka.

„Konan mín þáver­andi verður fyrir alveg gríð­ar­legu áfalli þegar þetta ger­ist og er allt í einu bara þarna orðin ein með pínu­lítil börn og mað­ur­inn hennar bara eins og pezkall.“

Hann seg­ist hafa verið þjak­aður af sekt og skömm, fullur van­máttar og sjálfs­vork­unar. Mikil verkja­lyfja­gjöf gerði það að verkum að hann ánetj­að­ist lyfjum sem leiddu hann í harð­ari fikni­efna­neyslu sem nán­ast gengu af honum dauðum.

„Það kemur engin leið­ar­vísir á því hvernig maður dílar við þetta og ein góð leið við díla við þetta er bara að díla ekk­ert við þetta og ef þú ert bara í ein­hverju móki þá er þetta ekk­ert vanda­mál,“ segir Felix í við­tal­inu.

Hann minnt­ist þess að hafa upp­lifað sig sem skrítna gula kall­inn í Smára­lind­inni er hann kom auga á unga drengi sem eltu hann, störðu og gerðu grín af. Þarna hafi hann upp­lifað nokk­urs­konar augna­bliks skýr­leika sem svo færði hann í ferli sem snéri að edrú­mennsku og and­legum vexti.

Sylwia breytti öllu

Felix er búinn að bíða lengi eftir hand­leggj­unum. Hann fór til Frakk­lands og hóf þessa vinnu fyrir um sjö árum síðan. Mikill tími hefur farið í alls­konar rann­sóknir og sam­setn­ingu á liði lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga sem myndu svo fram­kvæma aðgerð­ina þegar að réttu hend­urnar myndu dúkka upp. Erfiður og langur bið­tími tók við sem þó tók miklum breyt­ingum eftir að Sylwia, núver­andi eig­in­kona hans birt­ist í lífi hans. Sylwia Grét­ars­son sem er frá Póllandi hefur verið Felix ómet­an­legur styrkur í þessu ferli öllu saman. Hún starfar sem yoga kenn­ari og búa þau saman í úthverfi Lyon með þrjá hunda. Felix seg­ist njóta lífs­ins í Frakk­landi og segir að þrátt fyrir að alltaf hafi planið verið að flytja aftur heim til Íslands geti þau alveg ímyndað sér að búa áfram í Frakk­landi.

Guð­mundur Felix og Sylwia.

„Hún nátt­úru­lega bara kynn­ist mér og ég er bara algjör­lega hand­leggja­laus og ég segi henni hvað ég er að gera þarna í Lyon en hún bara ein­hvern­vegin eins og svo margir aðrir hélt að það yrði aldrei neitt úr þessu og var bara alglör­lega sátt við það, við verðum ást­fangin þegar staðan er svona,“ segir Felix og bætir svo við sposkur á svip og hlær „en ég er rosa mikið að flengja hana núna því ég get það.“

Endurhæfingin enginn dans á rósum

Dagleg end­ur­hæf­ing Felix er löng og ströng. Hann mætir snemma á morgn­ana og stendur end­ur­hæf­ingin yfir nán­ast allan dag­inn. Hann segir hana ekki bara gríð­ar­lega erf­iða og krefj­andi heldur einnig alveg drep­leið­in­lega oft á tíðum. Mikil end­ur­tekn­ing þarf að eiga sér stað svo að nýjar teng­ingar tauga­kerf­is­ins geti orðið að veru­leika. Árang­ur­inn sem Felix sýnir í sinni bata­þróun er framar öllum vonum. Taugar virð­ast vera að vaxa miklu hraðar en vonir stóðu til um en jákvætt við­horf og þraut­segja Felix er mögu­lega ráð­andi þáttur hvað það varðar.

Guð­mundur Felix í góðum höndum

Karllæg spurning úr sal

Gunnar bar upp spurn­ingu úr sal eða rétt­ara sagt úr sím­anum sínum. Spurn­ingin kom frá félaga þeirra bræðra, honum Ívari á gröf­unni. Ívar vildi vita hvort Felix væri búinn að „hrista“ hann. Felix svar­aði þess­ari spurn­ingu hlægj­andi en þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann er spurður að þessu. Hann seg­ist halda að þetta sé það fyrsta sem mörgum drengjum og mönnum detti í hug í þessum málum. Hann sagði að grip­styrkur og hreyfi­geta væri á hraðri upp­leið og þegar að hann myndi hverfa af sam­fé­lags­miðlum eða sjón­ar­sviði almennt í mánuð eða svo þá vissum við hvað hann hefði fyrir stafni og hvar hann væri staddur í sinni bata­þróun. Það tæki lík­lega ein­hverja mán­uði að vinna upp 23 ár án hand­leggja. Davíð tók glett­inn undir þetta og fannst þetta mik­il­vægur „milestone“ í þessum efnum.

Heimkoman

Við heim­kom­una til Íslands hefur hann gengið í gegn um alla flór­una af til­finn­ingum. Til dæmis hitti hann og fékk að halda á mán­aðar gömlu barna­barni sínu honum Felix Jr. í fyrsta skiptið. Þessi til­finn­ing að fá að halda á barna­barni sínu með það til hlið­sjónar að yngra barn hans var aðeins þriggja mán­aða þegar að hann lenti í þessu afdrifa­ríka slysi, var ólýs­an­leg. Hann upp­lifir ómælda heilun á for­tíð sinni í þessu ferli öllu saman. Hann seg­ist vera í þessum aðstæðum svo djúpt snortin að það jaðri við tauga­á­falli oft á tíðum, hann meira að segja ótt­að­ist það að vera í stans­lausum grát­köstum í þess­ari Íslands­heim­sókn sinni því til­finn­ing­arnar bera hann nán­ast ofur­liði stundum.

Felix faðmar dóttur sína fyrr á árinu.

Felix vill ekki vita hver gaf honum hendurnar

Gunnar spurði Felix hvort hann vissi eitt­hvað um hend­urnar, hvaðan þær kæmu og hverjum þær eitt sinn til­heyrðu. Hann sagð­ist ekk­ert vita annað en að þær til­heyrðu manni sem lést 35 ára gam­all. Auðvitað er mik­ill harm­leikur í kringum þetta þó að fyrir honum er það ekk­ert annað en krafta­verk. Hann sagði frá því að aðstand­endur gjafans vita að öllum lík­indum hver ber hend­urnar í dag og því í færi til að fylgj­ast með þeim úr fjar­lægð því gríð­ar­leg umfjöllun er í gangi í Frakk­landi hvað hend­urnar hans Felix varða. Felix seg­ist ekki vilja vita hver bar þær í 35 ár en klár­lega er hjarta hans fullt af kær­leik, þakk­læti og auð­mýkt.

Guð­mundur Felix Grét­ars­son.

„Ég er ekk­ert viss um að ég vilji vita það,“ segir Felix og bætir svo við „þetta er tra­gedía, hann var 35 ára og and­lát 35 ára manns er aldrei af góðu. En fyrir mig, ég þarf að lifa með þessu ein­hvern­vegin þannig að fyrir mig að vera mikið að fara inn í tra­ged­í­una á bak­við þennan sigur hjá mér, þú veist, reyna að sjá fyrir mér and­lit manns­ins eða eitt­hvað, það gengur ekki, það er það sama með aðrar líf­færa­gjafir. Ég veit ekk­ert hvernig Daninn sem gaf mér lifr­ina lítur út.“ segir Felix við bræð­urna.

Þáttinn má hlusta á í heild sinni á hlað­varpsvef mbl.is og horfa á hann á YouTube.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við